Bændablaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. janúar 20224
Framtíðarstaða garðyrkjunáms
á Reykjum er enn óljós og hægt
gengur með yfirfærslu námsins
frá Landbúnaðarháskóla Íslands
til Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Um 11 milljónir fengust til FSu í
fjárveitingu til yfirfærslunnar og
óvissa ríkir um stöðu núverandi
starfsmanna Garðyrkjuskólans.
Fyrir rúmu ári ákvað þáverandi
mennta- og menningarmálaráðherra,
Lilja Alfreðsdóttir, að starfs-
menntanám í garðyrkju skyldi flutt
frá Landbúnaðarháskóla Íslands
yfir til Fjölbrautaskóla Suðurlands
en miklar deilur höfðu staðið
milli atvinnulífs garðyrkjunnar
og yfirstjórnar LbhÍ um stöðu og
um gjörð námsins við Landbúnaðar-
háskólann.
Stuttu fyrir áramót fékkst staðfest
af nýjum menntamálaráðherra,
Ásmundi Einari Daðasyni, að
ákvörðun fyrri ráðherra stæði og að
starfsmenntanámið ætti að flytjast
yfir til Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Til yfirfærsluverkefnisins eru ætlaðar
11 milljónir króna á þessu ári en
önnur fjármögnun virðist ekki í höfn.
Námið er enn á ábyrgð LbhÍ en
gert er ráð fyrir að það flytjist til FSu
þann 1. ágúst næstkomandi eða við
upphaf skólaársins 2022-23.
Flókin yfirfærsla
Eins og gefur að skilja er yfirfærsla
námsins flókið ferli og meðal þess
sem þarf að gera er að fella námið
að starfinu í FSu. Námskrár allra
sex brauta garðyrkjunámsins,
sem menntamálaráðuneytið
samþykkti sumarið 2018 og eru
inni í námskrárgrunni Menntamála-
stofnunar, voru unnar í nánu samstarfi
milli atvinnulífs garðyrkjunnar og
starfsmanna Garðyrkjuskóla LbhÍ.
FSu hefur nú verið falið af
menntamálaráðuneytinu að semja enn
á ný námskrá fyrir garðyrkjubrautir,
fella námið að framhaldsskólalögum
og koma því inn í námskrárgrunn
Menntamála stofnunar. Það sætir
furðu að upplýsingaflæði innan
ráðuneytisins sé ekki markvissara
en raun ber vitni, hér virðist eiga að
vinna sömu vinnuna aftur en nú án
formlegrar aðkomu hagsmunaaðila.
Samkvæmt upplýsingum
Bændablaðsins hefur Arna Garðars-
dóttir, fyrrverandi starfsmannastjóri
LbhÍ og systir Olgu Lísu Garðars-
dóttur, skólameistara FSu, verið
ráðin til að leiða yfirfærsluna eða
hluta hennar.
Óvissa um húsnæði
og aðra aðstöðu
Á sama tíma og yfirfærsla náms-
ins á sér stað ríkir enn óvissa
um framtíðarhúsnæði og að-
stöðu Garðyrkjuskólans. Í dag
telst húsnæði og lendur sem eign
LbhÍ, enda fylgdi það með þegar
Garðyrkjuskólinn rann inn í LbhÍ
árið 2004. Ekki er búið að ganga
frá því hver fer með forræði á
Reykjum eftir að garðyrkjunámið
fer út úr LbhÍ. Á Reykjum hefur á
síðustu 80 árum þróast og byggst
upp mjög sérhæfð aðstaða til bók-
legrar og verklegrar kennslu á öllum
brautum garðyrkjunáms sem þarf
að tryggja til framtíðar. Aðstaðan er
einstök og verður ekki byggð upp í
einu vetfangi annars staðar og kostar
stórfé og tíma.
Fjárveitingar frá LbhÍ til
verkefna og viðhalds húsnæðis
Garðyrkjuskólans eru í lágmarki
vegna núverandi stöðu og að sögn
starfsmanna hefur starfsemin á
Reykjum í raun verið í fjársvelti
frá því ákvörðun var tekin um að
flytja námið annað. Þrátt fyrir það
er garðyrkjunámið enn í verkahring
LbhÍ og væntanlega hefur skólinn
fengið fjármagn frá ríkinu til að
sinna því með eðlilegum hætti.
Viðræður enn í gangi
Sigursveinn Már Sigurðsson,
aðstoðar skólameistari FSu, segir
að viðræður um flutning garð yrkju-
námsins séu enn í gangi og meðal
annars hafi verið rætt við kennara
skólans um stöðu þeirra eftir yfir-
færsluna. „Við eigum einnig í við-
ræðum við Landbúnaðarháskólann
í tengslum við húsnæði á Reykjum
til kennslu.“
Að sögn Sigursveins miðast
undirbúningur FSU við að geta
innritað nemendur í námið næsta
haust.
Olga Lísa, skólameistari FSu,
sagði í Bændablaðinu á síðasta ári
að FSU hafi sett það sem skilyrði
vegna yfirtökunnar að Ríkiseignir
ábyrgist húsnæði sem verður notað
í tengslum við námið.
„Við höfum líka sagt skýrt að
við viljum ekki taka ábyrgð á lélegu
eða ónýtu húsnæði á Reykjum.
