Bændablaðið - 24.02.2022, Qupperneq 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 23
Helsti búnaður:
25 ha, 3ja strokka díselmótor
Beinskiptur gírkassi, 9 gírar áfram og 3 afturábak.
Drif á öllum hjólum.
Aðaldæla 19,3 l/mín. Stýrisdæla 14 l/mín.
Tveggja hraða aflúrtak að aftan, 540 og 540E
Þrítengibeisli kat 1. Lyftigeta 750 kg.
Landbúnaðardekk eða grasdekk.
Fjórir þyngdarklossar að framan, samtals 120 kg.
Einföld,
áreiðanleg
og öflug
KUBOTA EK1-261
Hafið samband í síma 568-1500 eða með tölvupósti
kubota@thor.is til að tryggja ykkur vél fyrir sumarið.
Takmarkað magn í boði. Sýningarvélar á staðnum.
Lipur og fjölhæf dráttarvél sem hentar
jarðeigendum, frístundabændum og fleirum
ÞÓR F
H
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Baldursnes 8
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Plastmengun sjávar er umtalsvert
áhyggjuefni og virðist frekar vera
að aukast en hitt. Samkvæmt
vefsíðu Seattle Times nú nýverið
kemur fram að stig mengunar er
á rauðu svæði og heimshöfin skrefi
frá almennri glötun.
Alfred Wegener stofnunin í
Þýskalandi, á vegum umhverfis-
herferðarhópsins WWF (World
Wildlife Fund) fór yfir tæplega 2600
fræðilegar rannsóknir þess efnis,
vegna úttektar sem áætluð var fyrir
fund Sameinuðu þjóðanna sem verð-
ur haldinn nú í lok febrúar. Alfred
Wegener stofnunin, sem nefnd er
eftir Alfred Wegener, rannsóknar- og
vísindamanni, stendur fyrir marg-
víslegum athugunum hvað varðar
sjávarlífs- og jarðfræði auk loftslags-
rannsókna.
„Staða mengunar er komin á
háskalega braut, ef svo má að orði
komast. Við finnum rusl í dýpstu
gjám hafsins, við yfirborð sjávar,
á ströndum og jafnvel í hafís
norðurskautsins,“ var haft eftir einum
vísindamanni í kjölfar niðurstaðna
rannsóknarinnar sem birt var á
þriðjudag.
Vert er að taka fram að sum svæði
– eins og Miðjarðarhafið, Austur-
Kína og Gulahaf, hafsvæðið á milli
Kína og Kóreuskagans – innihalda
nú þegar hættulega mikið magn af
plasti, á meðan á öðrum svæðum er
mengunin enn stigvaxandi.
Niðurstöður rannsóknarinnar
leiddu í ljós að plastmengun hafi haft
áhrif á nær allar lífverur hafsins sem
meðal annars valdi skaða mikilvægra
vistkerfa, en þegar plast brotnar niður
veitist því greiðari leið í fæðukeðju
sjávar og er þannig neytt óumbeðið
af allt frá hvölum til pínulítilla svifa.
Ekki hefur yfir tíðina talist
auðvelt að hreinsa höfin plasti og
því telja vísindamennirnir best ef
stjórnvöld einbeittu sér að því að
koma í veg fyrir frekari skaða.
Skaðinn er þó orðinn allnokkur, en
samkvæmt nokkrum fræðilegum
þáttum sem litið var yfir, kom í
ljós að þótt frekari plastnotkun yrði
minnkuð allverulega væri það mikið
magn til staðar í heimshöfunum sem
ætti eftir að brotna niður að magn
þess héldi áfram að aukast næstu
áratugi.
Vísinda- og fræðimenn þessa
efna á heimsvísu sammælast um
það að tafarlaust þurfi að grípa í
taumana vegna alþjóðlegra áhrifa
og hvetja neytendur til að leggja
sitt af mörkum með því að breyta
neysluháttum sínum. Minnka plast
semsé. Stjórnmálamenn verði svo
að taka á þyngri ákvörðunum. /SP
Umhverfisherferð nauðsynleg:
Plastmengun sjávar að aukast
Þarlendir einhyrningar lifðu góðu lífi
í Síberíu þar til fyrir um það bil 40
þúsund árum og mögulega lengur.
Dýrið sem sveimaði um graslendi
austasta hluta landsins – og einungis
austasta vegna þess að þar taldi það
sig eiga yfirráðasvæði, lifði hinu
ágætasta lífi, öruggt og sjálfsánægt.
Fór þó svo að vegna vandlætingar
sinnar á öðrum landsvæðum hnattar-
ins, dóu þau út – en fæði annars staðar
frá hugnaðist þeim ekki.
Samkvæmt fréttasíðu BBC kemur
fram að vísindamenn stundi nú
rannsóknir á einhyrningum þessum
– sem eru reyndar af tegund kall-
aðri „Elasmotherium sibericum“,
eða síberískur einhyrningur, og
eru náskyldir nashyrningum okkar
tíma. Svipaðir frændum sínum eru
nashyrningar í nokkurri útrým-
ingarhættu vegna sömu þrjóskurösk-
unar. „Nashyrningar eru sérstaklega
í útrýmingarhættu vegna þess að
þeir eru mjög vandlátir varðandi
búsvæði sitt, sagði prófessor Adrian
Lister við Natural History Museum,
London, sem stýrir rannsókninni.
„Allar breytingar á umhverfi þeirra
eru fyrir neðan þeirra virðingu, en
þeir eru mjög þrjóskir að eðlisfari og
deyja frekar út en að aðlaga sig nýju
umhverfi.“
Síberíski einhyrningurinn var stór
og stæðilegur, vó fjögur tonn og lang-
leiðina upp í fimm metra hár – en
komið hefur í ljós að tegundin nærðist
nær eingöngu á þurru, harðgerðu grasi
samkvæmt rannsóknum sem gerðar
voru á tönnum þeirra. Sérhæft matar-
æði einhyrningsins er því líklegast til
þess að hafa orðið stofninum að falli
í bland við hlýnun jarðar, en hund-
ruð stórra spendýrategunda hurfu
eftir síðustu ísöld, vegna loftslags-
og gróðurbreytinga.
Í dag eru aðeins fimm tegundir af
nashyrningum eftir. Mjög fáir lifa af
utan þjóðgarða og friðlanda vegna
þrálátra veiða og yfirtöku búsvæða
þeirra af mannavöldum í marga ára-
tugi. Þó, með því að rannsaka hátterni
og venjur hinna mörgu forsögulegu
nashyrningategunda sem eitt sinn
reikuðu um jörðina, geta vísindamenn
lært meira um örlög þeirra, og von-
andi kippt í taumana á mögulegri
útrýmingu frænda töfraskepn-
unnar einhyrningsins. Nánar
má lesa um um málið á vís-
indasíðu bbc.com. /SP
Síberíski einhyrningurinn Ekki voru þeir fagrir einhyrn-
ingarnir þó af þeim stafi gulljómi
í augum almúgans.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
LOFTPRESSUR
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Gerðu kröfur - hafðu samband við Gunnar
í síma 590 5135 og kynntu þér þína möguleika.
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hjóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga og leggjum mikla áherslu
á að veita góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.