Bændablaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 20222
FRÉTTIR
Metár í útflutningi hrossa 2021:
Á síðasta ári voru í fyrsta sinn í sögunni
flutt út fleiri en 3.000 hross frá Íslandi
– Heimsfaraldur hefur áhrif á hestamennsku erlendis
Alls var 3.341 hross flutt frá
Íslandi árið 2021. Það er metár frá
því skráningar hófust. Næstflest
hross fóru út árið 1996, þá 2.841
talsins.
Meðalfjöldi útfluttra hrossa á ári
frá 2010 til 2020 var um 1.420 hross
á ári og er aukningin því veruleg.
Leita þarf aftur til tíunda áratugar
síðustu aldar til að finna tölur vel yfir
2.500 en þetta er í fyrsta sinn sem
útflutt hross fara yfir 3.000 talsins.
Kristbjörg Eyvindsdóttir rekur
útflutningsfyrirtækið Horse Export
ásamt eiginmanni sínum, Gunnari
Arnarssyni. Hún segir marga
samverkandi þætti spila inn í
aukningu útfluttra hrossa.
„Eitt er uppsöfnuð þörf því okkur
grunar að dregið hafi úr framleiðslu
hrossa erlendis. En heimsfaraldurinn
hefur örugglega töluverð áhrif. Fólk
ferðast minna, er meira heima og
hefur fjármagn til umráða, sem áður
var kannski eyrnamerkt ferðalögum.
Það vill hafa eitthvað fyrir stafni
heima við og njóta frístunda og
fjárfestir þá mögulega í hesti.“
Gróska í atvinnusköpun tengt
hestamennsku
Hún segir aukning á seldum
frístundahestum styðja þá kenningu.
„Kaupendur íslenskra hrossa er
mjög breiður. Við sjáum allt frá
rándýrum niður í ódýra hesta
fara utan. Víða erlendis er mikil
reiðskólamenning og æskulýðsstarf
sem leiðir af sér fleiri iðkendur. Þá
hafa vefútsendingar frá keppnum og
sýningum sinn áhrifamátt og mikið
markaðsstarf er einnig að skila
sér,“ segir Kristbjörg og bendir á
afleidda atvinnusköpun. „Ég hef
heyrt að þumalputtareglan sé sú
að fjórir hestar skili einu ársstarfi í
Evrópu. Í kringum hestamennskuna
er svo ótrúlega mikil starfsemi, s.s.
framleiðsla á fóðri, reiðtygjum og
fötum, kaup og leiga á aðstöðu fyrir
hross, námskeiðshald og reiðskólar
svo eitthvað sé nefnt.“
Nýir heimahagar austar í Evrópu
Hrossin fóru til tuttugu landa,
langflest til Þýskalands eins og venja
er og næstflest til Norðurlandanna.
Austurríki og Sviss hafa fest sig í
sessi sem stór innflutningslönd.
Þá fóru nokkur austar í Evrópu,
til Ungverjalands, Rúmeníu og
Slóveníu. Rúmlega hundrað fóru
vestur, 107 hross til Bandaríkjanna
og eitt til Kanada.
Kristbjörg segist vita af nokkrum
hrosseigendum sem hafa keypt sér
jarðir austar í Evrópu og það telji
hún ástæðu þess að lönd eins og
Rúmenía og Slóvenía rati á listann.
„Þegar einhver duglegur og virkur
aðili fer að vinna með ákveðinn
markað eflist allt í kringum það.
Það skapar markaðshvetjandi
aðstæður og fleiri fara að sækja í
hestamennskuna á þeim stað. Við
höfum séð þetta gerast t.d. í Sviss
og Frakklandi. Það er ákveðin nánd
og félagsskapur sem oft vill verða
til kringum íslenska hestinn, eins
konar stéttlaus veröld, skemmtileg
samfélög sem fólk sækir í.“
Hátt dæmd útflutt hross
Af þessum 3.341 hrossi eru 361
stóðhestur, 1.426 geldingar og 1.554
hryssur. Samkvæmt upplýsingum úr
WorldFeng, upprunaættbók íslenska
hestsins, voru 845 útfluttra hrossa
með A-vottun.
A-vottun fær hross þegar bæði
hrossið og foreldrar þess eru erfða-
greind með DNA greiningu og
sönnun um ætterni liggur því fyrir.
Fjöldi þeirra hrossa sem fóru í
útflutning á árinu og hafa fengið 1.
verðlaun í kynbótadómi eru 191 tals-
ins. Hátt dæmdir stóðhestar raða sér
þar efstir á lista: Draupnir frá Stuðlum
(ae. 8,88), Ölnir frá Akranesi (ae.
8,82), Vegur frá Kagaðarhóli (ae.
8,81), Eldjárn frá Skipaskaga (ae.
8,72), Nátthrafn frá Varmalæk (ae.
8,72), Arthúr frá Baldurshaga (ae.
8,69), Elrir frá Rauðalæk (ae. 8,66),
Ómur frá Kvistum (ae. 8,61), Dropi
frá Kirkjubæ (ae. 8,60), Fróði frá
Staðartungu (ae. 8,59) og Fenrir frá
Feti (ae. 8,57). Hæst dæmdu útfluttu
hryssurnar eru Hylling frá Akureyri
(ae. 8,55) og Bylgja frá Seljatungu
(ae. 8,54). /ghp
0
500
1000
1500
2000
2500
3000
3500
4000
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021
Metár í útflutningi orsakast meðal annars af heimsfaraldri og uppsafnaðri þörf, að sögn Kristbjargar Eyvindsdóttur,
sem hér heldur í stóðhestinn Kveik frá Stangarlæk I sem fór til Danmerkur á árinu. Myndir / Aðsendar
Ný heimkynni hrossanna eru í tuttugu löndum beggja vegna Atlantsála.
Hrossaútflutningur 2021
Fjöldi
Hrossa
Austurríki 192
Bandaríkin 107
Belgía 30
Bretland 29
Danmörk 530
Finnland 119
Frakkland 36
Færeyjar 17
Holland 197
Írland 9
Ítalía 2
Kanada 1
Lúxemborg 19
Noregur 48
Rúmenía 4
Slóvenía 3
Sviss 148
Svíþjóð 460
Ungverjaland 3
Þýskaland 1.477
Samtals: 3.431
Land
2021 3.431
1996 2.841
1994 2.758
1995 2.608
1997 2.565
1993 2.485
Stærstu útflutningsár
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Útfluttu hrossin skiptust niður í 361 stóðhest, 1.426 geldinga og 1.554 hryssur. Kristbjörg varð vör við nokkra
aukningu á sölu og flutning frístundahesta.