Fréttablaðið - 22.01.2022, Page 90
Ég er voðalega ánægð-
ur með það sjálfur og
mér finnst mest vera
að gerast í svona serí-
um þegar verið er að
undirbyggja eitthvað.
SÖLUSÝNING
Kjarval, Ásgrímur Jónsson, Jón Stefánsson og fleiri.
PORTFOLIO
GALLERI
Opið eftir samkomulagi. Hafið samband í síma 822-1929 eða á
galleri@portfolio.is
PORTFOLIO GALLERÍ
HV FISGATA 71
Baldvin Z, leikstjóri Svörtu
sanda, vildi leggja meiri
áherslu á mannlegt drama
frekar en morðsöguna í
glæpaþáttunum. Hann skilur
þó vel þá sem hafa litla þolin-
mæði gagnvart hinum hæga
bruna, en nú þegar sígur á
seinni hlutann má ætla að
leikar fari að æsast.
toti@frettabladid.is
Sjötti þáttur af átta í sakamála-
þáttaseríunni Svörtu sandar, verður
sýndur á Stöð 2 á sunnudagskvöld.
Leikstjórinn Baldvin Z segist hafa
lagt upp með hægan bruna og hafi
einhverjum þótt framvindan full
hæg hingað til, þá má ætla að heldur
fari að hitna í kolunum þegar síga
fer á seinni hlutann.
Frásagnarmátinn sem kenndur
er við „slow burn“ eða hægan bruna
hefur verið vinsæll í sjónvarpsþátt-
um og bíómyndum undanfarið og
Baldvini þótti þessi eldunaraðferð
henta sýn sinni á Svörtu sanda ákaf-
lega vel.
„Þetta er svolítið vinsælt núna,
allaveganna hjá einhverjum, og
það er fullt af fólki sem fílar það, en
auðvitað skil ég líka fólk sem kveikir
ekki á þessu. En ég er voðalega hrif-
inn af svona þegar verið er að búa
til karaktera og mjatla í hlutunum,“
segir Baldvin. „En svo endar þetta
náttúrlega alltaf með einhverjum
hryllingi,“ heldur Baldvin áfram og
tekur undir að alltaf sé stefnt að ein-
hvers konar ógn og skelfingu í lokin.
En svo spurt sé fyrir þá óþolin-
móðu, fer eitthvað að gerast?
„Þetta er góð spurning,“ svarar
Baldvin hlæjandi og segir skipta
máli hversu vel sé kynt undir hæga
brunanum. „Og ég ætla ekkert eitt-
hvað að leggja mat á það hvort
okkar sé vel gert eða illa gert. Ég er
voðalega ánægður með það sjálfur
og mér finnst mest vera að gerast
í svona seríum þegar verið er að
undirbyggja eitthvað. Skapa undir-
öldu með því ósagða og leyfa fólki
að velta því fyrir sér hvað sé í gangi.
Og ef fólk hefur áhuga á karakter-
unum og vill vita meira, þá er maður
að búa til undirstöðu sem gerir allt
þess virði þegar hlutirnir fara síðan
upp í f lugeldasýninguna, eða hvað
sem við viljum kalla þetta.“
Myrkur spennuróman
Baldvin segist alltaf hafa talað um
Svörtu sanda sem „dark romantic
thriller“ frekar en glæpaspennu-
sögu, þótt hann viti ekki hvort
slíkur merkimiði sé yfirleitt til. „En
þetta er einhvern veginn forsendan
sem við lögðum af stað með. Að
þetta væri einhver svona „dark rom-
antic thriller“-sería,“ segir Baldvin
og lætur þess getið að sjálfur horfi
hann ekki mikið á glæpaþætti.
Hann hefur þó komið að gerð
tveggja sakamálasería; Ófærðar og
Réttar. „Ég var þannig lagað samt
ekki með frá upphafi í þróun þess-
ara verkefna og mig hefur alltaf
langað að prufa að gera krimma-
seríu sem mig myndi langa til að
horfa á. Þannig að þar kemur þessi
„slow burn“-pæling, að vera meira
í dramanu, en ná samt einhvern
veginn að, hvað á ég að segja? Vefja
sakamálið inn í einhverja stærri
dramasögu.“
Baldvin segist strax hafa fundið
þetta í upphafspælingunni sem
meðhöfundar hans, Ragnar Jóns-
son, og aðalleikkonan, Aldís Amah
Hamilton, komu með.
