Bændablaðið - 13.01.2022, Side 53
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 2022 53
Nú liggur fyrir að mikil hækkun er
á áburðarverði milli ára. Kaup á
tilbúnum áburði hafa verið stærsti
einstaki kostnaðarliðurinn á sauð-
fjárbúum og sá næststærsti á kúa-
búum og því verður þessi hækk-
un mjög íþyngjandi fyrir rekstur
þessara búa sem og annarra sem
þurfa að heyja í bústofninn.
Ekki er víst að öll bú geti brugð-
ist við með því að minnka áburðar-
kaup sem neinu nemur án þess að
uppskera af heyi dragist saman. Í
einhverjum tilvikum er það þó senni-
lega hægt og verða hér nefnd nokkur
atriði sem velta má fyrir sér í því
sambandi.
Þegar verið er að skipuleggja
áburðarkaup er mikilvægt að
gera sem besta áburðaráætlun en
til þess er nauðsynlegt að áætla
fóðurþörf komandi árs með nokkuð
nákvæmum hætti. Þarf þannig að
áætla bústofn næsta vetrar, hverjar
fóðurþarfir eru á hverja tegund
búfjár eftir tíma ársins og hversu
mikið heildarmagn gróffóðurs þarf
að vera til af hverjum gæðaflokki.
Jarðvegur og forði næringarefna
Þegar meta skal hve mikið þarf að bera
á eru ýmsir þættir sem þarf að meta
og geta sagt til um áburðarþörfina.
Jarðvegur er misjafnlega frjósamur
og misjafnt hve mikið hann geymir
af plöntunærandi efnum. Sýrustig
jarðvegs er mikilvægt, þannig má
reikna með að í jarðvegi með lágt
sýrustig (lágt pH gildi) séu mikilvæg
næringaraefni minna aðgengileg
plöntum en í lítið súrum jarðvegi
með heppilegu sýrustigi. Þetta á m.a.
við um fosfór sem binst fast við járn
og ál í súrum jarðvegi. Sé sýrustig
jarðvegs á hæfilegu bili, pH um eða
yfir 6 má reikna með bestri nýtingu
áburðarins.
Við langvarandi notkun á
áburði byggist upp forði í efsta lagi
jarðvegsins af þeim efnum sem
áburðurinn inniheldur, það á ekki
síst við ef notkun á búfjáráburði
hefur verið regluleg. Hve mikil
áburðargjöfin hefur verið ræður
því hvort og þá hversu mikil þessi
forðasöfnun verður. Við þessar
aðstæður þarf uppskera ekki
endilega að minnka þó tímabundið
sé dregið úr áburðargjöf, a.m.k. í
hagstæðu árferði.
Uppsöfnun næringarefna úr
áburðinum er mest í efstu 5-10 cm
jarðvegsins. Þegar tún er plægt upp
lendir þessi forði að miklu leyti neðst
í plógstrengnum sem þýðir að hann
er ekki að nýtast þeim plöntum sem
sáð er í flagið fyrr en rótarkerfi þeirra
nær þeirri dýpt og er breytilegt milli
tegunda hve auðveldlega þær ná í
þennan forða. Sumt grænfóður gerir
það og getur gefið mikla uppskeru
með hóflegri áburðargjöf við þessar
aðstæður. Við endurteknar plægingar
blandast næringarefnin í jarðveginn,
í það lag sem nemur plógdýptinni.
Helstu næringarefni
Það er mikilvægt að bera á
hæfilegt magn af áburði til að fá
það uppskerumagn sem stefnt er
að, en áburðargjöfin hefur einnig
áhrif á fóðurgæðin, s.s. innihald
af próteini og steinefnum. Sum
fóðurefnin, til dæmis prótein, er
mikilvægt að hafa í réttu magni í
heyjum og það má gera með réttri
áburðargjöf. Önnur efni eins og ýmis
steinefni getur verið hagkvæmara
að kaupa í steinefnablöndum frekar
en að ná með aukinni áburðargjöf
sem ekki gefur meiri uppskeru. Til
að ákveða áburðarþarfir einstakra
spildna má nota almennar töflur um
áburðarþarfir eins og finna má m.a.
á heimasíðu RML, en til að meta
hvort áburðargjöf líðandi árs hafi
verið hæfileg má hafa mikið gagn
af heyefnagreiningum og varðandi
áburðargjöfina til lengri tíma einnig
af jarðvegsefnagreiningum. Sem
dæmi um notkun heyefnagreininga
má nefna prótein í heyi sem mat
á magni köfnunarefnisáburðar.
Kjörmagn köfnunarefnis í uppskeru
m.t.t. sprettu mælt sem innihald af
hrápróteini er 150-175 g/kg þe.
Sé hráprótein 130 g/kg þe eða
lægra má reikna með að viðbót af
köfnunarefnisáburði hefði gefið
aukna uppskeru ef aðstæður,
s.s. þurrkur eða önnur slæm
vaxtarskilyrði, hindra það ekki.
