Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 72

Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 72
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202172 LESENDARÝNI Athugasemdir við: DRÖG AÐ REGLUGERÐ – um leiðbeiningar og viðmið um sjálfbæra landnýtingu Við lestur reglugerðarinnar læddist að manni sá grunur að reglugerðin hafa verið samin af aðilum sem ekki þekkja til íslenskra aðstæðna og stuðst hafi verið við – og meira og minna verið þýtt - beint úr erlendu skjali. Notkun og þýðing á orðinu Akuryrkja er í engu samræmi við íslensku skilgreininguna á akuryrkju sem er „sú grein landbúnaðar sem fæst við að búa til akra og rækta korn“. Í reglugerðinni er Akuryrkja skilgreind sem: Land sem er nýtt til framleiðslu nytjajurta með íhlutun, svo sem sléttun, framræslu, áburðar- gjöf, jarðvinnslu, gróðursetningu, sáningu eða öðrum ræktunaraðgerð- um. Nýting lands í alla árlega/ein- æra og fjölæra ræktun. Land þar sem ræktað er: matjurtir svo sem ýmsar korntegundir, baunir, rótarávextir, grænmeti; plöntur sem nýttar eru til iðnaðar, ávextir, blóm og fóðurjurtir, fræ og ungplöntur. Sú skilgreining sem virðist bætt við að átt sé einnig við „fjölæra ræktun, .. baunir .. ávextir..“ segir manni að þeir sem skrifuðu þessa reglugerð skildu ekki hvað reglugerðin átti að fjalla um. Akur er land þar sem ræktaðar eru, að jafnaði, einærar jurtir, að langmestu leiti korntegundir sem eru einærar - og akur er að jafnaði „ber“ (jarðvegur óvarinn – án gróð- urs) hluta árs. Land sem er nýtt til framleiðslu nytjajurta með íhlutun, svo sem sléttun, framræslu, áburðar- gjöf, jarðvinnslu, gróðursetningu, sáningu eða öðrum ræktunaraðgerð- um með fjölærum tegundum geng- ur undir heitinu tún. Ekki er reynt að skilgreina það sem þarna getur komið á milli – sem er áburðargjöf, gróðursetning og sáning í á órækt- uðu landi undir formerkjum land- græðslu, en samkvæmt skilgreiningu reglugerðarinnar er það akuryrkja og ætti því að flokkst sem slík og fá umfjöllun undir „akuryrkju“. Landnýting Þekkingaleysið og hin slæmu vinnu- brögð við samningu reglugerðarinnar endurspeglast einnig í skilgrein- ingunni sem gefin er á orðinu „land- nýting“ þar sem segir: Landnýting: Hverskonar nýting lands í þágu mannsins m.a. til beitar, akuryrkju, skógræktar, umferðar fólks og öku- tækja og framkvæmda. Samkvæmt þessu ætti reglugerð sem ber það almenna heiti „um leiðbeiningar og viðmið um sjálfbæra Landnýtingar“ að taka einnig til annarra þátta sem samkvæmt skilgreininunni eru land- nýting, og í dag mun mikilvægari, umfangsmeiri og áhrifarmeiri en beit og „akuryrkja“, þe. skógrækt og umferð fólks og ökutækja sem og allar framkvæmdir. Við skoðun kemur hins vegar í ljós að aðeins lítillega er minnst á umferð fólks og ökutækja sem og framkvæmdir, en reglugerðin fjallar nær eingöngu um beit og akuryrkju. Athyglisvert er að skógrækt er alfarið sleppt. Loftslagsmál Í 2. gr. er minnst sérstaklega á lofts- lagsmál en þar segir:.. „að leggja mat á ástand og stöðu gróður- og jarðvegsauðlindarinnar hverju sinni, m.a. í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist og vera í samræmi við ákvæði um losunarbókhald Íslands sbr. lög nr. 70/2012 um loftslags- mál.“ Verður það að teljast til furðu og að vera alvarlegur vankanti á reglugerð um landnýtingu að ekki sé einnig fjallað um skógrækt þar sem heiti reglugerðarinnar er „..leið- beiningar og viðmið um sjálfbæra landnýtingu“ þar sem skógur og skógrækt hefur verið skilgreind af ráðuneyti Umhverfismála og Umhverfisráðherra sem lykillinn að sjálfbærri landnýtingu og lausnin til að mæta alþjóðlegum skuldbindingu Íslands í loftslagsmálum. Þetta innra ósamkvæmi í reglu- gerðinni vekur furðu. Beitarland Við lestur 3. gr. – Orðskýringar vakna enn frekari efasemdir um vinnubrögð við vinnslu og skrif reglugerðarinnar. Við skilgreiningu á Beitarlandi er sagt að þar sé verið að tala um „graslendi“ og er í því sambandi vitnað í mjög gamlar og algjörlega úreltar skýrslur (IPCC 2003 og 2006) – hartnær 20 ára gamlar. Í beitarhlutanum eru þetta einu heimildirnar sem vitnað er í og vekur það upp ágengar spurningar um heimildaröflunina við vinnslu reglugerðarinnar. Reglugerðinni er ætlað að ekki aðeins að vinna með mun nákvæm- ari flokkun lands (NI – vistgerðir), heldur einnig er skilgreint mun nákvæmari eining – kallað vistein- ing- sem ekki á sér stoð í neinum skjölum, heimildum eða rannsókn- um að séð verður, án allra heimilda. Þarna er aftur innar misræmi í reglu- gerðinni – skali við flokkun