Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 103
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 103
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
Útvegum olíuverk og spíssa í flestar gerðir véla
Glerárgata 34b, 600 Akureyri • S4611092 • asco@asco.is
Alternatorar og startar í miklu úrvali
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR
gerðir dráttarvéla
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Vefverslun:
Khvinnufot.is
Tilboðsverð:
19.900 kr.
Við leggjum áherslu á góða
þjónustu við landsbyggðina.
Frábærir kuldagallar
frá Elka Rainwear!
Mjög góð vatnsvörn,
öndun og vindvörn.
Gallinn er á tilboðs-
verði fram að jólum.
Frábær jólagjöf!
Hver er sagan að baki ungs drengs sem vex upp í
Vestmannaeyjum, eitt margra barna fátækra foreldra, sker
sig úr hópnum, gerist tónskáld og verður einn af vinsælustu
dægurlagahöfundum landsins?
Í Þeir hreinu tónar er dregur Kristín Ástgersdóttir upp mynd
af lífi og ævistarfi Oddgeirs Kristjánssonar, sem í gegnum
brotsjó 20. aldarinnar, sóttir og styrjaldir samdi mörg sinna
ljúfustu laga.
Oddgeir lifði á öfgatímum 20. aldarinnar, með tilheyrandi
farsóttum, kreppum og heimsstyrjöldum. Þrátt fyrir erfiða tíð
gleymdi fólkið í Eyjum ekki að skemmta sér, þegar djassinn
dunaði, vísurnar flugu og lög urðu til.
Oddgeir var mikill hugsjónamaður og barðist fyrir réttlátu
samfélagi þó svo að tónlistin væri alltaf hans ær og kýr. Hann
starfaði sem tónlistarkennari, stjórnaði lúðrasveitum og samdi
tónlist fyrir Þjóðhátíð í Eyjum.
Meðal af vinsælli lögum hans eru Bjartar vonir vakna,
Ágústnótt, Heima og síðast en ekki síst Ég veit þú kemur, sem
er ein skærasta perla íslenskrar dægurtónlistar fyrr og síðar.
Í bókinni er fjöldi ljósmundi sem tengjast ævi og starfi
Oddgeirs. Útgefandi er bókaútgáfa Sögur. /VH
Þeir hreinu tónar:
- Ævisaga Oddgeirs Kristjánssonar
Samið við Loftkastalann um
smíði kirkju í Grímsey
Undirbúningur fyrir byggingu
nýrrar kirkju í Grímsey er
vel á veg kominn. Vinna við
hönnun hennar stendur yfir. Á
dögunum skrifaði sóknarnefnd
Miðgarðakirkju undir samning við
smíðaverkstæðið Loftkastalann um
smíði nýrrar kirkju.
Þá hefur Hjörleifur Stefánsson
arkitekt verið ráðinn byggingarstjóri
og Arna Björg Bjarnadóttir verk-
efnisstjóri Glæðum Grímsey verið
fengin til að hafa yfirumsjón með
verkefninu. Allir þessir aðilar eiga
það sameiginlegt að hafa komið að
minjavörsluverkefnum og endurgerð
gamalla húsa með einum eða öðrum
hætti.
Nýja kirkjan mun hafa augljósa
skírskotun til þeirrar eldri en verður
aðeins stærri vegna nútíma krafna.
Einnig er horft til þess að nýja kirkjan
nýtist til fleiri athafna en helgihalds.
Áætlað er að smíða hana að
hluta til í landi en reisa hana síðan í
Grímsey í sumar.
Bygging nýrrar kirkju er viða-
mikið samfélagslegt verkefni sem
Grímseyingar leggja nú allt kapp
á að verði að veruleika.
Þegar hafa safnast fjármunir
til byggingar hinnar nýju kirkju
og eru eyjaskeggjar afar þakklátir
öllum þeim sem verkefninu hafa
lagt lið. Þeir standa þó frammi fyrir
þeirri áskorun að enn vantar tölu-
vert fjármagn til uppbyggingar-
innar.
Þeir sem vilja leggja söfnun
fyrir nýrri kirkju lið er bent á reikn-
ing Miðgarðakirkju, 565-04-250731,
kt. 4602692539. /HKr.
Við Miðgarðakirkjugarð í Grímsey. Frá vinstri Arna Björg Bjarnadóttir verkefnisstjóri, Inga Lóa Guðjónsdóttir og
BÆKUR& MENNING