Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202112 Alls bárust 26 nöfn í nafnasamkeppni á nýjan gangnamannaskála sem tekin var í notkun á Grímstunguheiði í haust. Kosið verður um fimm þeirra: Brík, Gedduskáli, Heiðahöllin, Skjól og Vegamót. Nýi gangnamannaskálinn á Grímstunguheiði var reistur í fyrra- sumar og haust og kemur í stað tveggja skála, Öldumóðuskála og Álkuskála. Skálinn er um 500 fermetrar að stærð, samansettur úr tíu skálaeiningum með 29 gistiherbergjum, salernum, sturtum, matsal og eldhúsaðstöðu. Einnig var reist nýtt hesthús sem er um 120 fermetrar að stærð. Gistipláss í skálanum er fyrir 60 manns og hesthúsið er fyrir um 70 hross. Í síðasta Bændablaði kom fram að skálinn hefði fengið nafnið Vegamót en það var einungis fjallskiladeildin sem hafði samþykkt það nafn. Sveitarstjórn frestaði ákvörðun um nafn og leggur til að kostið verði um nöfnin fimm. /MÞÞ Kári Gautason, sérfræðingur í úrvinnslu hagtalna hjá Bænda­ samtökum Íslands og varaþing­ maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, tók sæti á Alþingi strax í byrjun þinghalds og hefur lagt fram sitt fyrsta þingmál; til­ lögu til þingsályktunar um eflingu kornræktar á Íslandi. Í tillögunni er gert ráð fyrir að sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra skipi starfshóp sem geri tillög- ur til þess að efla kornframleiðslu á Íslandi. Í starfshópnum eigi sæti tveir fulltrúar frá Landbúnaðarháskóla Íslands sem hafi sérfræðiþekk- ingu á jarð- og kornrækt, einn frá Bændasamtökum Íslands, einn frá Samtökum iðnaðarins og einn frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytinu. Gert er ráð fyrir að tillögurn- ar liggi fyrir við upphaf endurskoðun- ar gildandi búvörusamninga, fyrir árslok 2022. Kornræktin færist norðar Kári segir markmið tillögunnar meðal annars að undirbúa Ísland undir þá þróun að kornrækt muni færast norðar á bóginn. „Það munu vera fyrirsjáanleg viðbrögð við hlýn- andi heimi. Ég tel því einsýnt að kornrækt mun eflast næstu áratugi, en ég tel jafnframt að með skyn- samlegum aðgerðum geti ríkið flýtt mikið fyrir þeirri þróun. Síðustu ár hefur verið að mínum dómi augljóst að það þurfi fleiri stoðir undir búsetu í sveitum heldur en eingöngu þessar hefðbundnu greinar sem byggjast á búfjárrækt. Ástæðan er viðvarandi framleiðniaukning í landbúnaði sem leiðir til þess að færri bændur þarf til að framleiða kjöt og mjólk,“ segir Kári. Hann segir að það hafi komið sér ánægjulega á óvart hversu breiður hópur þingmanna úr fimm flokkum var tilbúinn að standa með honum að tillögunni. En auk stjórnarþingmanna eru þingmenn úr Flokki fólksins og Viðreisn skrifaðir fyrir tillögunni. Aðstæður hagfelldari en ætla mætti Í greinargerð með tillögunni segir meðal annars, að í skýrslu um fæðuöryggi á Íslandi, sem unnin var fyrir sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra árið 2021, komi fram að fæðuöryggi er hvað minnst þegar kemur að kornvörum, hvort sem er til manneldis eða til fóðrunar búfjár. „Þó að hnattlega Íslands setji kornfram- leiðslu ákveðnar skorður eru aðstæður til landbúnaðar á Íslandi mun hag- felldari en ætla má af opinberri um- ræðu, vaxtartími er langur og fram- leiðni mikil vegna langrar ljóslotu. Íslenskur jarðvegur er afar frjósamur þótt hann sé einnig viðkvæmur og rofgjarn. Auk þess eru mikil tæki- færi til að bæta ræktunarmöguleika með nútímalegum plöntukynbótum, með landbótum, t.d. skjólbeltarækt, og með bættum ræktunaraðferðum.“ Vanmat verið á möguleikum kornræktar Þegar Kári er spurður um skoðun hans á því hvers vegna ekki hafi tekist að gera kornrækt á Íslandi að alvöru landbúnaðargrein, segir hann ástæðuna vera vanmat á því hvað sé mögulegt og raunhæft hér. „Ísland er gott landbúnaðarland, en í opinberri umræðu má oft ætla að við búum ofan í frystikistu. Það þarf að aðlaga kornyrki að okkar aðstæðum og nota til þess aðferðir 21. aldarinnar. Ég tel að verkefni kúabænda um að innleiða erfðamengisúrval í nautgriparækt hafi sýnt fram á að okkur séu allir vegir færir ef unnið er af metnaði,“ segir hann. Kári er bjartsýnn á að málið komist á dagskrá á fyrstu mánuðum næsta árs. „Þingmannamál stjórnar- þingmanna eru ekki mjög ofarlega í forgangsröðun og það eru tugir mála sem bíða þess að vera mælt fyrir. Gæti þó náðst fyrir páska að ég tel.