Bændablaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 53

Bændablaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 53
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 2022 53 Nú liggur fyrir að mikil hækkun er á áburðarverði milli ára. Kaup á tilbúnum áburði hafa verið stærsti einstaki kostnaðarliðurinn á sauð- fjárbúum og sá næststærsti á kúa- búum og því verður þessi hækk- un mjög íþyngjandi fyrir rekstur þessara búa sem og annarra sem þurfa að heyja í bústofninn. Ekki er víst að öll bú geti brugð- ist við með því að minnka áburðar- kaup sem neinu nemur án þess að uppskera af heyi dragist saman. Í einhverjum tilvikum er það þó senni- lega hægt og verða hér nefnd nokkur atriði sem velta má fyrir sér í því sambandi. Þegar verið er að skipuleggja áburðarkaup er mikilvægt að gera sem besta áburðaráætlun en til þess er nauðsynlegt að áætla fóðurþörf komandi árs með nokkuð nákvæmum hætti. Þarf þannig að áætla bústofn næsta vetrar, hverjar fóðurþarfir eru á hverja tegund búfjár eftir tíma ársins og hversu mikið heildarmagn gróffóðurs þarf að vera til af hverjum gæðaflokki. Jarðvegur og forði næringarefna Þegar meta skal hve mikið þarf að bera á eru ýmsir þættir sem þarf að meta og geta sagt til um áburðarþörfina. Jarðvegur er misjafnlega frjósamur og misjafnt hve mikið hann geymir af plöntunærandi efnum. Sýrustig jarðvegs er mikilvægt, þannig má reikna með að í jarðvegi með lágt sýrustig (lágt pH gildi) séu mikilvæg næringaraefni minna aðgengileg plöntum en í lítið súrum jarðvegi með heppilegu sýrustigi. Þetta á m.a. við um fosfór sem binst fast við járn og ál í súrum jarðvegi. Sé sýrustig jarðvegs á hæfilegu bili, pH um eða yfir 6 má reikna með bestri nýtingu áburðarins. Við langvarandi notkun á áburði byggist upp forði í efsta lagi jarðvegsins af þeim efnum sem áburðurinn inniheldur, það á ekki síst við ef notkun á búfjáráburði hefur verið regluleg. Hve mikil áburðargjöfin hefur verið ræður því hvort og þá hversu mikil þessi forðasöfnun verður. Við þessar aðstæður þarf uppskera ekki endilega að minnka þó tímabundið sé dregið úr áburðargjöf, a.m.k. í hagstæðu árferði. Uppsöfnun næringarefna úr áburðinum er mest í efstu 5-10 cm jarðvegsins. Þegar tún er plægt upp lendir þessi forði að miklu leyti neðst í plógstrengnum sem þýðir að hann er ekki að nýtast þeim plöntum sem sáð er í flagið fyrr en rótarkerfi þeirra nær þeirri dýpt og er breytilegt milli tegunda hve auðveldlega þær ná í þennan forða. Sumt grænfóður gerir það og getur gefið mikla uppskeru með hóflegri áburðargjöf við þessar aðstæður. Við endurteknar plægingar blandast næringarefnin í jarðveginn, í það lag sem nemur plógdýptinni. Helstu næringarefni Það er mikilvægt að bera á hæfilegt magn af áburði til að fá það uppskerumagn sem stefnt er að, en áburðargjöfin hefur einnig áhrif á fóðurgæðin, s.s. innihald af próteini og steinefnum. Sum fóðurefnin, til dæmis prótein, er mikilvægt að hafa í réttu magni í heyjum og það má gera með réttri áburðargjöf. Önnur efni eins og ýmis steinefni getur verið hagkvæmara að kaupa í steinefnablöndum frekar en að ná með aukinni áburðargjöf sem ekki gefur meiri uppskeru. Til að ákveða áburðarþarfir einstakra spildna má nota almennar töflur um áburðarþarfir eins og finna má m.a. á heimasíðu RML, en til að meta hvort áburðargjöf líðandi árs hafi verið hæfileg má hafa mikið gagn af heyefnagreiningum og varðandi áburðargjöfina til lengri tíma einnig af jarðvegsefnagreiningum. Sem dæmi um notkun heyefnagreininga má nefna prótein í heyi sem mat á magni köfnunarefnisáburðar. Kjörmagn köfnunarefnis í uppskeru m.t.t. sprettu mælt sem innihald af hrápróteini er 150-175 g/kg þe. Sé hráprótein 130 g/kg þe eða lægra má reikna með að viðbót af köfnunarefnisáburði hefði gefið aukna uppskeru ef aðstæður, s.s. þurrkur eða önnur slæm vaxtarskilyrði, hindra það ekki. Kjörmagn fyrir fosfór í heyi er um 2,2-3,5 g/kg þe og kalí um 18-25 g/ kg þe. Ef fosfór í heyi er aðeins 2,2- 2,5 g/kg þe eða lægra og ef kalí er um 13-15 g/kg þe eða lægra myndi meira magn áborið af viðkomandi næringarefni líklega hafa aukið uppskerumagn. Aukinn fjöldi heysýna með lágu innihaldi af kalí bendir til að sums staðar sé lágt kalí að hamla sprettu og þar þurfi að auka kalígjöf. Þegar innihald einstakra efna er mjög hátt í heyi er mjög líklegt að minnka megi