Fréttablaðið - 22.01.2022, Side 96

Fréttablaðið - 22.01.2022, Side 96
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is Margrétar Kristmannsdóttur n Bakþankar GÓÐGERLAR Fyrir 50 ára og eldri Það eru margar vörður á jafnréttis- leiðinni og ótrúlegt að ekki sé nema rúm öld síðan konur fengu jafn sjálfsögð mannréttindi og jafnan rétt til menntunar og kosningarétt – ekki síst fyrir baráttu Kvenrétt- indafélags Íslands. Rauðsokkahreyfingin kemur síðan fram 1970, en á þessum árum spruttu upp róttækir kvennahópar víða um lönd – enda var ríkjandi viðhorf að aðalstarf kvenna ætti að vera inni á heimilum. Kvenna- baráttan varð í kjölfarið sýnileg og höfuðáherslan var á vitundar- vakningu um stöðu kvenna. Sú barátta náði hámarki með Kvenna- frídeginum árið 1975 þegar konur lögðu niður störf til að sýna fram á mikilvægi starfa þeirra utan og innan heimilisins. Áfram lá leiðin og risavörður á borð við kjör Vigdísar Finnboga- dóttur 1980 – Kvennaframboðið 1982 og Kvennalistann ári síðar litu dagsins ljós. Þá voru áherslur kvenna komnar inn í sali Alþingis og ráðamenn þjóðarinnar komust ekki hjá að hlusta á áherslur kvenna. Mín kynslóð hefur síðan haldið áfram að marka leiðina – en aldrei má gleyma að við stöndum allar á herðum þeirra kvenna sem háðu baráttuna á undan okkur. Samanlagður árangur er að Ísland mælist efst á alþjóð- legum jafnréttislistum. Máttum við ekki vel við una? En svarið var nei og við vorum vaktar upp af vondum draumi þegar ungar konur hófu af krafti á ný baráttu gegn kynbundnu ofbeldi í kjölfarið á #MeToo. Þolendaskömm og gerendameð- virkni skyldi aldrei líðast. Þessar ungu konur hafa hlaðið í risavörðu á undanförnum vikum og atburða- rásin mun hafa varanleg áhrif. Við munum ekki síst fá öruggara og manneskjulegra samfélag. Takk stelpur – takk allar sem hafa varðað leiðina! n Takk stelpur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.