Garðyrkjunámið kemur til með að
vera áfram að Reykjum en hins
vegar er vel hugsanlegt að einhverjir
áfangar í bóknámi verði samkeyrðir
með öðrum brautum við FSu.“
Sigursveinn segir að þessi afstaða
Olgu sé enn í gildi
Að sögn Sigursveins er rekstur
Garðyrkjuskólans þungur og skortur
er á fé til verklegu kennslunnar.
„Næstu skref eru að fá meiri
upplýsingar á raunkostnaði
starfsnámsins í garðyrkju en það
er ótvírætt okkar vilji að ljúka
yfirfærslunni á sem farsælastan hátt
fyrir alla aðila og garðyrkjunáminu
til heilla í framtíðinni.“
LbhÍ stundar áfram rannsóknir
að Reykjum
Í svari Ragnheiðar Þórarinsdóttur,
rektors Landbúnaðarháskóla
Íslands, vegna yfirfærslunnar segir
að FSu sé að undirbúa yfirfærsluna
á náminu til sín og að LbhÍ vinni
áfram að sínum rannsóknum á sviði
garðyrkju og umhverfisvísinda á
svæðinu.
Ekkert samráð við fagfélög
og starfsmenn
Samkvæmt heimildum Bænda-
blaðs ins hefur lítið verið leitað
til starfsfólks og kennara við
Garðyrkjuskólann vegna yfirfærsl-
unnar. Auk þess sem ekkert samráð
hefur verið haft við fagfélög garð-
yrkjunnar vegna þessara breytinga
á högum garð yrkju námsins. Starfs-
menntanám í garðyrkju hefur verið
í góðum tengslum við greinina og
atvinnu lífið og því er það nýlunda
að þessir aðilar séu ekki fengnir
formlega að borðinu.
Samkvæmt einum viðmælanda
er eins og menntamálaráðuneytið
haldi hagsmunaaðilum sem
tengjast náminu markvisst frá
viðræðum um framtíð þess og
telji að þeir hafi ekkert með
það að gera. Það er þeim mun
undarlegra þegar það var samstillt
átak atvinnulífs garðyrkjunnar að
bjarga náminu undan LbhÍ að menn
séu ekki hafðir með í ráðum um
framtíðarfyrirkomulag námsins.
Þetta myndi ekki gerast í neinum
öðrum iðngreinum.
Flest óljóst
Guðríður Helgadóttir, starfsmaður á
Reykjum, segir að enn sé flest óljóst
um framtíð starfsmenntanámsins
og kennarar og aðrir starfsmenn
óvissir um framtíð sína við skólann.
„Einn sérfræðingur hefur nú
þegar hætt störfum og aðrir íhuga
sína stöðu. Ekki hefur verið ráðið í
stöður sem hafa losnað sem eykur
vinnuálag á þá sem eftir eru og var
það nóg fyrir. Auk þess sem þessi
óvissa komi niður á nemendum
skólans, hvort sem þeir eru í staðar-
eða fjarnámi.
Lilja Alfreðsdóttir fundaði með
starfsfólki hér á Reykjum í fyrra og
fullvissaði starfsfólkið um að staða
þess myndi ekki breytast vegna
yfirfærslunnar en í dag virðist
allt óljóst með það. Kennarar við
skólann eru allir reynslumiklir
og hæfir fagmenn á sínu sviði og
hafa haldið utan um þetta nám
um árabil. Enginn þeirra er þó
með löggild kennsluréttindi fyrir
framhaldsskóla í dag, enda voru
þeir ráðnir til kennslu á sínum tíma
samkvæmt búnaðarfræðslulögum.
Í þeim lögum var ekki krafa um
kennsluréttindi heldur var skólunum
heimilt að ráða sérfræðinga á sviði
garðyrkju til kennslustarfa, hvort
sem var í starfsmenntanámi eða
háskólanámi.
Sá vandi blasir við að við yfir-
færslu námsins er kennurum skól-
ans gert að flytja sig milli stofn-
ana á sama tíma sem FSu er sam-
kvæmt lögum skylt að ráða til sín
kennara með gild kennsluréttindi
fyrir framhaldsskóla. Allir þeir sem
sinna kennslu í garðyrkjunáminu
eru sérfræðingar á sínu sviði en
þetta er ekki stór hópur fólks. Það
er ekki eins og hægt sé að grípa
næsta mann og fá hann til að kenna
sérhæfð garðyrkjufræði, frekar
en í öðrum atvinnugreinum. Þar
fyrir utan koma allir starfsmenn á
Reykjum að kennslunni með einum
eða öðrum hætti þannig að það þarf
liðsheild til að sinna því verkefni
sem garðyrkjukennslan er. Hér eru
allir ómissandi.“
/VH
FRÉTTIR
Garðyrkjuskólinn:
Verkmenntun í garðyrkju á tímamótum
Fjölbrautaskóli Suðurlands.
Guðríður Helgadóttir, graðyrkju fræð
ingur og starfsmaður á Reykjum.
Ragnheiður Þórarinsdóttir, rektor
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Olga Lísa Garðarsdóttir, skóla meist
ari Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Sigursveinn Sigurðsson, aðstoðar
skóla meistari FSu.
Framtíðarstaða garðyrkjunáms á Reykjum er enn óljós og yfirfærslu námsins
frá Landbúnaðarháskóla Íslands til Fjölbrautaskóla Suðurlands miðar hægt.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is