Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 56

Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202156 „Það er hefð hjá mörgum hér í kringum okkur að koma í heimsókn á aðventu og fólki finnst það tilheyra þegar verið er að koma sér í jólagírinn. Fólk er yfirleitt mjög vana fast þegar kemur að jólahefðum og það að heimsækja Jólagarðinn og upplifa stemninguna með börnunum er hluti af hefðunum hjá stórum hluta íbúa hér á svæðinu,“ segir Benedikt Ingi Blomsterberg Grétarsson. Benedikt Ingi ásamt Ragnheiði Hreiðarsdóttur, konu sinni, og Margrét Veru, dóttur þeirra, reka Jólagarðinn með öllu því sem honum tilheyrir. Þau hafa staðið vaktina í aldarfjórðung, Jólagarðurinn var opnaður í lok maí árið 1996 og upp frá því staðið fyrir samfelldu jólahaldi allan ársins hring í 25 ár. Næst á eftir sumrinu er aðsókn í Jólagarðinn eðlilega mest á aðventunni, fólk fer að flykkjast í heimsókn í lok nóvember og er mikið að gera alla daga fram að jólum. Benedikt segir mikið lagt upp úr að hafa andrúmsloftið gott og afslappað þannig að fólk njóti þess virkilega að ganga um garðinn og húsakynni, grilla sykurpúða með börnunum, narta í sykurhúðaðar möndlur og annað jólalegt góðgæti og anda að sér jólastemningunni. Jól alla daga „Það er þannig hjá mér að það eru jól alla daga,“ segir Benedikt og vísar þá til starfsins, en hann mætir í Jólagarðinn á hverjum degi og sinnir gestum og gang- andi. „Mín eigin jól aftur á móti geymi ég uppi á hálofti heima hjá okkur og þau eru með allt öðrum hætti en þau sem ég er að vasast í alla daga. Mín jól snúast um annað, mest um dýrmætar minningar sem lengi hafa fylgt mér frá fyrri tíð.“ Benedikt er húsasmiður að mennt og einnig matreiðslumaður. Þau Ragnheiður störfuðu á árum áður að hluta til saman, m.a. á Kristnesi, í veiðihúsi Víðidalsár og þá ráku þau í félagi við bróður hennar og mágkonu sumarhótel á Hrafnagili um skeið. „Við Ragnheiður erum góð saman í verki,“ segir Benedikt en hugmynd að því að setja á stofn Jólagarð varð til fyrir aðeins meira en 25 árum síðan þegar þau hjón voru að rabba saman, seint um kvöld, þreytt eftir amstur dagsins. „Þessi hug- mynd kviknaði í þessu spjalli og á þeim tíma virtist þetta tilvalin hugmynd. Við sáum fyrir okkur að öll fjölskyldan gæti haft næg verkefni fyrir stafni í þessu litla fyrirtæki um ókomna tíð,“ bætir hann við. Og verður eitt bros, því víst er að börnin hafa lagt hönd á plóg um árin, bæði börn og nú barnabörn eiga ófá spor í kringum uppátæki þeirra hjóna. Vaxandi aðsókn með árunum Benedikt segir að þegar hugmyndin flaug í koll þeirra hafi staðan verið sú að langt í frá var auðvelt að fá lán í banka fyrir framkvæmdum af þessu tagi. „Það hefði verið mun auðveldara fyrir okkur að fá lán fyrir nýjum bíl,“ segir hann. Þá urðu þau vör við að ekki bara fjármálastofnanir vildu stíga var- lega til jarðar, mörgum í kringum þau þótti hugmyndin arfavitlaus og í góð- vild sinni reyndi það að telja þau ofan af því að ana út í þessa vitleysu. Enda viðurkennir Benedikt að þau hefðu verið með tvær hendur tómar í upphafi. „En einhvern veginn fóru leikar þannig að við fengum lán og ég hófst handa með félögum mínum og við smíðuðum lítið hús, 35 fermetra að stærð, og komum jólahúsinu þar fyrir,“ segir Benedikt. „Satt best að segja fór þetta ansi hægt af stað hjá okkur í fyrstu. Fólk þurfti aðeins að melta það að hægt væri að ganga inn í jólaland á miðju sumri. Smám saman rjátlaðist það af fólki sem nú telur ekki tiltökumál að skoða jólaskraut hvenær ársins sem er. Að hrökkva eða stökkva Benedikt segir að þegar starfsemin hafi verið í gangi um nokkurra ára skeið, eða í 6 ár, hafi verið komið að ákveðnum vendipunkti. „Við eiginlega stóðum frammi fyrir því að hrökkva eða stökkva, loka og hætta starfseminni eða stækka við okkur. Þrengslin inni í húsinu voru farin að bíta í rassinn á okkur, gestafjöldi jókst ár frá ári og það var oft ansi mikil þröng á þingi innan dyra,“ segir hann. Eftir að hafa velt möguleikum í stöðunni fyrir sér tóku þau ákvörðun um að halda áfram og stækka við sig. Grafið var út fyrir kjallara sunnan við húsið og þar bættust við rúmir 100 fermetrar sem reynst hefur góð viðbót. Á sama tíma var einnig reistur 6 metra hár turn við húsið þar sem er að finna jóladagatal og er þemað ýmsar persónur úr sígildum ævintýrum. Börnunum þykir mikið varið í að klifra upp í turninn og virða útsýnið fyrir sér um leið og dagatalið er skoðað. Verslun í Sveinsbæ á norrænum nótum Í