Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 79
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 79
Ein af fimm helstu ógnum við líf-
fræðilega fjölbreytni í heiminum í
dag er ágengar framandi lífverur.
Þetta kemur fram í mjög svartri
og umfangsmikilli skýrslu milli-
ríkjanefndar Sameinuðu þjóð anna
um líffræðilega fjöl breytni og þjón-
ustu vistkerfa (IPBES) um stöðu
vistkerfa sem kom út árið 2019.
Samkvæmt 65. gr. náttúru
verndar laga skal sá sem ber ábyrgð
á dreifingu lifandi lífvera gæta sér
stakrar varúðar til að koma í veg fyrir
að dreifingin dragi úr líffræðilegri
fjölbreytni lífríkis ins sem fyrir er.
Hafa skal í huga að það er langein
faldast og langódýrast að eiga við
mögulega ágengar tegundir áður en
þær fara í veldisvöxt og auðvitað væri
langbest að flytja mögulega ágengar
tegundir yfirhöfuð ekki á milli landa.
Hafa ber varúðarregluna í huga og
horfa til nágrannalanda sem hafa ratað
í vandræði með ágengar tegundir í
vistkerfum sínum.
Tilfinningaþrunginn ágreiningur
Ljóst er að uppi eru mjög mismunandi
skoðanir á því hvort gróðursetning
og dreifing nokkurra trjátegunda hér
á landi muni draga úr líffræðilegri
fjölbreytni og skaða þannig okkar
viðkvæmu náttúru þegar fram líða
stundir. Ágreiningurinn er ekki aðeins
bundinn við einstaklinga sem hafa
áhuga á náttúruvernd og landbótum
eða fræðimenn á sviði skógræktar
og líffræði, heldur nær hann einnig
til stofnana ríkisins. Ágreiningurinn
hvílir sem skuggi á umræðu um upp
græðslu og endurheimt vistkerfa.
Ég er sjálfur áhugamaður um
skógrækt og landgræðslu, hef gróður
sett framandi trjátegundir undanfarna
áratugi og talið þær afar gagnlegar.
Með vaxandi þekkingu um hugsan
leg neikvæð áhrif þeirra finnst mér
nauðsynlegt að staldrað sé við til að
hlusta á raddir aðila sem hvað mesta
þekkingu hafa á náttúru landsins. Ég
skil að þetta viðhorf valdi tilfinninga
legu uppnámi hjá ræktunarfólki sem
kann að meta kosti margra framandi
tegunda. En getum við leyft okkur að
hunsa vísindin?
Brýnt að fá leiðbeiningar
Áform um endurheimt vistkerfa eru
umfangsmeiri nú en áður og meira
fjármagni er ráðstafað úr sameigin
legum sjóðum landsmanna til þessa
mikilvæga viðfangsefnis, bæði til
að binda kolefni og bæta landkosti.
Þetta er eitt áhersluatriða í stjórnar
sáttmála núverandi ríkisstjórnar. Við
þessa endurheimt er áformað að nýta
fjölmargar erlendar tegundir, til að
mynda bæði stafafuru og sitkagreni,
sem hafa reynst öflugar tegundir til
skógræktar á Íslandi.
Aldrei hefur því verið brýnna að
afla skýrra leiðbeininga um notkun
framandi tegunda sem hugsanlega eru
ágengar, leiðbeininga sem byggja á
bestu vísindalegri þekkingu og var
úðarreglunni. Hér þarf að beita vís
indalegri þekkingu og allir málsaðilar
þurfa að koma upp úr skotgröfun
um. Leiðarstefið ætti að vera opið og
fordómalaust samtal um líffræðilega
fjölbreytni.
Þetta er viðfangsefni sem íslensk
stjórnvöld hafa sett sér að leysa. Í
nýlegum stjórnarsáttmála er áréttað
að endurskoða þurfi stefnu um líf
fræðilega fölbreytni.
Beitum vísindunum
Ísland á aðild að gagnagrunninum
NOBANIS sem var stofnaður fyrir
tilstuðlan Norrænu ráðherranefndar
innar. Þar er sitkagreni skilgreint sem
ágeng tegund í Danmörku, Noregi og
Svíþjóð og mögulega ágeng tegund
á Írlandi. Stafafuru hefur verið lýst
sem einni ágengustu trjátegund
jarðar og í NOBANIS er hún er skil
greind sem framandi ágeng tegund í
Danmörku og Svíþjóð og sem mögu
lega ágeng tegund á Írlandi, Noregi
og á Íslandi. Ýmsar aðrar rannsóknir
og reglur sem beitt er erlendis styðja
þá tilgátu að framangreindar tegundir
geti verið ágengar. Ný rannsókn
Pawel Wasowicz, grasafræðings hjá
Náttúrufræðistofnun, ber að sama
brunni.
Leysum ágreining
Stjórn Landverndar telur, að í ljósi
þess að fram hafa komið rökstuddar
ábendingar um að stafafura og
sitkagreni kunni mögulega að verða
ágengar í íslenskri náttúru, sé bæði
gagnlegt og nauðsynlegt að setja fram
leiðbeinandi reglur um notkun þeirra.
Stjórn Landverndar hefur því sent
erindi til stjórnvalda með ósk um að
þau beiti sér fyrir því að stafafura og
sitkagreni, verði tekin til umfjöllunar
og mats hjá sérfræðinganefnd um inn
flutning og ræktun útlendra plöntu
tegunda og hjá Umhverfisstofnun.
Jafnframt er mælst til þess að nefndin
greini hvort tilefni sé til að setja skil
yrði fyrir ræktun stafafuru og sitka
grenis og í kjölfarið vinna leiðbein
andi reglur um notkun þeirra.
Við erum sannfærð um að
viðfangsefnið sé vel leysanlegt.
Yfirveguð ákvörðun sem byggð er á
vísindum er lykillinn að ásættanlegri
lausn fyrir alla aðila.
Tryggvi Felixson,
formaður Landverndar
LÍF&STARF
HÁ verslun ehf tók við umboði Husqvarna byggingavörum á
Íslandi þann 11. júní.
• Steinsagir
• Kjarnaborvélar
• Jarðvegsþjöppur
• Sagarblöð
• Kjarnaborar
Víkurhvarfi 4 - 203 Kópavogur
Opið mán. - fös. kl. 8-17.
S. 588-0028
haverslun@haverslun.is
haverslun.is
Þjónustuverkstæði og varahlutir
Husqvarna K970
15,5 cm sögunardýpt
Husqvarna K3600
Vökvasög
Sögunardýpt 27cm
Íslenskar gjafagrindur
Vélsmiðja Ingvars Guðna ehf. Vatnsenda Flóahreppi
vig.is - vig@vig.is - S: 486 1810
Bendum á söluaðila okkar um land allt, www.vig.is
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Í 20 ÁR.
LESENDARÝNI
Sýnum fyrirhyggju – metum
áhrif stafafuru og sitkagrenis
Tryggvi Felixson.