Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 1
24. tölublað 2021 ▯ Fimmtudagur 16. desember ▯ Blað nr. 601 ▯ 27. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Alifuglakjöt er greinilega búið
að festa sig í sessi sem langvin-
sælasta kjötafurðin á Íslandi
samkvæmt tölum mæla borðs
landbúnaðarins. Af því voru seld
rétt tæp 9.000 tonn á tólf mánaða
tímabili.
Þegar litið er yfir sölutölur á
kjöti frá afurðastöðvum er ljóst
að alifuglakjöt er mest selda kjöt
afurðin á Íslandi með 8.993.119 kg
(rétt tæpum 9 þúsund tonnum) á tólf
mánaða tímabili frá októberlokum
2020 til októberloka 2021.
Alifuglakjötssalan 27,3% meiri
en kindakjötssalan
Þrátt fyrir 1,3% samdrátt í sölu er
alifuglakjötið með yfirburði yfir
söluna á kindakjötinu sem nam á
sama tíma 6.537.965 kg. Samt var
4,5% aukning í sölu á kindakjöti
á milli ára. Var kindakjötssalan
því rúmlega 2.455 tonnum minni
en salan á alifuglakjötinu, eða sem
nemur um 27,3%.
Alifuglakjötið sigldi fram úr
kindakjötinu árið 2007
Það var reyndar árið 2007 sem ali
fuglakjötið fór fram úr kindakjöts
neyslunni. Þá var neyslan á kinda
kjöti 22,3 kg að meðaltali á mann
en alifuglakjötið með 24 kg. Síðan
2007 hefur alifuglakjötið alltaf
verið með meiri neyslu og fór mest
í 28,2 kg á mann árið 2017, þegar
kindakjötið var með 20,6 kg.
Á 12 mánaða tímabili frá
októberlokum 2020 til októberloka
2021 var meðalneyslan á alifugla
kjöti 24,5 kg á mann, en kindakjöt
ið er komið niður í 17,2 kg. Eftir
2015 verður þó að hafa fyrirvara
um mögulega skekkju í tölum um
neyslu á mann vegna ferðamanna.
Neyslutölur geta því verið ögn
hærri en raunin er.
Svínakjötið er fast á eftir kinda
kjötinu í sölu með 6.474.243 kg.
Hefði ekki komið til 4% samdrátt
ar í sölu á svínakjöti hefði salan á
því farið vel fram úr kindakjöts
sölunni.
Salan á nautakjöti jókst um 5%
Í fjórða sæti í kjötsölunni er naut
gripakjöt. Af því voru seld frá afurða
stöðvum 4.858.998 kg á tólf mánaða
tímabili. Þar hefur orðið marktæk
aukning í sölu, eða sem nemur 5%.
Aukningin í sölu nautakjöts helst
nokkuð vel í hendur við aukningu
í framleiðslunni sem var líka 5%
á milli ára. Þannig voru framleidd
4.874.635 kg af nautgripakjöti á
tólf mánaða tímabili. Meðalneysla
á mann á þessu tímabili var 13,1 kg.
Athygli vekur að þegar tölur
Hagstofu Íslands um neyslu á mann
frá 1983 til 2015 og framreikning
ur Bændablaðsins á þeim tölum
til októberloka 2021 eru skoðaðar,
kemur í ljós að mjög litlar sveiflur
hafa orðið í neyslu á nautakjötinu
allt frá árinu 1985. Hefur hún legið
á bilinu 10,5 til 114,1 kg. Árið 2011
fór nautakjötsneyslan í fyrsta sinn yfir
13 kg á mann og hefur haldist yfir
þeirri tölu síðan nema á árinu 2020
þegar hún fór niður í 12,5 kg á mann.
Þótt hrossakjöt hafi greinilega
aldrei verið mjög ofarlega á vin
sældalista íslenskra neytenda, þá
seldust samt 621.353 kg (621 tonn)
á tólf mánaða tímabili fram til
októberloka. Meðalneysla á mann
var þá 1,8 kg. Það vekur samt
athygli að þar hefur orðið verulegur
samdráttur í sölu, eða sem nemur
15,5%. Á tímabilinu frá ágústbyrj
un til októberloka var samdráttur
inn hlutfallslega enn meiri, eða
20,7%. /HKr.
– Sjá nánar bls. 8
Alifuglakjötið hefur verið mest selda
kjötafurðin á Íslandi frá árinu 2007
– Kindakjötið enn í öðru sæti og með söluaukningu á 12 mánaða tímabili, en svínakjötið er þar skammt á eftir
Röð Afurð 1 mán 3 mán 12 mán Δ % 1 mán Δ % 3 mán Δ % 12 mán
1 Alifuglakjöt 751.933 2.318.203 8.993.119 -3,5% -0,8% -1,3%
2 Kindakjöt 1.151.062 2.325.808 6.537.965 18,4% 23,5% 4,5%
3 Svínakjöt 521.692 1.652.122 6.474.243 -15,8% -4,7% -4,0%
4 Nautgripakjöt 398.160 1.224.537 4.858.998 4,1% 4,6% 5,0%
5 Hrossakjöt 54.196 140.557 621.353 -34,6% -20,7% -15,5%
Samtals 2.876.980 7.661.228 27.485.678 1,5% 5,0% 0,0%
*12 mánaða sala miðast við frá lokum október 2020 til októberloka 2021
Afurðasala á Íslandi 2021* - Sala frá afurðastöðvum í kílógrömmum (kg.)
50
– 51
28
Veðja á Nígeríu
52–55
Erfitt að standa undir því að
vera kallaður dýraníðingur
Pólsk jól
POLSKIE BOŻE NARODZENIE