Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202142
Dagana 9.–11. nóvember var haldin
norræn ráðstefna kjúkl inga- og
eggjabænda á Norður löndunum,
Nordic Poultry Conference (NPC),
rétt fyrir utan Osló í Noregi.
Ráðstefnan hefur aldrei verið
fjölmennari en um 240 manns úr
greinunum mættu til leiks. Frá
Íslandi fylgdust fulltrúar frá Ísfugli,
Líflandi, Bændasamtökunum,
Kjúklingabúinu Vor og MAST með
því sem fram fór.
Ráðstefnan er haldin á hverju
ári en var frestað á síðasta ári
og haldin á rafrænu formi vegna
heimsfaraldursins. Það voru
þó ekki eingöngu fulltrúar frá
Norðurlöndunum sem mættu á
ráðstefnuna því einnig komu aðil
ar sem tengjast geiranum frá fleiri
Evrópuþjóðum. Á hverju ári er
ákveðið þema á ráðstefnunni eins
og dýravelferð, dýraheilsa, sjálf
bærni, matvælaöryggi, matvæla
stefnur, sérstakar sjúkdómsáskor
anir og fleira.
Bera saman bækur sínar
Farið var yfir marga þætti þessa tvo
ráðstefnudaga, eins og til dæmis
fuglaflensu, sem hefur víða numið
lönd og valdið miklum skaða, nýja
möguleika í fóðrun fugla, farið var
yfir nýjar og umdeildar aðferðir við
kyngreiningar ásamt sjúkdómsstöðu
á Norðurlöndunum. Seinni daginn
var ráðstefnunni skipt upp í sex stofur
þar sem hægt var að velja til dæmis
sérstofu fyrir kalkúnaframleiðslu,
eggjaframleiðslu, kjúklingarækt,
stofnahald, fóðrun og dýralækna svo
dæmi séu tekin.
„Ísland er aðili að samtökum
alifuglabænda á Norðurlöndunum.
Þeirra aðalverkefni ár hvert er að
halda ráðstefnu um alifuglarækt. Eins
og alltaf er ráðstefnan afar áhuga
verð. Þar eru margvíslegir fyrirlestr
ar um nýjar aðferðir í fuglarækt,
hvað er efst á baugi hverju sinni,
heilsufar fugla á Norðurlöndunum
en þar trónir Ísland á toppnum með
besta heilbrigðið og margt fleira.
Dýravelferðarmál er atriði sem fær
alltaf töluverða umfjöllun.
Ráðstefnuna sækja flestir sem
hafa snertiflöt við alifuglarækt, ráðu
nautar, bændur, dýralæknar, rekstr
araðilar fyrirtækja í alifuglarækt,
tækjasalar og vísindafólk svo eitt
hvað sé nefnt. Gefst þarna kærkomið
tækifæri til að bera sama bækur við
kollega okkar á Norðurlöndunum.
Ráðstefnan er okkur alifugla
ræktendum afar fróðleg og mikil
væg,“ segir Jón Magnús Jónsson á
Reykjabúinu.
/ehg
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar eftir að leigja vönduð
sumarhús eða orlofsíbúðir fyrir félagsmenn sína.
Leitað er eftir húsnæði víðs vegar um landið. Eignirnar þurfa að vera
snyrtilegar, fullbúnar húsgögnum og öðrum viðeigandi búnaði.
Áhugasamir sendi upplýsingar á hjukrun@hjukrun.is
eða hafi samband við skrifstofu í síma 540 6400.
Átt þú orlofseign sem þú vilt leigja?
UTAN ÚR HEIMI
Ráðstefna kjúklinga- og eggjabænda á Norðurlöndunum (NPC):
Mikilvægt og gott samstarf hjá
kjúklinga- og eggjabændum
Undirbúningshópurinn fyrir Nordic Poultry Conference sem haldin var rétt fyrir utan Osló í nóvember en á næsta
ári á svipuðum tíma verður ráðstefnan haldin í Álaborg í Danmörku. Myndir / NPC
Venju samkvæmt er haldin söngvakeppni milli Norðurlandanna á aðalkvöldi
ráðstefnunnar og þó að íslenski hópurinn hafi talið brotabrot af þátttakendum
hinna keppnislandanna bar hann glæsilegan sigur úr býtum með laginu Ég
er kominn heim.
Þegar íslenski hópurinn steig á svið á aðalkvöldinu og söng Ég er kominn
heim, tók salurinn vel undir og kveikti ljós á símunum sínum sem skapaði
skemmtilega stemningu.
Staðfest tilfelli fuglaflensu í
haust hafa aldrei verið fleiri á
Bretlandseyjum. Yfir hálfri millj-
ón alifugla hefur verið lógað á
síðustu mánuðum og settar hafa
verið reglur sem skylda að öllum
alifuglum sé haldið innandyra.
George Eustice, umhverfis
ráðherra Breta, sagði í ræðu í breska
þinginu fyrir skömmu að búið væri að
staðfesta að fuglaflensa hefði komið
upp á 36 alibúum á Bretlandseyjum
í haust og að búist væri við að sú
tala ætti eftir að hækka. Í kjölfarið er
búið að farga 500 þúsund alifuglum.
Fjöldi smita síðastliðið haust var
26 og því greinilegt að illa gengur
að hefta útbreiðslu flensunnar en
helsta smitleið hennar er talin vera
með farfuglum. Rannsóknir sýna
að hlutfall smitaðra farfugla með
fuglaflensu er hátt. Fyrir skömmu
fannst örn (Haliaeetus albicilla),
af fágætri tegund, dauður vegna
smits á Skye við norðvesturströnd
Skotlands. Talið er að örninn hafa
lagt sér fuglaflensudauðan farfugl
til munns.
Bretlandseyjar er ekki eina
landið þar sem tilfelli fuglaflensu
eru á uppleið því svipaða sögu er
að segja frá mörgum löndum innan
Evrópusambandsins og víðar um
heim.
Vegna smithættu hefur garð
eigendum og öðrum sem hafa gaman
af því að gefa villtum fuglum bent á
að gæta fyllsta hreinlætis. /VH
Bretlandseyjar:
Fuglaflensusmit aldrei
verið fleiri