Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 13
Þrennar kosningar voru um
liðna helgi þar sem kosið var
um sameiningar sveitarfélaga.
Ein tillaga var felld en tvær
samþykktar.
Blönduósbær og
Húnavatnshreppur sameinast
Íbúar Blönduósbæjar og Húna
vatnshrepps samþykktu sameiningu.
Kjörsókn í Blönduósbæ var um
65%, 411 greiddu atkvæði. Mikill
meirihluti, 400 manns, eða yfir
97%, sagði já við sameiningu en
9 svöruðu neitandi, eða 2,2%. Í
Húnavatnshreppi kusu 250 manns,
tæplega 83% og niðurstaðan var sú
að 152, eða tæplega 61%, sagði já,
92 sögðu nei, eða um 37%.
Eitt sveitarfélag í Skagafirði
Íbúar Akrahrepps og Sveitarfélagsins
Skagafjarðar samþykktu sameiningu
sveitar félaganna tveggja. Sveitar
stjórn sameinaðs sveitar félags
verður kjörin 14. maí næstkomandi
og tekur sameinað sveitarfélag
gildi 15 dögum síðar, segir á vef
síðunni skagfirðingur.is. Kjörsókn
í Akrahreppi var góð, um 87% kusu
eða 135 manns af 156 sem voru á
kjörskrá. Já sögðu 84, neiin voru
51. Kjörsókn í Sveitarfélaginu
Skagafirði var lakari, 35,5%, 2.961
var á kjörskrá en 1.022 atkvæði voru
greidd. Alls sögðu 961 já og 54 nei.
Ekki sameining á Snæfellsnesi
Þá var kosið um sameiningu Eyja og
Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar
síðastliðinn laugardag. Í Eyja og
Miklaholtshreppi var kjörsókn 74,6
prósent. Alls greiddu 62 atkvæði,
en 83 voru á kjörskrá. Já sögðu 20
manns en nei 41. Í Snæfellsbæ var
kjörsókn 35%, 412 atkvæði voru
greidd en 1.174 voru á kjörskrá.
Mjótt var á munum, 207 vildu sam
einingu en 201 var á móti. Tillagan
er því felld og verður ekki af sam
einingu Snæfellsbæjar og Eyja og
Miklaholtshrepps. /MÞÞ
LANDSINS MESTA
ÚRVAL AF SÁÐVÖRU
Sáðvara fyrir íslenskar aðstæður!
BYGG
ARILD tvíraða bygg
Snemmþroska og
uppskerumikið norskt yrki
ERTUR
MATILDA ertur
Uppskerumiklar ertur til fóðurs
og manneldis
NÝTT
NITURBINDANDI
NÝTT
Kynntu þér sáðvöruúrvalið í nýjum
sáðvörulista Líflands og leitaðu til
sölumanna okkar með þínar fræþarfir
www.lifland.is/sadvara
Notaðu myndavélina á símanum og skannaðu QR kóðann til að
skoða nýja sáðvörulistann okkar sem er fullur af nýjungum!
Sala og ráðgjöf
Sími 540 1100
www.lifland.is
lifland@lifland.is
Reykjavík
Lyngháls 3
Akureyri
Óseyri 1
Borgarnes
Digranesgata 6
Blönduós
Efstabraut 1
Hvolsvöllur
Ormsvöllur 5
GRASFRÆBLÖNDUR
Ísáningarblanda
Kraftmiklir stofnar af vallarfox-
grasi og vallarrýgresi til ísáningar
í nýlega ræktun
Vallarfoxblanda
Fjórir sterkir vallarfoxgrasstofnar
fyrir kröfuharða
SMÁRAR
Forsmitað smárafræ
Við spörum þér umstangið og
bjóðum nú eingöngu smithúðað
smárafræ.
Næringarefni og Rhizobium smit
tryggja aukinn árangur.
NITURBINDANDI
NÝTT
NÝTT
NÝTT
Kosið um sameiningu á þremur stöðum um liðna helgi:
Ein tillaga felld en tvær samþykkar
Íslenskur talgervill
Athyglisverðum áfanga var náð
nýlega þegar talgervli á íslensku
var bætt við Microsoft Edge
vafrann. Það þykir einstaklega
góður árangur fyrir ekki stærra
tungumál og stór varða í áætlun
um máltækni fyrir íslensku.
Íslenski talgervillinn hjá
Microsoft kemur í kjölfar samstarfs
Almannaróms, miðstöðvar um
máltækni, og rannsóknar og
þróunarhópsins SÍM við fyrirtækið.
Talgervillinn les upp íslenskan texta
á þeim síðum sem notendur opna í
Microsoft Edge vafranum. Til að fá
íslenskan lestur á Microsoft Edge
vafranum fara notendur á þá vefsíðu
sem þeir vilja heimsækja í vafranum,
smella á Tools og möguleikann Read
Aloud. Efst í hægra horni kemur
valmöguleiki þar sem hægt er að
velja íslensku, með því að smella á
nafnið Gudrun í flettiglugga (Voice
Options). „Þessi þjónusta gagnast
fjölda hópa og má þar meðal annars
nefna nemendur sem kjósa að hlusta á
námsefni, blinda og sjónskerta. Fyrir
utan aukið aðgengi að upplýsingum
á netinu fyrir alla hópa, geta þeir
sem vilja bæta sjálfvirkum upplestri
eða talsvörun við sín kerfi samþætt
talgervingu við sinn hugbúnað,“
segir m.a. í tilkynningu. /MHH