Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 21
Evrópuþingið ræddi samskipti
ESB við Rússland á fundi sínum
þann 16. febrúar síðastliðinn.
Eins og við var að búast var eitt
helsta umræðuefnið í umræðunni
helgað hernaðarógn Rússa við
Úkraínu. Ekki virðast þó allar
skoðanir eiga upp á pallborðið
hjá Evrópuþinginu er þetta mál
varðar og var einn þingfulltrúi
rekinn úr ræðustól fyrir mál
flutning sem þótti óþægilegur.
Flestir Evrópuþingmenn höfðu
í umræðunum sýnt samhug sinn
með Úkraínu. Lögðu menn þar
áherslu á þann samhug og sumir
þeirra hrópuðu slagorðin; – „Dýrð
sé Úkraínu!“
Tatyana Zhdanok, fulltrúi Lett
lands á þinginu, flutti í kjölfar
þessarar uppákomu ræðu sem kom
þingheimi óþægilega á óvart og olli
nokkru uppnámi. Zhdanok lýsti þá
úr ræðustól yfir hneykslun sinni á
því að leyfilegt væri að kveða upp
slagorð nasistasamstarfsmannsins
Stepan Bandera úr ræðustóli
Evrópuþingsins. Hún efaðist einnig
um umræðuefnið – hernaðarógn
Rússa við Úkraínu – enda væru
úkraínskir stjórnmálamenn jafnvel
farnir að afneita þessari ógn og gera
lítið úr henni.
Maðurinn sem fólk vill ekki
láta bendla sig við
Stepan Andriyovych Bandera,
sem Zhdanok vitnaði til á Evrópu
þinginu, var úkraínskur stjórnmála
maður sem fæddist í Galisíu, aust
urríska hluta Ungverjalands, árið
1909. Kannski ekki skrítið að það
þætti óþægilegt á Evrópuþinginu
og að slagorðið sem þar heyrðist
hrópað væri tengt við þennan mann.
Hann lést árið 1959, þá 50 ára að
aldri, í VesturÞýskalandi.
Bandera var samkvæmt Wiki
pedia kenningasmiður hern aðar
arms hægriöfga sam taka úkra
ínskra þjóðernis sinna (Організація
Українських Наці о налістів
OUN). Hugmyndafræði OUN
hefur helst þótt samsvara ítölskum
fasisma. Bandera var einnig sagð
ur leiðtogi og hugmynda fræðingur
úkra ínskra ofurþjóðernissinna sem
bendlaðir voru við þátttöku í hryðju
verkastarfsemi. Bandera starfaði
með þýskum nasistum þegar ráðist
var inn í Sovétríkin í seinni heims
styrjöldinni og tók þátt í því þegar
úkraínskir þjóðernissinnar (OUN)
lýstu yfir sjálfstæði Úkraínu 30. júní
1941. Slagorð þeirra var „Glory to
Ukraine! Glory to the heroes!“ sem
var upphaflega notað sem slagorð í
frelsisstríðinu í Úkraínu á árunum
1917 til 1921.
Vildi upplýsa um veruleikann
í Donbass
Tatyana Zhdanok hélt síðan
áfram og vildi upplýsa þingheim
um staðreyndir sem afhjúpuðu
grimmdar verk hersins í Úkraínu í
Donbass héraði í austurhluta landsins
þar sem meirihluti íbúa er rússnesku
mælandi. Um þetta sagði hún:
„Þessar staðreyndir hafa verið
skráðar af SÞ, ÖSE og öðrum
alþjóðastofnunum,“ sagði lettneski
stjórnmálamaðurinn. Hún dró
síðan upp mynd sem hún sýndi
þingfulltrúum af litlum dreng, sem
lést í í drónaárás í Donetsk og sagði:
„Þetta eru börn sem voru drepin
í Donbass. Undanfarin átta ár hafa
152 börn verið drepin og 146 særst.
Nýjasta harmleikurinn er ... fjögurra
ára drengur sem lét lífið og foreldrar
hans báðu okkur að segja: „Hættið
að drepa börn Donbass!“
Rekinn með valdi úr ræðustól
Tatyana Zhdanok fékk hins vegar
ekki að ljúka ræðu sinni. Fundar
s tjórinn bað þingmanninn um að
yfirgefa ræðustólinn með því að
segja að slíkur áróður væri ekki
leyfður.
Var starfsmaður þingsins svo
sendur á vettvang og hrifsaði hann í
myndina af Zhdanok og leiddi hana
á brott úr ræðustóli. /HKr.