Kjörmagn fyrir fosfór í heyi er um
2,2-3,5 g/kg þe og kalí um 18-25 g/
kg þe. Ef fosfór í heyi er aðeins 2,2-
2,5 g/kg þe eða lægra og ef kalí er
um 13-15 g/kg þe eða lægra myndi
meira magn áborið af viðkomandi
næringarefni líklega hafa aukið
uppskerumagn. Aukinn fjöldi
heysýna með lágu innihaldi af kalí
bendir til að sums staðar sé lágt kalí
að hamla sprettu og þar þurfi að auka
kalígjöf. Þegar innihald einstakra
efna er mjög hátt í heyi er mjög
líklegt að minnka megi áburðargjöf á
viðkomandi næringarefnum án þess
að uppskera verði minni. Viðmið
sem þessi eru hjálpleg en þarf þó
að taka með fyrirvara þegar árferði
veldur óeðlilegri sprettu grasa með
einhverjum hætti. Hér er alltaf mælt
með að heysýni séu tekin á hverju
ári.
Þegar verið er að túlka niður-
stöður heysýna þá eru sett
ákveðin staðalviðmið samkvæmt
rannsóknum sem eru birtar í
efnagreiningarniðurstöðum. Það
þarf að hafa í huga að þetta eru
meðalviðmið og geta ýmsir þættir
haft áhrif þannig að niðurstaðan
falli ekki að viðmiðum, svo sem
sláttutími, rakastig, hitastig og
fleira. Það sem skiptir mestu máli
í túlkun heysýna er að túlka þau
eftir aðstæðum hverju sinni. Það er
til dæmis eðlilegt að efnainnihald í
seinslegnum heyjum sé lægra en í
snemmslegnum heyjum. Ef hitastig
fyrri part sumars er hátt en fellur
hratt þegar líður á sumar er líklegt
að efnainnihald gróðurs falli hraðar
en ef hitastig helst stöðugt. Að sama
skapi er líklegt að ef kalt er fyrri part
sumars haldi gróður efnainnihaldi
lengur fram á haustið.
Búfjáráburður, efnamagn
og þurrefni
Það er mikilvægt að nýta þann
búfjáráburð sem fellur til á búinu
sem allra best og má með því spara
talsvert í kaupum á tilbúnum áburði.
Besti tíminn til dreifingar er þegar
grös eru að byrja eða komin af stað
í sprettu að vori en einnig milli
slátta eða tímanlega á haustin. Rétt
er að minna á þætti í veðurfari við
dreifingu sem hafa áhrif á nýtingu
köfnunarefnis úr búfjáráburðinum
en það eru hitastig, vindur og raki
eða úrkoma. Best er að dreifing fari
fram í logni, við lágt hitastig og röku
lofti, helst að það rigni hæfilega
eftir dreifingu. Að sama skapi er
ekki gott að dreifa á þegar hlýtt er
í veðri, þurrt og vindur. Nýting á
köfnunarefni úr mykju verður betri
eftir því sem mykjan er þynnri.
Reikna má með að þetta gildi fyrir
mykju sem inniheldur niður í 2%
þurrefni.
Mælingar hafa sýnt að innihald
búfjáráburðar er breytilegt milli
búa og getur þar munað nokkuð
miklu á einstökum næringarefnum
og hlutföllum þeirra. Það getur
því verið ónákvæmt að notast
við töflugildi til að meta áborin
næringarefni úr búfjáráburði. Til
að vita vissu sína um innihald hans
ættu bændur því að taka sýni úr
honum á því formi sem hann er
við dreifingu. Mikilvægt er þá að
vita bæði efnainnihald og þurrefni.
Ekki er síður mikilvægt að vita hvað
þurrefnið er í mykjunni þegar henni
er dreift til að geta reiknað áborið
magn næringarefna.
Það er þetta með sparnaðinn ...
Þegar áburðarverð hækkar svo
mikið sem núna lítur út fyrir að
verði afar freistandi að spara
verulega í áburðarmagni á móti. Hér
þarf þó að gæta þess að spara sér
ekki til skaða þar sem sparnaður í
næringarefnum getur bæði minnkað
uppskerumagn þannig að uppskera
verði of lítil, gæði uppskeru
geta orðið of lítil ásamt því að
gengið verði á næringarefnaforða
jarðvegis. Jafnframt getur of mikill
sparnaður í áburðargjöf valdið
minnkun afurða og þar með gæti
sá sparnaður sem fyrirhugaður er í
áburðarmagni lækkað tekjur þannig
að ávinningurinn sé enginn. Því
gildir hér að gæta meðalhófs. Gera
nákvæmar áætlanir, spara þar sem
færi gefast og vanda síðan vel til
allrar meðferðar og dreifingar á
áburðinum.
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S:551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker 900–1600L
Salt og sanddreifari í tveim
stærðum fyrir stóra pallbíla og
minni vörubíla. Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 380–550L
Salt og sanddreifarari í tveim
stærðum, fyrir minni pallbíla.
Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 600 TR
Rafdrifinn kastdreifari
fyrir dráttarvélar m/öflugum
efnisskömmtunarbúnaði.
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegur í
185–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótönn fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanleg í
165–240 cm breidd.
Hilltip Fjölplógur MVP
Fjölplógur fyrir ameríska
pallbíla t.d. RAM 3500,
GMC 3500 og FORD 350.
Betri nýting áburðar
– betri afkoma
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Sigríður Ólafsdóttir
ráðunautur, rekstrar-
og tæknisvið
so@rml.is
Eiríkur Loftsson
ráðunautur, rekstrar-
og umhverfissvið
el@rml.is
Það er mikilvægt að bera á hæfilegt magn af áburði til að fá það uppskerumagn sem stefnt er að, en áburðargjöfin hefur einnig áhrif á fóðurgæðin.