áranna rás hefur eitt og annað bæst við og segir Benedikt að yfirleitt sé ekki verið að tilkynna um slíkar fram- kvæmdir. „Við förum bara í þær,“ segir hann. Upp úr aldamótum var hús reist á svæðinu sem nefnist Sveinsbær, reisu- legt hús þar sem rekin er verslun á nor- rænum nótum. Þar fást vörur af ýmsu tagi, matvæli, m.a. sultur og kökur sem Benedikt bakar að mestu sjálfur. Í bíl- skúr við heimili þeirra skammt frá er vottað iðnaðareldhús sem nýtist vel til margs konar framleiðslu. Þau hjón hafa lengi ræktað rabarbara í nágrenninu og unnið úr honum sultur, saft og sýróp. Einnig er þar í boði vefnaðarvara og leirtau ásamt gjafavöru og ýmsu öðru. Sveinsbær dregur nafn sitt annars vegar af húsi Sveins Auðunssonar, langafa Ragnheiðar í Hafnarfirði, og einnig er með nafngiftinni vísað til jólasveinanna. Verslunin sjálf, sem er innan dyra, ber nafnið Bakgaður „tante Grete“ eftir danskri eiginkonu frænda Benedikts sem hann hafði miklar mætur á. Á svæðinu er einnig lítill braggi, en synir Benedikts og Ragnheiðar byggðu hann og eru hann í þeirra eigu. Þar er hægt að fá kaffi og köku- sneiðar og ýmsar árstíðarbundnar vörur eru þar á boðstólum, brakandi ferskt grænmeti yfir sumarmánuði en nú fyrir jól eru sykurpúðar, sleikip- innar og ristaðar möndlur í öndvegi ásamt fleiru. Óskabrunnur ófæddra barna er við Jólagarðinn og ofan við hann er Bræðrabrekka þar sem hægt er að leika millu, en það er einnig í boði hér og hvar um garðinn. Vogur voffi og kaldur hvolpur Benedikt segir að fyrstu árin hafi ekki verið lagt upp með veitinga- sölu, Blómaskálinn Vín var skammt undan og þar voru veitingar í boði. Eftir að honum var lokað var farið að huga að sölu veitinga í Jólagarðinum enda höfðu gestir látið í ljós óskir um slíkt. „Fólk vill gjarnan fá eitthvað í gogginn á meðan það stoppar og nýtur lífsins,“ segir hann. Því var ráðist í að koma Eplakofanum á fót, en þar er hægt að kaupa drykki, sykurhúðuð epli, súkkulaðihúðaðar vöfflur með rjóma og ískökur, en það síðarnefnda gengur undir nöfnunum volgur voffi og kaldur hvolpur. Benedikt segir að þessar veitingar séu af öðru tagi en það sem bjóðist á öðrum kaffihúsum eða veitingastöðum í sveitarfélaginu, hvert og eitt hafi sína sérstöðu. Vinsæll áfangastaður fyrir fjölskyldur Aðsókn í Jólagarðinn er langmest yfir sumarið og mest fjölmennið jafnan í vikunum í kringum versl- unarmannahelgi. Toppurinn fram til þessa hefur verið þá daga sem hand- verkshátíð er haldin. Kórónuveiran hefur slegið þá hátíð út af borðinu undanfarin tvö ár. Íslendingar eru helstu gestir Jólagarðsins og segir Benedikt að áhersla sé lögð á þá, dýrt sé að fara í markaðsátak til að fá erlenda ferða- menn í heimsókn. „Jólagarðurinn er vinsæll áfangastaður hjá fjöl- skyldufólki og undanfarin sumur gefur fólk sér góðan tíma, staldrar lengur við og er ekkert að flýta sér. Það er virkilega gaman að því, fólk nýtur lífsins og þess sem við höfum upp á að bjóða, sem finnst hvergi annars staðar hérlendis.“ Ánægð með að hafa byggt svæðið upp Benedikt segir að heimamarkað- urinn sé mikilvægasti markaður Jólagarðsins. Akureyringar tóku garðinn í sátt eftir nokkurn tíma og hafa upp frá því verið duglegir að koma í heimsókn. „Það er okkur dýrmætt að hafa traustan heima- markað og fyrir hann erum við þakklát,“ segir hann. Vissulega segir hann að af og til finni hann fyrir þreytu eftir 25 ára jólavafstur. „En það hefur ekki neitt með jólin sjálf að gera, það finna allir stundum fyrir þreytu í hvaða starfs- grein sem þeir eru í. Þessi ár hafa verið góð og við erum ánægð með uppbyggingu svæðisins. Greinilega gefur það fólki mikið að heimsækja Jólagarðinn og yfir því gleðjumst við.“ /MÞÞ LÍF&STARF Jólagarðurinn hefur verið starfandi í Eyjafjarðarsveit í aldarfjórðung: Dýrmætt að hafa traustan heimamarkað Benedikt Ingi við Jólagarðinn, hús sem hann ásamt félögum smíðaði sjálfur fyrir rúmum aldarfjórðungi. Kjallara var síðar bætt við undir húsið og 6 metra háum turni aftan við það. Myndir/MÞÞ Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 RÚÐUR Í DRÁTTARVÉLAR FRÁBÆR VERÐ John Deere Zetor Case IH McCormick Steyr Claas Ford Fiat New Holland Deutz-Fahr Massey Ferguson Benedikt gefur afastrákunum, Snjóka og Benedikt Tuma, bita af húskarlahangikjötinu sem alltaf er í boði við afgreiðsluborð Jólagarðsins og hefur verið frá upphafi. Í Jólagarðinum kennir ýmissa grasa og gaman að skoða allt það sem fyrir augu ber.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.