Bændablaðið - 16.12.2021, Blaðsíða 63
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 63
Glæsileg ný prjónabók
eftir Védísi Jónsdóttur
Ístex 30 ára
Jólagjöf prjónarans
Víkurhvarfi 8 | 203 Kópavogi | S. 544 4656 | mhg.is
VETRARBÚNAÐUR
Salt- og sanddreifarar.
Amerísk gæðatæki sem endast.
Mýranaut óskar viðskiptavinum
nær og fjær gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári, með þökk
fyrir viðskiptin á því liðna.
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Sjálft jólahaldið og undir
búningur þess er nú að ná
hápunkti sínum.
Sjaldan fá hefðir og sérviska
okkar sumra að birtast betur á
heimilum landsmanna en einmitt
um jólin, og íhaldssemin víðast í
hávegum höfð. Það á ekki síst við
um hvað er á veisluborðum okkar
um hátíðarnar, sitt sýnist hverjum
hvað þarf þangað að rata, til að
gleðileg jólin geti gengið í garð.
Eitt eigum við þó flest
sameiginlegt, það að íslensk
hráefni eru lykillinn að því að allt
sé eins og það á að vera, og um
leið notalegt og öruggt eins og við
erum vön. Hér standa íslenskir
bændur sannarlega vaktina og
tryggja íslenskum neytendum
gæðavörur sem þeir treysta.
Hefðirnar eru okkar að nýta,
viðhalda notkun á hráefnunum
og þróa í rólegum takti.
Kjötvörur af ýmsu tagi eru
sem fyrr aðalhráefnin á jóla- og
áramótaborðið auk fjölbreytts
ómissandi meðlætis. Í kjötvörum
er margt í boði frá íslenskum
bændum, og þeir vanda til verka
og stytta sér ekki leið í óhóflegri
notkun lyfja.
Sem dæmi sýnir ný evrópsk
samantekt um notkun sýklalyfja
í landbúnaði að hún er hvergi
minni en hérlendis, sem fyrr. En
þeir sem mest nota af sýklalyfjum
í evrópskum landbúnaði nota
hundraðfalt magn sýklalyfja á
hvert kg kjöts.
Veljum íslensk hráefni þegar
það er mögulegt, framleidd eftir
ströngum kröfum. Kaupum ekki
köttinn í sekknum vegna óskýrra
eða villandi merkinga.
En kvartanir um að þær mættu
vera mun betri hérlendis eru
afar algengar. Það er líka gott
að kunna sér hóf og taka gæði
fram yfir magn. Fjölbreytni í
framboði háenda matvæla með
íslenskan uppruna eykst ár frá
ári með sönnuð gæði og sérstöðu
sem lykilatriði.
Eigið notaleg jól með íslenskar
matvörur á ykkar borðum.
Hafliði Halldórsson,
verkefnastjóri á markaðssviði BÍ
Notalegu jólahefðirnar
Hátíðarsteikin skorin.
Íslenskt jólaborð.