Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202146
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S:551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker 900–1600L
Salt og sanddreifari í tveim
stærðum fyrir stóra pallbíla og
minni vörubíla. Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 380–550L
Salt og sanddreifarari í tveim
stærðum, fyrir minni pallbíla.
Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 600 TR
Rafdrifinn kastdreifari
fyrir dráttarvélar m/öflugum
efnisskömmtunarbúnaði.
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegur í
185–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótönn fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanleg í
165–240 cm breidd.
Hilltip Fjölplógur MVP
Fjölplógur fyrir ameríska
pallbíla t.d. RAM 3500,
GMC 3500 og FORD 350.
LÍF&STARF
Í landbúnaðarkafla stjórnar
sáttmála nýrrar ríkisstjórnar er
afdráttarlaust kveðið á um að
áhersla verði lögð á að tryggja
fæðuöryggi á Íslandi.
Tiltekið er að við endurskoðun á
búvörusamningnum verði áhersla á að
efla innlenda landbúnaðarframleiðslu,
með aukinni grænmetisframleiðslu í
ylrækt og útiræktun. Axel Sæland,
formaður deildar garðyrkjubænda
hjá Bændasamtökum Íslands, segir
stjórnvöld loksins farin að sjá það
sem garðyrkjan hefur lengi barist
fyrir.
Sérstaklega er kveðið á um að
aukinni framleiðslu í ylrækt verði
náð með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á
raforkuverði. Ekki er útlistað í hverju
stuðningurinn við útirækt muni felast.
Endurskoðun á búvörusamningi er
næst fyrirhuguð á árinu 2023.
Lykilákvörðun hjá ríkisstjórninni
fyrir ylræktina
Axel gleðst fyrir hönd
garðyrkjubænda yfir þessum
ákvæðum stjórnarsáttmálans.
„Stjórnvöld eru greinilega farin
að sjá það sem garðyrkjan hefur
barist fyrir í áraraðir. Baráttan fyrir
sanngjörnu verði á dreifikostnaði
raforku hefur verið okkur í ylræktinni
hjartans mál í áratugi. Garðyrkjan
er á sama dreifingartaxta og hvert
annað íbúðarhús í landinu þrátt
fyrir að vera stórnotendur á raforku.
Núverandi búvörusamningur er
á þann veg, að ríkið setur 375
milljónir í stuðning til greinarinnar,
eða allt að 95 prósenta niðurgreiðslu.
Þessum pening er svo deilt niður á
garðyrkjubýli eftir því hvað þau
nota mikla lýsingu. Hingað til hafa
greiðslurnar dugað til 60–80 prósenta
af kostnaði garðyrkjubýlanna við
dreifingarkostnað. Staðan er því
þannig að því fleiri gróðurhús sem
þú byggir – og meira er lýst – því
minna fá garðyrkjubændur á móti.
Kerfið er því letjandi í grunninn
Að ríkisstjórnin ætli að festa
niðurgreiðsluhlutfallið gefur
greininni fyrirsjáanleika. Það
verður mikill munur fyrir bændur
að fara inn í veturinn og vita hver
dreifingarkostnaðurinn verður. Slíkt
fyrirkomulag gefur okkur kost á að
setja fram skýrari framtíðarsýn og
auðveldar nýjum aðilum að koma
inn í greinina – sem og þeim sem
fyrir eru að stækka og gera betur.
Nýliðun er greininni afar nauðsynleg
og þeir sem eru áhugasamir verða að
sjá tækifæri í því að að stunda ræktun
á Íslandi,“ segir Axel.
Margfalt lægra sótspor á Íslandi
Axel bendir á, að vegna þess að
íslenskt ylræktað grænmeti sé með
margfalt smærra kolefnisspor en
innflutt þá sé eðlileg þróun á tímum
loftslagsbreytinga að stuðningurinn
við greinina aukist. „Hér höfum við
allt til alls til að vera með hágæða
vöru með mjög lágt kolefnisfótspor,
græna raforku, gróðurhúsin hituð upp
með hveravatni, plönturnar vökvaðar
með hreinu vatni og starfsfólk fær
sómasamlega borgað fyrir sitt
vinnuframlag. Hér á landi er notkun
varnarefna nánast engin, það getum
við þakkað íslenskri náttúru þar
sem lítill hluti skordýra sem herja
á ræktun þrífst hér á landi. Þar af
leiðandi er mjög auðvelt að notast við
náttúrulegar varnir í gróðurhúsunum.
Íslenskt grænmeti er svo
sannarlega orðið partur af umræðunni
um fæðu- og matvælaöryggi landsins.
