Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 202138
LÍFIÐ&SAGA
Hótel Saga hefur verið glæsilegt kennileiti í Reykjavík frá því að húsið var byggt. Vatnslitamynd / L. Grund
Gestagangur á Sögu
Hótel Saga er án efa ein af glæsi
legustu byggingum á Íslandi og
þótt víðar væri leitað. Stórt og
tignarlegt hús og eitt af helstu
kennileitum Reykjavíkurborgar.
Hótel Saga á sér áhugaverða sögu,
ekki síst hvað varðar gestagang.
Upphaf Bændahallarinnar og
Hótel Sögu má rekja allt aftur til 1939
þegar Sigurður Jónsson á Stafafelli
lagði fram erindi á Búnaðarþingi
um húsnæðismál Búnaðarfélags
Íslands. Erindi Sigurðar var vísað
til stjórnar Búnaðarfélagsins, sem
lagði til að byggt yrði nýtt húsnæði
og skyldi það verða höfuðsetur og
heimili Búnaðarfélags Íslands auk
þess sem þar gæti einnig verið aðset
ur og samkomuhús bænda.
Fyrsta skóflustungan
tekin 11. júlí 1956
Árið 1941 var ályktað á Bún aðar
þingi um að byggja bændahús í
Reykjavík. Sama ár skrifaði svo
búnaðarmálastjóri búnaðarsam
böndunum í landinu bréf þar sem
hann leitaði eftir stuðningi við
byggingu húsnæðis undir starfsemi
félagsins. Húsið átti jafnframt að vera
gistiheimili fyrir sveitafólk sem ætti
erindi til Reykjavíkur. Árið 1947 var
kosin byggingarnefnd sem skyldi
hafa forgöngu um málið og ári seinna
fékk félagið lóð undir bygginguna
við Hagatorg.
Stéttarsamband bænda gekk til
liðs við Búnaðarfélagið árið 1953
og gerðist aðili að byggingu hússins.
Halldór H. Jónsson byggingarmeist
ari var fenginn til að teikna húsið
og fyrsta skóflustungan tekin
11. júlí 1956. Til þess að afla fjár var
ákveðið að leita eftir því við Alþingi
að á árunum 1958 til 1961 yrði svo
kallað búnaðarmálasjóðsgjald, sem
innheimt var af útborgunarverði til
bænda, hækkað um ½ prósent og
rynni það fé sem þannig innheimt
ist til byggingarinnar. Voru lög um
þetta samþykkt á Alþingi í mars
árið 1959.
Kostnaðurinn við byggingu
Bændahallarinnar varð meiri en
ætlaður var í fyrstu og innheimta
viðbótargjaldsins framlengd til
1970, þegar það var lagt af.
Fyrstu hæðir hússins voru tekn
ar í notkun fyrir hótelrekstur árið
1962 og tveimur árum síðar skrif
stofur búnaðarsamtakanna.
Byggingu fyrri áfanga Bænda
hallarinnar lauk 1965. Eldri
byggingin er á sjö hæðum auk
kjallara og Stjörnusalarins, sem er
áttunda hæðin. Á fyrstu hæð var
og er enn afgreiðsla og veitingaað
staða. Súlnasalur og aðrir veitinga
salir eru á annarri hæð. Skrifstofur
Bændasamtakanna eru á þriðju hæð
og fjórða hæðin var öll leigð til
Flugfélags Íslands. Gistirými voru
á fimmtu, sjöttu og sjöundu hæð.
Á áttunda áratugnum var ákveðið
að byggja við Bændahöllina að
norðanverðu sjö hæða byggingu.
Ásgeir Ásgeirsson, forseti Íslands, ásamt Steingrími Steinþórssyni búnað-
armálastjóra þegar hornsteininn var lagður að Hótel Sögu árið 1961.
Mynd / Úr safni Hótel Sögu.
Loftmynd af Reykjavík þegar Hótel Saga er í byggingu árið 1961. Melavöllur-
inn í baksýn. Mynd / Úr safni Hótel Sögu
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is