Fréttablaðið - 22.01.2022, Page 53

Fréttablaðið - 22.01.2022, Page 53
Erum við að leita að þér? Elkem auglýsir eftir öflugu og hæfileikaríku fólki í tvær stöður innan fyrirtækisins. Elkem er skemmtilegur og fjölbreyttur vinnustaður og hentar öllum, óháð kyni. Vakin er athygli á því að Elkem er vímuefnalaus vinnustaður. Sótt er um rafrænt á ráðningarvef Elkem á www.elkem.is. Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar. Við erum líka að leita eftir öflugum liðsmönnumi í sumarstörf! Umsóknarfrestur til 8. febrúar - smelltu á QR kóðan til að skoða nánar. Leiðtogi Eldfast Starfið felur í sér sérhæfingu á sviði eldfastra efna (refractory materials). Við leitum eftir einstaklingi sem hefur þekkingu á efnafræði og hefur góða greiningarhæfni. Starfið er stjórnunarstarf sem fellst í að leiða hóp í framleiðslu og viðhaldi á eldföstum búnaði fyrir verksmiðjuna. Viðkomandi þarf að hafa hæfni í gæðastýringu ferla og kostnaðaryfirliti. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra tæknisviðs.  Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. efnafræði eða aðrar raungreinar.  Reynsla af stjórnunarstörfum æskileg.  Frumkvæði, stjórnendahæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.  Vilji og geta til að vinna í krefjandi aðstæðum.  Góð öryggisvitund og jákvætt viðhorf.  Öguð og nákvæm vinnubrögð ásamt stundvísi. Um Elkem Elkem Ísland er hluti af Elkem AS sem er alþjóðlegt fyrirtæki. Elkem er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu á kísilmálmi. Afurðir okkar eru m.a. notaðar til að hjálpa rafbílum að komast lengra, bætir orkunýtingu í raftækjum sem gegnir mikilvægu hlutverki í að draga úr kolefnisfótspori heimsins. Í starfi okkar leggjum við höfuð áherslu á fagmennsku, framsækni, jafnrétti og sátt við umhverfið. Ferilseigandi Rannsóknar Starfið felur í sér almennt gæðaeftirlit og umbætur á gæðasviði rannsóknarstofu við efnagreiningar á FeSi málmi og hráefnum tengdum framleiðslunni. Við leitum eftir einstaklingi sem hefur m.a. hæfni í skipulagningu og þróun ásamt viðhaldi og innleiðingu tækjabúnaðar. Viðkomandi sinnir hráefnisskráningum og samanburðarmælingum við aðrar rannsóknarstofur innan Elkem.  Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. raungreinar.  Reynsla úr sambærilegum störfum t.d. rannsóknarstofum.  Vilji og geta til að vinna í krefjandi aðstæðum.  Góð öryggisvitund og jákvætt viðhorf.  Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.  Öguð og nákvæm vinnubrögð ásamt stundvísi. Menntunar- og hæfniviðmið Menntunar- og hæfniviðmið Skólaritari og launafulltrúi Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til starfa ritara í 65% starf frá 1. mars 2022. Helstu verkefni og ábyrgð - Almenn skrifstofustörf. - Umsjón með reikningshaldi. - Skólaritari er jafnframt launa- og persónuverndarfulltrúi. Hæfnikröfur - Auk stúdentsprófs er bókhaldsnám eða bókhaldsþekking æskileg. - Góð íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta. - Reynsla af launaforritinu H-laun er kostur. - Lipurð í mannlegum samskiptum, samviskusemi og frumkvæði. Með umsókn fylgi upplýsingar um menntun og starfsreynslu og meðmæli tveggja aðila. Skólaritari starfar í húsnæði tónlistarskólans Eyravegi 9, Selfossi. Fastur starfstími skólaritara er kl. 12:00 – 16:00 auk fjögurra morgna í mánuði kl. 8:00 - 12:00 (eða eftir samkomulagi). Kjör eru samkvæmt kjarasamningi FOSS. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2022. Upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 861-9687 / helga@tonar.is eða aðstoðarskólastjóra í síma 864-1235 / joi@tonar.is, sem einnig taka á móti umsóknum. Tónlistarskóli Árnesinga er einn af stærstu tónlistarskólum landsins með starfsemi á 14 kennslustöðum í sýslunni. Fjöldi nemenda er um 575 og starfa 39 kennarar við skólann. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu skólans www.tonar.is ATVINNUBLAÐIÐ 19LAUGARDAGUR 22. janúar 2022

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.