Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 1
4. tölublað 2022 ▯ Fimmtudagur 24. febrúar ▯ Blað nr. 605 ▯ 28. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Íslenskir ávaxtabændur á Kanaríeyjum
senda ferskar lárperur heim
– Nýta sér ferðamannaloftbrúna milli fróns og eyja
Um tonn af ferskum lárperum
er flutt inn hingað til lands beint
frá Kanaríeyjum í viku hverri.
Hafsteinn Helgi Halldórsson
ávaxtabóndi segir kjörið að
efla enn betur tengingar milli
eyjaklasans og Íslands, enda
njóti bragðlaukar Íslendinga afar
góðs af styttri flutningsleiðum á
ferskum ávöxtum.
Fersk lárpera (avókadó) frá
Kanaríeyjum er nú á boðstólum í
verslunum Krónunnar. Innflutn
ingurinn er í höndum Hafsteins
Helga og konu hans, Guðrúnar Öglu
Egilsdóttur, sem búa hluta árs á eyj
unni La Palma. Þar stunda þau líf
ræna ræktun á tveggja hektara landi
sínu og hyggjast framleiða ávexti
ætlaða fyrir íslenskan markað.
„Maður vill borða ávexti sem
næst upprunastaðnum. Það er
mikilvægt fyrir næringargildi og
þau gæði sem ávöxturinn hefur
upp á að bjóða. Þar sem um miklu
styttri vegalengd er að ræða þá eru
lárperurnar margfalt bragðbetri.
Þau eru smjörmjúk og algjör
undantekning á að þau verði svört
að innan. Það er svo margt sem á
sér stað síðustu viku og dagana í
þroskaferli ávaxtanna og því er
mikilvægt að þau fái að þroskast á
trjánum. Þá myndast góða bragðið
sem við sækjumst eftir. Við höfum
klippt lárperur af trjánum hér um
morguninn og þau verið komin til
Íslands seinni part sama dags.“
Ísland sem níunda Kanaríeyjan
Ákveðin loftbrú hefur myndast
milli Íslands og Tenerife enda þykir
mörgum eftirsóknarvert að dvelja
þar syðra, sérstaklega yfir köldustu
vetrarmánuðina.
„Við tryggðum okkur smá pláss
í reglubundnu farþegaflugi fyrir
vörurnar okkar. Meðan verið er
að ferja þúsundir manna til og frá
Íslandi má um leið efla tenginguna
á annan hátt, enda eigum við margt
sameiginlegt, s.s. stórbrotna náttúru,
svarta sanda og spóana sem spóka
sig hérna og heima. Ég segi oft að
Ísland sé níunda Kanaríeyjan,“ segir
Hafsteinn.
Sjálf eru þau með um 400
lárperutré í ræktun á landinu sínu
sem Hafsteini reiknast til að gætu
gefið um 20.000 kíló af avókadó
á ári. Sandstormur, skógareldar og
kunnugt eldgos hefur þó leitt af sér
minni uppskeru í ár en vænta mátti
svo Hafsteinn og Agla tóku upp á
því að safna lárperum frá nágranna
bændum sínum og á næstu eyjum til
að anna eftirspurn Íslendinga eftir
þessum vinsæla ávexti.
Lárperutímabilið spannar í venju
legu árferði frá október til mars og
hyggur Hafsteinn á að geta sent um
tonn af avókadó á frón vikulega. Þá
tekur við sumarvertíðin sem kallar á
aðrar afurðir.
„Hér erum við að rækta lífrænt
papaya og kanaríska platanó, sem eru
litlir og sætir ávextir, skyldir banana,
sem verða vonandi komnir í búðir í
maí,“ segir Hafsteinn.
/ghp
Trevor Warmedahl í heimsókn í fjósi Rjómabúsins á Erpsstöðum. Hann er bandarískur áhuga- og fræðimaður um osta og hefðina að búa til osta. Hefur
hann undanfarin ár ferðast um heiminn og kynnt sér ostagerð smærri framleiðenda og heimagerð á ostum á býlum. Warmedahl var staddur hér á landi
fyrir stuttu í boði Eirnýjar Óskar Sigurðardóttur, ostasérfræðings sem rak Búrið í tíu ár. – Sjá nánar á bls. 30–31. Mynd / Eirný Ósk Sigurðardóttir
„Við höfum klippt lárperur af trjánum hér um morguninn og þær verið komnar
til Íslands seinnipart sama dags,“ segir Hafsteinn Helgi meðal annars en
uppskeruna má finna þessa dagana í Krónunni. Mynd / Aðsend
Gróðurhús urðu illa úti í ofsa
veðri sem gekk yfir landið á
mánudagskvöld.
Um 2.000 fm húsnæði
garðyrkju stöðvarinnar Jarðar
berjalands í Biskups tungum eyði
lagðist og með því 18.200 jarðar
berjaplöntur sem voru í ræktun.
Ljóst er að ræktunarár stöðv arinnar
er fyrir bí.
„Það munu engin ber koma
héðan út þetta ár og fram á mitt
næsta ár að minnsta kosti,“ segir
Hólmfríður Geirsdóttir.
Þá er stór hluti 1.800 fm rækt
unar húsa trjáplöntu fram leið andans
Kvistabæ í Reyk holti ónothæfur
eftir að plast rifnaði af gróðurhúsum
ræktunar stöðvarinnar.
„Við stefndum á að rækta um
2,5 milljón plöntur en úr þessu
verður framleiðslan varla helm
ingurinn af því,“ segir Aldís Björk
Sigurðardóttir.
Gróðrarstöðin Ártangi í Gríms
nesi varð einnig illa úti þegar
rúðubrotum rigndi yfir afurðir og
má því búast við takmörkuðu fram
boði af kryddjurtum frá Ártanga
næstu vikunnar. /ghp
– Sjá nánar á bls. 2
Stórtjón
í illviðri
Flestir gullsmiðir voru bændur
3228
Styrkja þarf rekstrarafkomu
matvælaframleiðenda
10
Fjárborg frístundabænda
hefur lifað góðu lífi í
Reykjavík í rúma hálfa öld