Bændablaðið - 24.02.2022, Page 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 33
Niðurstaðan úr skuldaúrvinnslu
Sambands íslenskra samvinnufélaga
eftir að Landsbankinn færði eignir þess
inn í eignarhaldsfélagið Hömlur 1992
var sú að bankinn tapaði ekki á Sam-
bandinu.
»Jakob Bjarnason | 2
„Við hikum ekki við að
auglýsa amboð og
hálfvita,“ segir kaup-
félagsstjóri Kaup-
félags Borgfirðinga
sem er dýralæknir
að mennt.
»Margrét Katrín
Guðnadóttir | 7
Sérstaða KB í
vöruframboði
140 ár liðin frá upphafi
samvinnustarfs á Íslandi
Sunnudaginn 20. febrúar eru 140 ár liðin frá því
fyrsta kaupfélagið innan samvinnhreyfingarinnar,
Kaupfélag Þingeyinga, var stofnað að Þverá í
Laxárdal að frumkvæði Jakobs Hálfdánarsonar á
Grímsstöðum og Benedikts Jónssonar á Auðn-
um. Miðað er við að Samband íslenskra sam-
vinnufélaga hafi orðið til nákvæmlega 20 árum
síðar þegar haldið var upp á afmæli KÞ með
stofnun „Sambandskaupfélags Þingeyinga“ að
Ystafelli í Köldukinn 20. febrúar.
Kaupfélögin urðu flest um 60 og þau gegndu
stóru og merku hlutverki í þróun viðskipta-og at-
vinnulífs héraða á Íslandi. Með samvinnu jafnt í
sveitum sem bæjum fann almenningur leið til
sjálfshjálpar og skapaði mótvægis- og framfarafl.
Kaupfélög og samvinnufélög framleiðenda af
ýmsu tagi knúðu á um nútímasamgöngur til að
koma vörum á markað og afla aðfanga. Þau efldu
þjónustuiðnað og afurðavinnslu í landbúnaði,
stuðluðu að framförum í félags- og menningar-
málum og hófu samvinnuútgerð og fiskvinnslu.
Þau voru allt í öllu langt fram eftir síðustu öld.
Samband íslenskra samvinnufélaga, SÍS eða
Sambandið, var umsvifamesta atvinnufyrirtæki
landsins á tuttugustu öldinni. Það hafði mikil
áhrif á atvinnuhætti, verktækni, félagsmál og
stjórnmál landsmanna á mektarárum sínum.
Endalok þess sem viðskiptaveldis höfðu meðal
annars þær afleiðingar að samvinnufélagsformið
féll í hálfgerða ónáð á Íslandi.
Í landinu eru nú 6 kaupfélög með virka starf-
semi og eru þau öll í góðum rekstri um þessar
mundir. Þau eru afar ólík, allt frá hefðbundnum
og alhliða kaupfélögum til fjárfestinga- og eign-
arhaldsfélaga. Þau eiga það engu að síður sam-
eiginlegt að halda lýðræðislegt félagskerfi í
heiðri.
Í stað þess að rifja upp söguna er sjónum beint
að framtíðarstöðu félaganna og viðhorfum kaup-
félagsstjóra og stjórnarformanna í blaðauka með
Morgunblaðinu, sem gefinn er út tilefni 120 ára
og 140 ára afmælanna.
Þess má geta að áhugi er fyrir hendi á að efna
til ráðstefnu um vaxandi gengi samvinnuhreyf-
ingarinnar víða um heim. Jafnframt er unnið að
því að búa til prentunar rit um samvinnustarf
sem Jón heitinn Sigurðsson, fyrsti rektor Sam-
vinnuháskólans á Bifröst, lét eftir sig.
Drangey SK-2 ber í Drangeyna og klettinn Kerlingu. Skipið var smíðað í Tyrklandi, er 2081 brúttótonn, og fór sína fyrstu veiðiferð í byrjun árs 2018. Það er gert út af FISK-Seafood, sem er
dótturfélag KS, og eitt af stærri sjávarútvegsfyrirtækjum Íslands. Félagið starfar á öllum stigum virðiskeðjunnar; frá veiðum og vinnslu til sölu og útflutnings.
»Kaupfélag Skagfirðinga | 5
Tvær Drangeyjar
á Skagafirði
Stefna Kaupfélags Suðurnesja
er að eiga meirihluta í Sam-
kaupum, sem er þriðja
stærsta verslunarkeðja lands-
ins, segir stjórnarformaður
KSK.
»Skúli Þorbergur Skúlason | 3
„Það mætti
kalla okkur sam-
vinnukapítalista“
Landsbankinn
tapaði engu á
Sambandinu
Samvinnu-
formið í takti
við breytta tíma
Ólafur Ragnar Grímsson ritar hug-
leiðingu um samvinnustarf á Íslandi,
sögu þess, þýðingu og framtíðar-
möguleika. Í tilefni af því að liðin eru
140 ár frá stofnun fyrsta kaupfélags-
ins og 120 ár frá því að Sambandi
íslenskra samvinnufélaga var komið
á fót hugleiðir Ólafur Ragnar afstöðu
nýrra kynslóða til samvinnuformsins:
„Upplýst ung kynslóð nýrrar aldar er í
öllum álfum að ganga í smiðju
samvinnuformsins. Sér það sem
spennandi valkost. Í betri takti við
breytta tíma en gamlar venjur auð-
hyggjunnar.“
»Ólafur Ragnar Grímsson | 2
SAMVINNUHREYFINGIN
140 ÁRASunnudagur 20.02.2022