„Mér fannst allaveganna þessi
pæling, þótt hún hafi verið töluvert
langt frá því sem hún endaði í, vera
þannig að þarna gæti ég kannski
komið inn og við gætum keyrt
saman í þá átt að búa til þessa „slow
burner“-krimmaseríu.
Andrúmsloftið og staðsetningin
væru kannski eitthvað í anda þess
sem ég var að hugsa. Ég varð rosa-
lega spenntur fyrir þessu,“ segir
Baldvin og bætir við að hann hafi
ekki fundið alvöru innblástur fyrir
gerð sakamálaseríu, fyrr en eftir að
hann horfði á fyrstu þáttaröð True
Detective. „Það var einhvern veginn
virkilega vel skrifað og var svo sann-
arlega svona „slow burner““
Lögregluaðstoð
Baldvin segir síðan ekki hafa
skemmt fyrir að Ragnar er reyndur
lögreglumaður og það hafi verið
frábært að geta gengið að yfirburða-
þekkingu hans við gerð Svörtu
sanda.
„Bara að fá að vera inni í herbergi
með manni sem veit allt. Allt saman.
Og geta þá viljandi skrifað inn hluti
sem eiga að fara illa hjá lögreglunni,
en þá ekki vegna þess að við vissum
ekki betur. Og það er búið að vera
ógeðslega gaman að vinna með
honum. Hann er alger gersemi þessi
maður, sko.“
Það kom Baldvin nokkuð á óvat
þegar Svörtu sandar urðu í síðustu
viku einn af sex sjónvarpsþáttum
sem valdir voru til frumsýningar á
Berlinale-kvikmyndahátíðinni.
„Í raun og veru kemur þetta á
óvart. Ég veit að þetta er ekki hefð-
bundinn krimmaþáttur og glæpa-
þættir hafa einhvern veginn ekkert
verið að sigla inn í þennan frumsýn-
ingarpakka Berlinale,“ segir Baldvin
sem þakkar heiðurinn einmitt ekki
síst hinni óhefðbundnu nálgun.
„Og hvernig þættirnir eru ein-
hvern veginn meira dramaþættir
heldur en spennumorðsaga. Það
féll greinilega mjög vel í kramið
hjá þeim. Þessi „slow burner“-
pæling hjá okkur. Þannig að það er
bara ógeðslega gaman og þau voru
bara rosalega hrifin og við fengum
voðalega fallegan tölvupóst með
viðbrögðunum frá Berlinale,“ segir
Baldvin og lætur þess getið að
Svörtu sandar voru fyrsta serían
af þessum sex sem voru valdar á
hátíðina úr hópi f leiri hundruð
þáttaraða. „Það er skemmtilegt og
svona smá boozt fyrir mann. Eftir
margra ára vinnu.“ n
Hægur bruni endar á því að upp úr sýður
Þótt Þór
Tulinius hlusti
hér grímulaus
á leikstjórann
virðist hann
eiga sér leyndar-
mál í hlutverki
útbrunnu lögg-
unnar Ragnars.
Balvin kaus að fara óhefðbundnari leiðir með morðmálið og skemmti sér vel á meðan. MYNDIR/ JULIETTE ROWLAND
Baldvin segir þau Steinunni Ólínu eiga ótrúlega fallegt og skemmtilegt sam-
band, en hún þykir fara á kostum í hlutverki móður aðalpersónunnar.
Höfundar
Svörtu sanda,
aðalleikkonan
Aldís Amah,
löggan Ragnar,
og leikstjórinn
Baldvin Z.
Baldvin sá strax
möguleika á
hægum bruna í
myrku umhverfi
sandanna.
46 Lífið 22. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 22. janúar 2022 LAUGARDAGUR