Bændablaðið - 24.02.2022, Síða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 20228
FRÉTTIR
| S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s |
| B æ j a r f l ö t 9 | 1 1 2 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 |
Límtré-Timbureiningar
Stálgrind
Yleiningar
PIR
Steinull
Snjótroðarasöfnun Skógræktarfélags Eyfirðinga gekk vel:
Útivist og lýðheilsa gríðar-
mikilvæg skógarafurð
„Það má alveg orða það svo
að þessi söfnun hafi verið
ævintýri líkust,“ segir Ingólfur
Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Eyfirðinga, en
söfnun fyrir nýjum snjótroðara
félagsins lauk í gær og höfðu þá
safnast vel yfir 40 milljónir króna.
Söfnunin hefur staðið yfir í eitt ár,
frá því í febrúar í fyrra.
Markmiðið var að safna 35 millj-
ónum, „sem er náttúrlega klikkað,“
segir hann, en markinu var náð í
nóvember síðastliðnum. Troðarinn
sjálfur kostar 35 milljónir króna og
það sem umfram er verður nýtt til
að bæta aðstöðuna og hýsa gripinn.
Ingólfur segir skógræktarfólk
þakklátt fyrir góð viðbrögð. „Það
var einstakt að upplifa jákvæðnina
og ungmennafélagsandann sem sveif
yfir vötnum, einstaklingar, fyrir-
tæki, félagasamtök og sveitarfélög
hér á svæðinu lögðu hönd á plóg til
að tryggja þetta mikilvæga samfé-
lagsverkefni. Stjórnarfólk í félaginu
lagði líka af mörkum mikla vinna við
undirbúning og að framfylgja þessu
verkefni og þá vinnu inntu þau af
hendi með stóru hjarta.“
Félagið mun næsta sumar fá
heim á hlað snjótroðara af gerðinni
Pisten Bully, en hann er búinn
öllum þeim besta búnaði sem hentar
við norðlenskar aðstæður og segir
Ingólfur hann verða mikla búbót.
Sprenging í gönguskíðaiðkun
„Útivist og lýðheilsa er orðin
gríðarmikilvæg skógarafurð
og við höfum undanfarin ár
upplifað sannkallaða sprengingu
í gönguskíðaiðkun. Almenningur
er afar meðvitaður um gildi
hreyfingar, margir eru með þar til
gerð úr á úlnliðnum sem skammtar
lágmarkshreyfiþörf og lætur vita ef
henni er ekki sinnt,“ segir hann. Stígar
sem starfsmenn Skógræktarfélagsins
troða þjóna breiðum hópi göngu-,
skíða- og hjólafólki, hundaeigendur
nýta stígana og þá segir Ingólfur að
æ fleiri ferðamenn leggi leið sína í
Kjarnaskóg og taka góða gönguferð
í fallegu umhverfi.
„Skógurinn heldur svo utan um
allt saman, veitir skjól og skapar
kjöraðstæður til útivistar. Til að
mynda er ekki óalgengt í norðlenskum
snjóavetri að í Kjarnaskógi séu um
60 dagar þar sem góða aðstæður eru
til útivistar innan skógar þó ekki sé
hundi út sigandi utan hans, það eitt og
sér er gríðar mikils virði,“ segir hann.
Skíðabraut frá Kjarna í Hrafnagil
Vissulega segir hann að mikil vinna
fylgi auknum gestakomum í skóg-
inn, halda þarf bílastæðum opnum,
sinna snyrtingunum og troða leiðir
svo hægt sé að taka á móti fólki.
„Við erum líka endalaust að
bæta við leiðum sem við troðum
og sinnum, einfaldlega til að rúma æ
fleiri gesti sem sækja okkur heim,“
segir Ingólfur, en nú eftir áramót
hafa starfsmenn bætt við og troðið
um 10 kílómetra langa skíðabraut á
jafnsléttu meðfram malbikuðum úti-
vistarstíg sem liggur frá Kjarnaskógi
að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit. „Sá
stígur er ótrúlegt útivistar kombó og
ætti að vera fyrirmynd við hönnun
útivistarstíga almennt, en þann stíg
nýta þeir sem eru hjólandi og gang-
andi og til hliðar líður skíðafólkið
um á snjóbrautinni.