áburðargjöf á viðkomandi næringarefnum án þess að uppskera verði minni. Viðmið sem þessi eru hjálpleg en þarf þó að taka með fyrirvara þegar árferði veldur óeðlilegri sprettu grasa með einhverjum hætti. Hér er alltaf mælt með að heysýni séu tekin á hverju ári. Þegar verið er að túlka niður- stöður heysýna þá eru sett ákveðin staðalviðmið samkvæmt rannsóknum sem eru birtar í efnagreiningarniðurstöðum. Það þarf að hafa í huga að þetta eru meðalviðmið og geta ýmsir þættir haft áhrif þannig að niðurstaðan falli ekki að viðmiðum, svo sem sláttutími, rakastig, hitastig og fleira. Það sem skiptir mestu máli í túlkun heysýna er að túlka þau eftir aðstæðum hverju sinni. Það er til dæmis eðlilegt að efnainnihald í seinslegnum heyjum sé lægra en í snemmslegnum heyjum. Ef hitastig fyrri part sumars er hátt en fellur hratt þegar líður á sumar er líklegt að efnainnihald gróðurs falli hraðar en ef hitastig helst stöðugt. Að sama skapi er líklegt að ef kalt er fyrri part sumars haldi gróður efnainnihaldi lengur fram á haustið. Búfjáráburður, efnamagn og þurrefni Það er mikilvægt að nýta þann búfjáráburð sem fellur til á búinu sem allra best og má með því spara talsvert í kaupum á tilbúnum áburði. Besti tíminn til dreifingar er þegar grös eru að byrja eða komin af stað í sprettu að vori en einnig milli slátta eða tímanlega á haustin. Rétt er að minna á þætti í veðurfari við dreifingu sem hafa áhrif á nýtingu köfnunarefnis úr búfjáráburðinum en það eru hitastig, vindur og raki eða úrkoma. Best er að dreifing fari fram í logni, við lágt hitastig og röku lofti, helst að það rigni hæfilega eftir dreifingu. Að sama skapi er ekki gott að dreifa á þegar hlýtt er í veðri, þurrt og vindur. Nýting á köfnunarefni úr mykju verður betri eftir því sem mykjan er þynnri. Reikna má með að þetta gildi fyrir mykju sem inniheldur niður í 2% þurrefni. Mælingar hafa sýnt að innihald búfjáráburðar er breytilegt milli búa og getur þar munað nokkuð miklu á einstökum næringarefnum og hlutföllum þeirra. Það getur því verið ónákvæmt að notast við töflugildi til að meta áborin næringarefni úr búfjáráburði. Til að vita vissu sína um innihald hans ættu bændur því að taka sýni úr honum á því formi sem hann er við dreifingu. Mikilvægt er þá að vita bæði efnainnihald og þurrefni. Ekki er síður mikilvægt að vita hvað þurrefnið er í mykjunni þegar henni er dreift til að geta reiknað áborið magn næringarefna. Það er þetta með sparnaðinn ... Þegar áburðarverð hækkar svo mikið sem núna lítur út fyrir að verði afar freistandi að spara verulega í áburðarmagni á móti. Hér þarf þó að gæta þess að spara sér ekki til skaða þar sem sparnaður í næringarefnum getur bæði minnkað uppskerumagn þannig að uppskera verði of lítil, gæði uppskeru geta orðið of lítil ásamt því að gengið verði á næringarefnaforða jarðvegis. Jafnframt getur of mikill sparnaður í áburðargjöf valdið minnkun afurða og þar með gæti sá sparnaður sem fyrirhugaður er í áburðarmagni lækkað tekjur þannig að ávinningurinn sé enginn. Því gildir hér að gæta meðalhófs. Gera nákvæmar áætlanir, spara þar sem færi gefast og vanda síðan vel til allrar meðferðar og dreifingar á áburðinum. A Wendel ehf. Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík, S:551 5464 - wendel@wendel.is www.wendel.is Hilltip Icestriker 900–1600L Salt og sanddreifari í tveim stærðum fyrir stóra pallbíla og minni vörubíla. Rafdrifinn 12V. Hilltip Icestriker 380–550L Salt og sanddreifarari í tveim stærðum, fyrir minni pallbíla. Rafdrifinn 12V. Hilltip Icestriker 600 TR Rafdrifinn kastdreifari fyrir dráttarvélar m/öflugum efnisskömmtunarbúnaði. Hilltip Snowstriker VP Fjölplógur fyrir pallbíla, minni vörubíla og jeppa. Fáanlegur í 185–240 cm breidd. Hilltip Snowstriker SP Snjótönn fyrir pallbíla, minni vörubíla og jeppa. Fáanleg í 165–240 cm breidd. Hilltip Fjölplógur MVP Fjölplógur fyrir ameríska pallbíla t.d. RAM 3500, GMC 3500 og FORD 350. Betri nýting áburðar – betri afkoma Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Sigríður Ólafsdóttir ráðunautur, rekstrar- og tæknisvið so@rml.is Eiríkur Loftsson ráðunautur, rekstrar- og umhverfissvið el@rml.is Það er mikilvægt að bera á hæfilegt magn af áburði til að fá það uppskerumagn sem stefnt er að, en áburðargjöfin hefur einnig áhrif á fóðurgæðin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.