Fréttablaðið - 22.01.2022, Side 82

Fréttablaðið - 22.01.2022, Side 82
4 °C -4 °C 1 °C 1 °C 1 °C 1 °C 1 °C 3 °C 4 °C 4 °C 2 °C 20 23 23 13 20 25 18 13 18 15 15 Veðurspá Laugardagur Sunnudagur Mánudagur Kirkjubæjarklaustur Reykjavík Ísafjörður Akureyri Egilsstaðir Nú er hann hvass víða. Í dag blæs hann af suðvestri, 13-25 m/s, hvassast á norðvestanverðu landinu þar sem appelsínugul viðvörun er í gildi. Él en þurrt og bjart austan til á landinu. Lægir í kvöld. Hiti nálægt frostmarki. . KORT/SIGGI STORMUR Sigurður Þ. Ragnarsson vedur @frettabladid.is Árið 1918 er í sögunni talið vera eitt það erfiðasta sem dunið hefur yfir íslenska þjóð. Kemur þar margt til. Það ár gekk yfir hin mannskæða pest sem nefnd hefur verið spænska veikin Er talið að í fyrstu viku nóv- embermánaðar hafi þriðjungur Reykvíkinga lagst. Viku síðar hafi tveir þriðju íbúa höfuðborgarinnar verið rúmfastir. Tæplega 500 Íslend- ingar létust af hennar völdum. Kötlugos hófst 12. október 1918 og stóð fram til 4. nóvember sama ár. Var það meðal stærstu Kötlugosa frá því lands byggðist. Heilu sveitirnar fóru í eyði. Síðast en ekki síst er það veturinn 1917-1918 sem var afar kaldur. Haust- ið 1917 hafði verið mjög kalt. Í des- ember 1917 fór hitinn lægst í -30°C á Grímsstöðum, -22°C á Vífilsstöðum í Garðabæ og -19,5°C í Stykkishólmi. Ekki tók betra við í janúar 1918. Lægsti hiti á Grímsstöðum -37,9°C , á Vífilsstöðum fór frostið niður í -29°C og í Stykkishólmi -29,7°C. Febrúar og mars voru líka kaldir með lægstu frosttölur á bilinu -12°C á Vífilsstöð- um og-19°C á Grímsstöðum. Síðan herti frostið framan af aprílmánuði. Þetta var því sannkallað hörmung- arár fyrir Íslendinga. n Hörmungarnar á Íslandi árið 1918 Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Pondus Eftir Frode Øverli Kassinn með Whitesnake- plötunum á að fara inn á lager! Redd- arðu því, Zlatan? Eh ... jájá! Ekki segja mér að þú þurfir hjálp!? Þá þarf ég að færa þig úr þungarokksdeildinni yfir í easy listening, Zlatan! Flottur strákur! Hvernig er það mögulegt að tveir einstaklingar hafi alltaf jafnrangt fyrir sér um allt? Krakkar! Hættið að rífast!! Ég vildi að ég ætti hundraðkall fyrir hvert skipti sem ég hef sagt þetta. Ég líka. Þá gætum við haft efni á dómara. Eða leigt börn sem hegða sér betur. Seðill og borðapantanir á apotek.is LAUGARDAGA & SUNNUDAGA 11:30-14:30 LJÚFFENGIR BRUNCH RÉTTIR KOKTEILAR & KAMPAVÍN 38 22. janúar 2022 LAUG-FRÉTTABLAÐIÐVEÐUR MYNDASÖGUR 22. janúar 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.