“ /smh Þórunn Eva G. Pálsdóttir hlaut nýlega titilinn „Framúrskarandi ungur Íslendingur 2021“. Það var hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem afhenti verðlaunin, ásamt Ríkeyju Jónu Eiríksdóttur, landsforseta JCI, en samtökin veita verðlaunin á hverju ári. Þórunn var tilnefnd fyrir framlag sitt til barna, heimsfriðar og mann- réttinda. Um 300 tilnefningar bárust til JCI vegna kjörsins. Verðlaunin eru bæði hvatning fyrir þessa framúrskar- andi einstaklinga til áframhaldandi starfa og á sama tíma innblástur og hvatning til okkar allra að leggja okkar af mörkum til að byggja betra samfélag. Þórunn Eva skrifaði bókina „Mia fær lyfjabrunn“, en hugmyndin að bókinni varð til þegar hún var að gera lokaverkefnið sitt í sjúkraliða- náminu vorið 2019. Lokaverkefnið fékk hæstu einkunn og hvatti kennari Þórunnar að láta verða af þessari bók. „Það er mikil þörf fyrir bætta fræðslu í samfélaginu okkar almennt og er hún alls ekki minni innan veggja spítalans og fyrir litla fólkið okkar þar. Það eru alltaf nokkur börn á ári sem þurfa að fá lyfjabrunn og eru ástæð- urnar misjafnar. Stór hluti þessara barna eru börn sem greinst hafa með krabbamein en það eru einnig börn með hjartasjúkdóma, Cystic Fibrosis, blóðsjúkdóma, meðfædda ónæmis- galla og meltingar sjúkdóma sem þurfa að fá lyfjabrunn svo dæmi séu tekin,“ segir m.a. í tilkynningu um verðlaun- in. Þórunn Eva á barn sem er með lyfjabrunn og þekkir því ferlið vel. /MHH FRÉTTIR Framúrskarandi ungur Íslendingur 2021 Þórunn tekur hér á móti verðlaununum úr hendi forseta Íslands, einstöku listaverki eftir glerlistamanninn Jónas Braga Jónasson. Mynd / Aðsend Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur samþykkt að vísa skipu­ lagslýsingu vegna deiliskipulags fyrir nýtt íbúðahverfi sunnan Grenivíkurvegar í kynningarferli. Markmið deiliskipulagsins er að skipuleggja íbúðalóðir á svæðinu sem er í brekku sunnan þjóðvegar beint suður af Gamla skóla. Svæðið er um 3,6 ha að stærð. Miðað er við að þar verði að lágmarki um 28 íbúðir og er markmiðið að auka fjölbreytni í lóðaframboði á Grenivík. Fram kemur í skýrslu um nýja íbúðasvæðið að fjöldi lóða á þessu nýja svæði sé í heild nokkuð umfram það sem líklegt er að þörf verði fyrir á næstu árum. Byggingarsvæðið muni væntanlega byggjast upp hægt og rólega þannig að lóðir verða gerð- ar byggingarhæfar eftir þörfum á löngum tíma. Miðað er við að íbúðir verði fyrst og fremst í sérbýlishúsum, raðhúsum og parhúsum. Í upphafi þessa árs var 371 íbúi í Grýtubakkahreppi og af þeim bjó 291 á Grenivík, en frá árinu 2010 hefur íbúum á Grenivík fjölgað um 42. Gróflega er áætlað að íbúafjöldi í sveitarfélaginu verði á bilinu 365 til 420 árið 2031. Ef miðað er við efri mörk verður þörf fyrir um 20 nýjar íbúðir fram að þeim tíma. Flestar þeirra verða væntanlega á Grenivík. Auk þessa nýja íbúðahverfis sem nú er í kynningarferli er gert ráð fyrir 23 nýjum íbúðalóðum við Lækjarvelli og þéttingu byggðar við Ægissíðu, þar sem komast fyrir þrjár nýjar íbúðir. Við Höfðagötu syðst í byggðinni er rými fyrir um 10 íbúðir, þar af eru 6 á óbyggðum einbýlishúsalóðum. Á miðsvæði sunnan skipulags- svæðisins er gert ráð fyrir stækkun Grenilundar og þar má einnig gera ráð fyrir litlum fjölbýlishúsum. /MÞÞ Nýtt íbúðasvæði á Grenivík er 3,6 ha að stærð og er í brekku sunnan þjóðvegar beint suður af Gamla skóla. Gert er ráð fyrir að þar verði til framtíðar litið byggðar 28 íbúðir í sérbýlis-, rað- og parhúsum. Mynd / Vefsíða Grýtubakkahrepps. Nýtt íbúðahverfi í kynningarferli: Að lágmarki um 28 íbúðir á svæðinu Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 Lely Center Ísland Landbúnaðarleikföng Þingsályktunartillaga um eflingu kornræktar: Mikil tækifæri á Íslandi til að bæta ræktunarmöguleika Kári Gautason. Nýr gangnamannaskáli á Grímstunguheiði: Kosið milli fimm nafna Mynd / Bjarni Kristinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.