Bændablaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 2022 33
ostar og það ferli getur tekið
frá tveimur vikum og upp í
sex mánuði.
Satt best að segja væri
ég alveg til í að láta ostinn
gerjast lengur en við bara
náum því ekki þar sem hann
selst upp jafnharðan.“
Jón segir að í dag framleiði
þau um tvö tonn af ostum á ári.
Lömbin ganga undir í 40 daga
„Við viðhöldum bústofninum með
því að ala sjálf allar gimbrarnar en
lambhrútana hef ég selt öðrum sem
hafa áhuga á sauðfjárrækt eða vilja
eignast lifandi sláttuvél.
Öll lömb hjá okkur eru á spena
í 40 daga og ekki færð frá fyrr en
eftir það og meðan lömbin ganga
undir er kindin ekki mjólkuð nema
einu sinni á dag en eftir það tvisvar
á dag fram að lokum júlí og eftir það
einu sinni á dag þar sem kindur gefa
af sér mjólk í átta til tíu mánuði.“
Matsala og gistiaðstaða
Samhliða ostagerðinni reka hjónin
matsölustað á palli við húsið þar
sem þau sérhæfa sig í afurðum frá
nærliggjandi býlum. „Við erum
einnig með átta býflugnabú en
hunangs framleiðslan stjórnast
af því hvernig vorið er og getur
verið frá 150 til 450 kíló á ári.
Auk þess sem við búum til sýróp
úr ylli og sultur úr berjum sem vaxa
á jörðinni.“
Jón segir að í framhaldi af Covid
hafi aðsókn fólks í lítil sveita-
veitingahús aukist og að það sækist
einnig meira í afurðir beint frá býli
og í fyrra var stanslaus straumur
fólks hjá þeim allt sumarið.
„Við settum upp lítið smáhýsi,
sem hugmyndin er að leigja út, fyrir
skömmu og ef það gengur vel mun
hýsunum fjölga í framtíðinni.“
Að sögn Jóns vinnur Nadia
100% vinnu á býlinu en hann 50%
utan þess til að allt gangi upp þrátt
fyrir að reksturinn gangi vel.
„Krafan um ódýran mat er
gríðarlega mikil og að mínu mati
oft óraunhæf þar sem framleiðsla á
gæðavöru kostar sitt og neytendur
virðast ekki alltaf skilja það.
Stækkað við sig
Með stækkun bústofnsins bættu Jón
og Nadia við sig tíu hekturum
sem þau keyptu af sama aðila
og hektarana þrjá í fyrstu. Að
sögn Jóns er jörðin nógu stór til
að beita á 70 fjár en ekki nóg til
að getað heyjað fyrir hestana tvo og
haft í hálm fyrir féð.
„Við höfum því hingað til þurft
að kaupa hey, nema í ár þar sem
sprettan og heyfengurinn var óvenju
góður. Ég geri ekki ráð fyrir að við
munum fjölga fénu á næstunni
þrátt fyrir að húsið sé gert fyrir 90
mjólkurær.
Að okkar mati eru 70 ær passlegt
með öðru sem við erum að gera.“
byko.is
YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁL-
KLÆDDAR SAMLOKUEININGAR
SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS-
EÐA STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og
fást með mismunandi yfirborði og litum að
eigin vali. Helstu kostir þess að nota samloku-
einingar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld
þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er
ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir
ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum
evrópskum stöðlum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
YLEININGAR
Nadia Halleux við mjaltir.
„Við ákváðum að kaupa fjórar kindur til að beita landið svo að það færi ekki í órækt.“
Að okkar mati eru 70 ær passlegt með öðru sem við erum að gera.
Framleiðsla og salan hefur gengið vonum framar og markmiðið er að vera
með 70 mjólkandi kindur.
Jón og Nadia framleiða skyr úr kúamjólk sem þau kaupa af nágrannabýli.