Neytendur eru orðnir vanir því að
fá íslenskt gæða grænmeti allt árið
og ákvörðun ríkisstjórnarinnar mun
hjálpa mjög til með að verðlag sé
sanngjarnt og varan ávallt til.“
Útiræktin þarf líflínu
Axel segir að staða íslenskra
garðyrkjubænda í útiræktun
grænmetis sé að ýmsu leyti skrýtin.
„Útiræktendur hafa átt undir högg
að sækja í mörg ár. Þeim hefur
fækkað og nýliðun verið lítil.
Íslenskt útiræktað grænmeti er þó
orðið afar vinsælt hjá landsmönnum
en alltaf spurning hvað er hægt að
verðleggja vöruna hátt og því er
mikilvægt að ríkisstjórnin stígi
inn í þessa stöðu. Með veglegum
stuðningi til að halda verðlaginu
sanngjörnu og um leið að bændur
sjái framtíð í starfi sínu og þannig
væri komin hvatning til nýliðunar
í greininni.
Mikil tækifæri felast í því að
rækta meira og fleiri tegundir, við
höfum frjósaman jarðveg og nóg
af landi til ræktunar. Þó svo að
ræktunartímabilið sé stutt þá hjálpar
mjög hvað dagarnir eru langir á
sumrin og plönturnar nýta sér það
svo sannarlega til vaxtar. Sökum
lágs meðalhita á Íslandi er vöxtur
hægur og þéttur, sem verður til
þess að næringarinnihald er mikið
í grænmetinu. Svo er ástæða til að
nefna það enn og aftur að skordýrin
þrífast illa hér á landi og notkun
varnarefna því mjög lítil miðað við
meginland Evrópu.“
Lífrænt ræktað grænmeti þarf
meira pláss í umræðunni
Axel hefur einnig sérstakar
áhyggjur af stöðu lífrænnar
ræktunar á íslensku grænmeti
og segir bændur ekki hafa náð
að fylgja eftir neyslumynstri
þjóðarinnar þegar kemur að
lífrænt ræktuðum matvælum. „Í
þeim geira erum við talsvert á eftir
nágrannaþjóðum okkar. Það kom
berlega í ljós í skýrslu sem unnin
var af Erlu Hjördísi Gunnarsdóttur,
samskiptastjóra Bændasamtakanna,
fyrir Samband garðyrkjubænda um
samanburð á milli Íslands og hinna
Norðurlandanna,“ segir hann.
Axel nefnir þrjú atriði sem ástæð-
ur fyrir því hversu langt á eftir við
erum þegar kemur að lífrænni
ræktun. „Fyrst er það viljaleysi
stjórnvalda, í öðru lagi áhugaleysi
núverandi ræktenda og í þriðja lagi
er það svo aðgangur að lífrænum
áburði. Nú ætlar ríkisstjórnin að
setja sér heildstæða, tímasetta
aðgerðaráætlun til að auka lífrænan
búskap í landinu. Það verður von-
andi til þess að bændur sjái meiri
tækifæri í lífrænum búskap. Hvort
sem það verða núverandi bændur
sem færi sig yfir í lífræna hlutann,
lífrænir bændur stækki við eða það
sem væri frábært; að nýliðun yrði í
þessum hópi.
Síðustu ár hefur verið góð
aðsókn á lífrænu brautina í
Garðyrkjuskólann að Reykjum í
Ölfusi. Það bendir til að áhuginn sé
að vakna og fólk farið að sjá tækifæri
í að rækta lífrænt. Því er það afar
jákvætt að stjórnvöld ætli sér að bæta
stöðu bænda í lífrænum búskap.“
Spennandi kjörtímabil fram
undan
Axel telur það spennandi stöðu
að fara inn í kjörtímabil nýrrar
ríkisstjórnar núna þegar það
liggur fyrir að styrkja eigi stöðu
grænmetisframleiðslu í landinu.
„Við í nýrri garðyrkjudeild
Bændasamtaka Íslands munum
vinna heilshugar að bættum
hag garðyrkjubænda í landinu,
með Svandísi Svavarsdóttur,
nýjum landbúnaðarráðherra við
stjórnvölinn.
Ég sé ekki betur en að garðyrkjan
sé að tikka í öll box nýs ráðherra;
hún er loftslagsvæn, með lágt
kolefnisfótspor, hefur mikla
möguleika á að stækka og bæta við
sig mannafla, er partur af fæðu- og
matvælaöryggi þjóðarinnar – og hér
höfum við mikla möguleika á því
að verða mun sjálfbærari í okkar
grænmetisneyslu.“ /smh
Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands og blómabóndi á Espiflöt. Mynd / smh
Fæðuöryggi á að tryggja á kjörtímabili nýrrar ríkisstjórnar:
Lykilákvörðun hjá ríkisstjórninni fyrir ylræktina
– segir Axel Sæland, formaður deildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum Íslands