Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 41
850G GUEPARD Trophy PRO
STELS HJÓLIN ERU KOMIN!
Stærsti framleiðandi fjórhjóla í Evrópu
FJÓRHJÓL SEM KEMUR ÞÉR ALLA LEIÐ
Kynntu þér úrvalið á aflvelar.is
eða hringdu í síma 480 0000
Ótrúlega vel búið
tveggja manna fjórhjól
Verð 2.790.000 kr.
m. vsk og T3b götuskráningu
Til afhendingar strax
Vesturhrauni 3, Garðabæ | Austurvegi 69, Selfossi | Sími 480 0000 | aflvelar.is
spara varaforsetanum og fylgdarliði
hans það ómak að fara út að kaupa
minjagripi. Johnson var harður við
að prútta en Haukur kunni ekki við
að þrátta við varaforsetann og hafði
því lítið upp úr krafsinu.
Sagan segir að í veislu sem
haldin var Johnson til heiðurs í
Súlnasalnum hafi hann setið á milli
Ásgeirs Ásgeirssonar forseta og
Ólafs Thors. Johnson féll prýðilega
við Ólaf, gleymdi þess vegna öllum
mannasiðum og sneri bakhlutanum að
Ásgeiri allan tímann.
Geimfarar gista
Áhöfn Apollo 13 geimflaugarinnar
gisti á Hótel Sögu þegar geimfararnir
heimsóttu Ísland ásamt eiginkonum
sínum í október 1970. Þeir voru James
A. Lovell, John L. Swigert og Fred
W. Haise. Neil Armstrong, fyrsti
maðurinn sem steig fæti á tunglið,
gisti á Sögu í heimsókn sinni til
landsins.
Í húsinu gistu einnig leikararnir
Charlton Heston, Mia Farrow og
André Previn píanóleikari.
Alec Guinness leikari gisti
reglulega á Sögu í nokkur ár ásamt
eiginkonu sinni, Merula Sylvia
Salaman. Guinness og Salaman sátu
alltaf við sama borðið þegar þau
borðuðu morgunmat á Grillinu.
Viðamiklar endurbætur
Árið 2016 var lagt í viðamiklar
endurbætur á húsnæði Hótel Sögu.
Húsnæðinu var breytt og 27 ný
herbergi tekin í notkun á þriðju
hæð norðurbyggingarinnar, skipt út
lyftum, lagnir lagaðar og loftræsting
endurbætt en þar höfðu áður verið
skrifstofur.
Þar á eftir var ráðist í endurbætur
á Súlnasalnum og herbergin á fjórðu
hæð gömlu byggingarinnar hafa
verið endurnýjuð að öllu leyti en með
hliðsjón af upprunalegu hönnuninni.
Strax í framhaldi af þeim
breytingum loknum var farið í
endurgerð á fyrstu hæð hússins og
nánast allt rifið út. Glerhúsið sem
var við hliðina á aðalinnganginum og
hýsti Skrúð var rifið og gestamóttakan
tekin í gegn. Í staðinn fyrir Skrúð var
settur upp bar og nýr veitingastaður
fyrir hundrað manns.
Síðan kom Covid
Rekstur Hótel Sögu varð illa úti í
Covid-faraldrinum og þrátt fyrir að
allt sem mögulegt var væri gert til
að halda rekstrinum gangandi dugði
það ekki til og var hótelinu lokað 1.
nóvember 2020.
Frá þeim tíma hafa átt sér stað
viðræður við ýmsa aðila um framtíð
Bændahallarinnar og hugmyndir verið
um að halda þar áfram hótelrekstri eða
breyta húsinu í hjúkrunarheimili en
flest bendir nú til að ríkið muni festa
kaup á húsnæðinu undir starfsemi
Háskóla Íslands.
Bændahöllin mun því væntanlega
fá nýtt hlutverk fljótlega sem hluti af
Háskóla Íslands og þeirri starfsemi
sem þar fer fram.
Hótel Saga og höggmyndin Íslandsmerki eftir Sigurjón Ólafsson. Mynd / HKr.
Geimfarar í áhöfn Appolo 13 geim-
flaugarinnar gistu á Hótel Sögu
þegar þeir heimsóttu Ísland ásamt
eiginkonum sínum í október 1970.
Þetta voru þeir James A. Lovell,
John L. Swigert og Fred W. Haise.
Appolo 13 var skotið á loft frá Kenn-
edy geimferðastöðinni þann 11. apríl
1970. Ætlunin var að Lovell og Swi-
gert lentu meðan félagi þeirra Fred
W. Haise biði eftir þeim á braut um
tunglið. Vegna bilunar var hætt við
lendingu og þótti með ólíkindum að
geimförunum tækist að handstýra
biluðu farinu aftur til jarðar.