SMUREFNI FYRIR
VÉLVÆDDAN LANDBÚNAÐ
Nútíma landbúnaður krefst mikils vélakosts. Gæðasmurefni skipta öllu máli fyrir virkni og
endingu véla. Olís veitir ráðgjöf um olíu- og smurefnanotkun fyrir allar landbúnaðarvélar.
Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
Þingmaður Lettlands á Evrópuþinginu rekinn
með valdi úr ræðustól í umræðum um Úkraínu
– Olli uppnámi með gagnrýni á að þingfulltrúar hrópuðu slagorð úkraínskra þjóðernissinna til stuðnings stjórnvöldum í Úkraínu
Tatyana Zhdanok, fulltrúi Lett lands á Evrópuþinginu, er rússnesk að uppruna. Hún flutti ræðu sem fór fyrir brjóstið
á stjórnendum þingsins. Setti hún ofan í við þingfulltrúa fyrir að nota slagorð úkraínskra þjóðernissinna til að lýsa
yfri stuðningi við þarlend stjórnvöld. Tengdi hún slagorðin við þekktan úkraínskan þjóðernissinna og samverkamann
þýskra nasista í seinni heimsstyrjöldinni. Hún gagnrýndi einnig málflutning um það sem væri að gerast í í Donbass
héraði í austurhluta landsins. Þetta þótti stjórnendum þingsins greinilega ekki boðlegt og var fulltrúi Lettlands því
rekinn úr ræðustól. Mynd / Skjáskot af útsendingu frá Evrópuþinginu
Starfsmaður Evrópuþingsins mætt ur
á svæðið til að leiða fulltrúa Lett
lands á brott úr ræðustól.
Úkraína hefur aukið verulega
innkaup á olíu
Vandi Úkraínumanna varðandi átök
við Belarus og Rússland er samt
augljós. Ekki nóg með að stór hluti
af þeirra hergögnum hafi komið frá
Rússlandi, heldur hefur úkraínski
herinn verið verulega háður elds
neyti frá Rússlandi og Belarus. Svo
mjög að án þess mun her þeirra ekki
geta hreyft sig eftir nokkurra daga
átök.
Samkvæmt upplýsingum sem
Pravda birtir frá ríkistollgæslunni
í Úkraínu (UNIAN), í janúardes
ember 2021, jók landið gjaldeyris
útgjöld til innflutnings á olíuvörum
í 5,614 milljarða dollara, sem var
65,1% hærri upphæð en árið 2020.
Þetta felur í sér innflutning á
allt að 8,79 milljónum tonna af
olíuvörum á 12 mánuðum, sem var
9,5% hærra hlutfall en árið áður. Þar
af nam innflutningur á olíuvörum
frá HvítaRússlandi 2,35 milljörðum
dollara eða sem nam um 41,8% af
öllum útgjöldum til innflutnings
á olíuvörum. Þá voru keyptar
olíuvörur frá Rússlandi fyrir 1,24
milljarða dollara eða sem nemur
22% olíuvöruinnflutningsins, frá
Litháen – 0,654 milljörðum dollara
sem nemur 11,6% samkvæmt tölum
UNIAN. Þannig koma 63% af
innflutningi Úkraínu á eldsneyti og
smurolíu frá Rússlandi og Belarus.
Ein olíuhreinsunarstöð
eftir af sex
Ósjálfstæði Úkraínu á innflutningi
eldsneytis og smurefna hefur farið
stöðugt vaxandi síðustu 15 árin. Í
stað sex stórra olíuhreinsunarstöðva
sem Úkraína hafði á Sovéttímanum á
landið aðeins eina eftir í dag.
Árið 2020 tryggðu innlendir
framleiðendur í Úkraínu aðeins
49% af bensínnotkun, 15% af
dísilolíu og 20% af fljótandi gasi
LPG. Á sama tíma var ósjálfstæði
landsins á innfluttu dísileldsneyti
65%, en 100% flugvélaeldsneytis
ins (steinolíunnar) kom frá Belarus.
Samkvæmt alríkistollþjónust
unni í Rússlandi nam útflutningur
Rússlands til Úkraínu árið 2021 8
milljörðum og 129,5 milljónum
dollara, sem var 28,8% meiri útflutn
ingur en árið 2020. Um þriðjungur
viðskiptanna er vegna sölu á elds
neyti og smurefnum samkvæmt frétt
Nezygar Telegram.
Samkvæmt hernaðar sérfræð
ingum sem Nezygar vitnar til í
Rússlandi, mun Úkraína ekki geta
bætt sér það upp ef Rússland og
Belarus stöðva eldsneytis og smur
olíuflutninga til landsins. Hvorki
með varabirgðum né eldsneytis
flutningum af hálfu NATO.
Rússneska er áberandi tungumál í stórum hluta AusturÚkraínu.