lands – þar sem á einum stað er notast við skilgreiningu sem flokkar meira og minna allt „opið“ land saman (sem graslendi) og svo á öðrum stöð- ur þar sem talað er um að flokka land í minni einingar en vistgerðir; þe. visteiningar Skilgreiningin á Landhnignun er góð og gild – þar sem nefnt er minnk- andi frumframleiðni lands og minnk- andi liffræðilegs fjölbreytileika. Hins vegar skín í gegnum alla reglugerðina algjört skilningarleysi á eðli og áhrifum beitar á gróður og vistkerfi og algjört þekkingarleysi á rannsóknum síðustu 30-40 ára. Í drögunum í heild sinni er gengið úr frá því að að beit leiði til minni frumframleiðni og líffræðilegs fjöl- breytileika. Þessi grunn hugmynda- fræði reglugerðarinnar er meira en hálfrar aldar gömul og hefur löngu verið kastað fyrir róða. Endurteknar rannsóknir síðari ára sýna, þvert á móti, að létt til miðlungsmikil beit leiði til meiri framleiðni og fjöl- breytileika, bæði plantna og dýra en að friðun lands fyrir beit leiðir, til lengri tíma, til minni framleiðni og minni fjölbreytileika. Í viðauka beitarnýtingarkafla reglugerðarinnar er ekki vitnað í eina einustu heimild, þó að staðhæft sé „að mat á ástandi lands og sjálfbærni beitar skuli byggð á „viðurkenndum vísindaleg- um grunni“. Ekki er hægt að átta sig á því hvaða „vísindalegi grunnur“ það er sem þarna er vitnað í þar sem engin er heimildin. Staðhæfingin um að byggt sé á vísindalegum grunni án þess að vitnað sé í eina einustu vísindalegu niðurstöðu gerir það að verkum að trúverðuleiki fyr- irhugaðar reglugerðar er enginn og nægir eitt sér til að reglugerðinni sé alfarið hafnað og að hún ætti að vera dregin til baka. Það er grundvallarkrafa við alla ákvarð- anatöku og skipulagsgerð, eins og þeirrar sem hér er til umfjöllunar, að „vísindalegur“ trúverðuleiki sé til staðar og að sá vísindalegi grunnur sé viðurkenndur af fagað- ilum. Sú viðurkenning er almennt fengin með birtingu í viðurkennd- um, ritrýndum tímaritum. Þúsundir ritrýndra greina um áhrif beitar á gróður, framleiðni, vistkerfi ofan jarðar og neðan o.fl. er að finna á hinum alþjóðlega viðurkennda vef ISI. Enga rannsókn á skaðlegum áhrifum beitar á vistkerfi Íslands er þar að finna. Að byggja reglu- gerð á óritrýndum skýrslum með fullyrðingum á áhrifum beitar án beinna rannsókna á beit eru ekki aðeins slæm vinnubrögð heldur einnig skaðleg vinnubrögð. Nokkrar íslenskar heimildir um rannsóknir á beit á Íslandi er hægt að vitna í. Í grein Bryndísar Marteinsdóttur, núverandi ver- kefnastjóra GróLindar, Isabel C Barrio og Ingibjargar S Jónsdóttur „Assessing the Ecological Impacts of Extensive Sheep Grazing in Iceland „ frá 2017 kemur fram sú niðurstaða að: A better und- erstanding of the ecological impacts of sheep grazing is required to inform sustainable grazing practices adapted to the local conditions of this region. Engar nýjar niðurstöður hafa verið birtar frá 2017 sem hafa auka þekkingu á áhrifum sauðfjár- beitar sem hægt er að nota sem grundvöll reglugerðar sem þeirra sem hér um ræðir. Sú fullyrðing að betri þekking sé nauðsynleg til að hægt sé að meta áhrif sauðfjárbeitar á vistkerfi Íslands stendur því enn og því vekur það furðu að reglugerð eins og sú sem er hér til umfjöllunar skuli vera lögð fram með þeirri hugmynda- fræði sem þar er lögð til grunna. Frá 2017 hafa verið birtar niður- stöður tveggja rannsókna sem skoðuðu áhrif beitar á uppgræðslur á afréttum á miðhálendinu – báðar á yfirstandandi ári. Báðar þessar rannsóknir komast að sömu niður- stöðu – að beit hafi ekki neikvæð áhrif á uppgræðslur. Mulloy o.fl. 2021 fundu engan mun á friðuðu og beittu vel grónu og lítt grónu landi „grazing exclusion alone had no effect in either habitat“ . Í nýbirtri rannsókn Sigríðar Jónsdóttur (2021) „Beittar uppgræðslur á hálendi Íslands“ kemur fram að beitin hafi, ef eitthvað, fremur jákvæð áhrif á uppgræðslur á afréttum. Þá má einnig benda á rannsóknir undirrit- aðrar, Önnu Guðrúnar Þórhallsdóttur Mynd 1. Grös með rótarkerfi tekin á Hólum sumarið 2021. Grös á mynd til vinstri tekin í hrossahólfi en grös til hægri eru tekin í friðaðri skógræktargirðingu þar sem birta nær niður í svörðinn. Tegundir grasa eru Poa pratensis og Festuca rubra. Anna Guðrún Þórhallsdóttir, pró- fessor í landnýtingu – sérsvið beit- arvistfræði. Mynd 2. Skriður í Útkinn sem falla úr friðuðu landi – skógrækt/lúpína. Mynd / Landhelgisgæslan. Mynd 3 Skriða sem féll á Seyðisfjörð 2020 úr friðaðri lúpínubreiðu ofan við bæinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.