Bændablaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 2022 43
GOES COBALT 550 MAX LTD 4x4
2ja manna hjól, raéttistýri,
spil o.. 3 litir.
GOES IRON 450 4x4
GOES COPPER 3 2x4
GOES COPPER 2 2x4
GOES UTX 700 4x4
2ja manna vinnutæki
með palli, raéttistýri,
spili o..
HÁ verslun ehf tók við umboði Husqvarna byggingavörum á
Íslandi þann 11. júní.
• Steinsagir
• Kjarnaborvélar
• Jarðvegsþjöppur
• Sagarblöð
• Kjarnaborar
Víkurhvarfi 4 - 203 Kópavogur
Opið mán. - fös. kl. 8-17.
S. 588-0028
haverslun@haverslun.is
haverslun.is
Þjónustuverkstæði og varahlutir
Husqvarna K970
15,5 cm sögunardýpt
Husqvarna K3600
Vökvasög
Sögunardýpt 27cm
Bændasamtök Íslands
auglýsa eftir framboðum
til formannskjörs
Frambjóðendur skulu gera grein fyrir nafni sínu,
kennitölu og búgrein. Einnig skal hver og einn
frambjóðandi skila ljósmynd og allt að 200 orða
kynningartexta með framboði sínu.
Efnið verður notað til að kynna framboðið.
Frambjóðendum er að auki heimilt að láta fylgja
með ferilskrá og senda með hlekki inn á heimasíðu,
samfélagsmiðla og annað sem tengist framboði þeirra.
Kjörstjórn er skipuð af eftirfarandi aðilum:
Guðrún Vaka Steingrímsdóttir, formaður
Guðrún Birna Brynjarsdóttir
Erla Hjördís Gunnarsdóttir.
Samkvæmt 6. gr. samþykkta Bændasamtaka Íslands,
skal skila inn framboðum til formanns samtakanna
eigi síðar en tveimur mánuðum fyrir Búnaðarþing. Allir
félagsmenn sem teljast fullgildir í samtökunum frá og
með 31. desember 2021 geta boðið sig fram til formanns.
Framboðsfrestur er til miðnættis 30. janúar 2022 og skal
framboðum skilað inn á netfangið kjorstjorn@bondi.is.
Bændahöllin Hagatorgi 1, 107 Reykjavík
Til sölu rótgróið rafverktaka fyrirtæki á Vesturlandi.
Fyrirtækið er í eigin húsnæði og með góða verkefnastöðu.
Getur selst með eða án húsnæðis.
Áhugavert fyrir rafvirkja sem vill búa úti á landi.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar.
LÍF&STARF
Rangárþing ytra efndi nýlega til
slagorðakeppnis um slagorð fyrir
sveitarfélagið. Fjölmargar tillögur
bárust en sú sem vann kom frá
Árna Frey Magnússyni en það er
slagorðið „Fyrir okkur öll“.
„Með slagorðinu finnst mér
sveitarfélagið gefa það skýrt til
kynna að í Rangárþingi ytra sé
samfélag sem hugsi vel um íbúa
en býður á sama tíma gesti og þá
sem vilja setjast að í sveitarfélaginu
velkomna. Slagorðið undirstrikar
að sveitarfélaginu sé bæði annt
um fyrirtæki og fjölskyldur og
allar þær fjölmörgu atvinnugreinar
sem einkenna fjölbreytt atvinnulíf
sveitarfélagsins.
Einnig býr slagorðið til
samheldnistilfinningu hjá íbúum og
þá tilfinningu að íbúar séu hluti af
heild og að við séum samfélag sem
skilji engan út undan. Vilji sé þá hjá
sveitarfélaginu til að vera til staðar
„Fyrir okkur öll“, segir Árni Freyr.
/MHH
Árni Freyr Magnússon, sem átti hugmyndina að slagorðinu sem var kosið
sem slagorð Rangárþings ytra, fékk afhenta gjafakörfu frá Sólrúnu Helgu
Guðmundsdóttur, formanni atvinnu-, jafnréttis- og menningarmálanefndar
sveitarfélagsins, þegar úrslit úr samkeppninni urðu ljós. Mynd/Rangárþing ytra
„Fyrir okkur öll“ er nýtt
slagorð Rangárþings ytra
Fulltrúar þriggja sveitarfélaga
í Uppsveitum Árnessýslu hafa
sent heilbrigðisráðuneytinu
erindi þar sem óskað er eftir því
að hjúkrunarheimili verði byggt
á svæðinu.
Þetta eru Hrunamannahreppur,
Bláskógabyggð og Grímsnes- og
Grafningshreppur. Sérstaka athygli
vekur að Skeiða- og Gnúpverjahreppur
er ekki með í umsókninni. Þann 1.
janúar 2021 voru skráðir 3.048 íbúar
í Uppsveitum Árnessýslu. Þar af var
fjöldi íbúa á aldrinum 65-100 ára 469
einstaklingar, eða um 15% í heildina
af íbúunum.
„Öldruðum fjölgar hratt og ekki
er boðlegt í nútímasamfélagi að
aldrað fólk hafi lítið sem ekkert
val og sé jafnvel flutt langar leiðir í
önnur sveitarfélög til að verja síðustu
árunum fjarri sínum nánustu. Það er
nauðsynlegt byggðasjónarmið að í
Uppsveitunum verði veitt þjónusta frá
vöggu til grafar,“ segir m.a. í umsögn
með erindinu. /MHH
Uppsveitir Árnessýslu:
Sveitarfélögin vilja
hjúkrunarheimili