Bændablaðið - 24.02.2022, Síða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202214
„Tækifærin eru næg í Fljótsdal,
möguleikarnir byggjast á sterkri
hefð og sögu um sjálfbærni og
sjálfsbjargarviðleitni. Það er
ómetanlegt veganesti fyrir
alla þá sem vilja láta til sín
taka í sveitarfélaginu,“ segir
Helgi Gíslason, sveitarstjóri í
Fljótsdalshreppi, þar sem mikil
uppbygging er nú í gangi.
Helgi segir að íbúar hafi nú
hin síðari ár sýnt í verki að efling
byggðar í Fljótsdal sé þeim hjartans
mál, en þessi misserin er unnið
við byggingu níu nýbygginga í
sveitinni. Um er að ræða íbúðarhús,
sumarbústaði, skemmur, hótel og
þjónustuhús. Að auki er verið að
endurbyggja tvö gömul og glæsileg
íbúðarhús í sveitarfélaginu en
í þeim hefur ekki verið búið í
áratugi. „Fyrst og síðast eru þetta
íbúarnir sjálfir sem standa í þessum
framkvæmdum, en við erum um
það bil eitt hundrað talsins svo geri
aðrir betur,“ segir Helgi.
Viljum þróast og dafna um
ókomna tíð
Hann nefndi að uppi séu áform
um að byggja upp byggðakjarna
í sveitarfélaginu en enginn slíkur
er fyrir hendi. „Þetta er alveg
einstakt verkefni, en markmið
okkar er að byggja upp stað þar
sem íbúar munu njóta hvort tveggja
þéttbýlis og dreifbýlis. Samfélagið
á Fljótsdal er með þessu móti að
mæta kröfum nútímans og sýna í
verki vilja sinn til að vaxa, þróast
og dafna um ókomna tíð.“
Þekkjum ekki togstreitu milli
skóg- og sauðfjárræktar
Helgi nefnir að rík hefð sé fyrir
skógrækt í sveitarfélaginu, en
Fljótsdælingar hófu fyrstir bænda
nytjaskógrækt á bújörðum sínum
hér á landi árið 1970. Sú framsýni
geri að verkum að binding
koltvíoxíðs sé meiri en losun
þess í sveitarfélaginu. „Skógrækt
hér um slóðir þykir jafnsjálfsögð
búgrein að stunda og aðrar
landbúnaðargreinar til sveita. Ég
get nefnt Valþjófsstaðabændur
sem ganga til verka við gjöf í
fjárhúsum að morgni dags og
síðan er keðjusögin tekin og unnið
í skóginum við grisjun. Þessi
gamla togstreita sem var á milli
sauðfjárræktar og skógræktar er
eitthvað sem við Fljótsdælingar
lesum um í blöðunum og er okkur
frekar óskiljanleg og eiginlega
meira til skemmtunar. Tala nú
ekki um þegar málsmetandi fólk af
norskum uppruna fer að fjargviðrast
út af ætterni nytjaplantna í
landbúnaði, tja ... þá er efniviðurinn
kominn fyrir þorrablótið.“
Helgi segir atvinnulíf í Fljótsdal
fjölbreytt, landbúnaður er stundaður
af kappi svo sem vera ber.
Skógarafurðir er félag á Víðivöllum
sem vinnur úr afurðum skógarins,
á Egilsstöðum er félagið Sauðagull
þar sem unninn er varningur úr
sauðamjólk og þá er starfandi
félagið Hel Fjallahjólaleiðir sem
býður upp á áhugaverðar hjólaferðir
um svæðið.
Fljótsdalsstöð starfar innan
sveitar félagsins, Vatnajökuls
þjóð garður og Gunnarsstofnun
sömu leiðis. Þar er starfandi
jarðvegs verktaki og vísir er að
bifreiða verkstæði sem þjónustar
ferðamenn, en í Fljótsdal hefur
ferðaþjónustu vaxið fiskur um
hrygg á liðnum árum. /MÞÞ
FRÉTTIR
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
VATNSVÉLAR, KRANAR OG BRUNNAR FYRIR FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
SVALAÐU ÞORSTANUM
J Class Top
Lítil og nett vatnsvél
• Kalt vatn
• Sódavatn
• Vatn við stofuhita
Hi class Top 30
Falleg hönnun
• Kalt vatn
• Sódavatn
• Vatn við stofuhita
Pro Stream krani
• Hett vatn í t.d. te
• Kalt vatn
• Sódavatn
Vatnsbrunnar
Vandaðir stand-
eða veggbrunnar fyrir
mismunandi rými
Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900
Efling byggðar í Fljótsdal er íbúunum hjartans mál:
Unnið við uppbyggingu á 9 nýbyggingum
Framkvæmdir standa yfir við hótelbyggingu við Óbyggðasetrið í Fljótsdal.
Höllustaðir er nýbýli sem Halla Auðunardóttir og Jón Helga stofnuðu í fyrra út úr Arnheiðarstöðum. Þar eru þau að
byggja nýtt íbúðarhús og vinnustofu. Myndir / Ásdís Helga Bjarnadóttir
Hér er verið að reisa sumarhúsið Borgarhól. Á bak við trén í fjarska grillir í nýtt íbúðarhús sem verið er að byggja
á bújörðinni Brekkugerði.
Arion banka lokað á
Kirkjubæjarklaustri
Stjórnendur Arions banka hafa
tilkynnt sveitarstjórn Skaftár
hrepps að bankanum verði lokað
á Kirkjubæjarklaustri 31. mars
næstkomandi.
Sveitarstjórn hefur mótmælt
fyrirhugaðri lokun harðlega en
útibúið þjónar Skaftárhreppi og
Öræfum, auk allra þeirra þúsunda
ferðamanna og nýbúa sem eru á
svæðinu tímabundið hverju sinni.
„Ljóst er að lokun útibúsins
kemur til með að hafa mjög slæm
áhrif á íbúa og atvinnulíf svæðisins,“
segir m.a. í bókun sveitarstjórnar.
Næsti banki er í Vík í Mýrdal. /MHH
Pósturinn skellir í lás
á Hellu og Hvolsvelli
Pósturinn hefur ákveðið að loka
póstafgreiðslum sínum á Hellu
og Hvolsvelli frá 1. maí í vor.
Með því tapast nokkur störf á
stöðunum.
„Þetta er bara mjög fúlt og
leiðinlegt en við munum reyna að
gera allt, sem í okkar valdi stendur
til að breyta þessari ákvörðun.
Þingmenn Suðurkjördæmis eru
líka að berjast í málinu með
okkur,“ segir Lilja Einarsdóttir,
sveitarstjóri Rangárþings eystra.
Gangi lokunin eftir þá munu
íbúar fá póstboxaþjónustu,
póstbílaþjónustu, bréfberaþjónustu
og landpóstaþjónustu. /MHH