Á góðviðrisdögum er margt um
manninn, hundruð manna á ferðinni
og mannlífið blómstrar.“
/MÞÞ
Aðalsteinn Hallgrímsson, bústjóri hjá Garðsbúinu í Eyjafirði, ásamt Ingólfi Jóhannessyni, framkvæmdastjóra
Skógræktarfélags Eyfirðinga, unnu að því að ryðja útivistarstíginn í Eyjafjarðarsveit. Þess má geta að Aðalsteinn
innti þessa vinnu af hendi án endurgjalds. Mynd / Jónas
Útivistarstígurinn í Eyjafjarðarsveit í fallegri vetrarsól. Mynd / Sigríður Hrefna Pálsdóttir
Bílastæði sem Hvammsbændur, landeigendur við stíginn, útbjuggu að eigin
frumkvæði á eigin kostnað og hafa sömuleiðis mokað á vetrum til hagsbóta
fyrir notendur. Mynd / Ingólfur Jóhannesson
Snjótroðari Skógræktarfélags Eyfirðinga hefur reynst vel við að ryðja stíga.
Mynd / Ingólfur Jóhannesson
Beint flug er á ný hafið á milli Amsterdam í Hollandi og Akureyrar. Flugfélagið
Transavia annast flugið fyrir ferðaskrifstofuna Voigt Travel. Alls verða
ferðirnar 10 nú í vetur og þráðurinn tekinn upp á ný í sumar. Mynd / MN
Beint flug á ný milli Akureyrar og Amsterdam:
Góð innspýting í norðlenska
ferðaþjónustu
Beint flug er á ný hafið á milli
Amsterdam í Hollandi og
Akureyrar og hafa tvær vélar
á vegum Voigt Travel lent á
Akureyrarvelli. Flogið verður
á föstudögum og mánudögum
næstu vikur, en samtals verða
10 flugferðir á þessum legg. Flogið
er frá Amsterdam í Hollandi, en
flugfélagið Transavia annast flugið.
Voigt Travel hóf leiguflug til
Akureyrar sumarið 2019 og var
einnig með flugferðir í febrúar
og mars 2020. Strax eftir að því
flugi lauk skall heimsfaraldurinn
á og hafa flugferðir á vegum
ferðaskrifstofunnar legið niðri síðan.
Nú er Voigt Travel hins vegar að
taka upp þráðinn og mun bjóða
upp á flugferðir tvisvar í viku í
vetur, sem og vikulegt flug næsta
sumar. Er þetta í samræmi við
áætlanir ferðaskrifstofunnar um að
fjölga farþegum á þeirra vegum í
beinu flugi til Norðurlands, að því
er fram kemur í tilkynningu frá
Markaðsstofu Norðurlands.
Forsendur til ferðalaga
Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri
Flugklasans Air 66N, segir það
ánægjulegt að ferðaskrifstofan
bjóði á ný upp á leiguflug beint til
Norðurlands. „Heimsfaraldurinn
stöðvaði starfsemina tímabundið, en
nú eru aftur forsendur til ferðalaga.
Samstarfið við Voigt Travel hefur
frá upphafi verið mjög gott og
frábært að sjá leiguflugið fara aftur
af stað. Voigt Travel hefur mikla trú
á Norðurlandi sem áfangastað og vill
halda áfram að fjölga hér gestum á
þeirra vegum.“
Jákvæðar fréttar sem
ferðaþjónustan þarf á að halda
Arnheiður Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Markaðsstofu
Norðurlands, tekur í sama streng:
„Það er gríðarlega mikilvægt
fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi
að þessar flugferðir séu komnar
aftur af stað.
Bæði fyrir fyrirtækin sem hafa
beinan ágóða af komu þessara ferða-
manna, en líka fyrir ferðaþjónustuna
í heild sinni. Eftir langvarandi nei-
kvæð áhrif heimsfaraldursins eru
þetta jákvæðar fréttir sem fyrirtæki
í ferðaþjónustu þurfa á að halda.
Þetta hvetur okkur öll sem störfum
í greininni til að líta björtum augum
til framtíðar.“
Leiguflug Voigt Travel gefur
einnig ferðaþyrstum Norðlendingum
tækifæri til að skreppa út fyrir
landsteinana. Enn er hægt að
tryggja sér miða til Amsterdam, en
Ferðaskrifstofa Akureyrar annast
sölu á ferðum út. /MÞÞ
Hólaskóli sækir um í styrktarsjóð
Evrópusambandsins
Háskólinn á Hólum undirbýr
nú í samstarfi við átta evrópska
háskóla og rannsóknastofnanir
umsókn í Horizon 2020 styrktar
sjóð Evrópusambandsins.
Verkefnið lýtur að ferskvatns-
fiskeldi á nokkrum völdum stöðum í
Evrópu þar sem sjálfbærni (efnahagur,
samfélag, umhverfi og menning) eru
í forgrunni. Ákveðið hefur verið að
beita tilviksrannsókn (case study)
og var ákveðið að á Íslandi væri
fiskeldið í Skaftárhreppi kjörið til
þess. Því hefur verið óskað eftir
því að sveitarfélagið verði tilgreint
í umsókninni sem samstarfsaðili. Það
hefur sveitarstjórn samþykkt um leið
og verkefninu er fagnað. /MHH