Bændablaðið - 24.02.2022, Side 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 37
FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 SAMVINNUHREYFINGIN 140 ÁRA 5
Samvinnufélagið Kaupfélag Skagfirð-
inga er eitt elsta fyrirtæki á landinu
og státar af óslitinni rekstrarsögu í
133 ár. Þar af hafa síðustu 30 ár verið
sérlega farsæl og vöxtur félagsins
stöðugur. Í seinni tíð hefur félagið
haft góða rekstrarafkomu, en féð er
nýtt til frekari uppbyggingar á starf-
seminni. KS er matvælafyrirtæki fyrst
og fremst, með mikla starfsemi bæði í
landbúnaði og sjávarútvegi. Hjá fyrir-
tækinu eru í dag um 1.000 stöðugildi
til lands og sjávar og hefur fjölgað
verulega á síðustu árum.
Fyrst og fremst mavælafyrirtæki
Meginstarfsemi félagsins er mat-
vælaframleiðsla á sviði mjólkur-
vinnslu, slátrunar og kjötvinnslu og
útgerðar og fiskvinnslu auk fóður-
framleiðslu. Þessa starfsemi rekur fé-
lagið annaðhvort sem deildir hjá sam-
vinnufélaginu s.s. kjötafurðastöðina
og mjólkursamlagið á Sauðárkróki
eða í dótturfélögum s.s. FISK-
Seafood ehf., Fóðurblönduna ehf. og
Bústólpa ehf. Kaupfélag Skagfirðinga
hefur einnig með höndum marg-
víslega aðra starfsemi sem er þá ann-
aðhvort tengd matvælaframleiðslunni
á einhvern hátt eða sem liður í þjón-
ustustarfsemi félagsins á félagssvæði
KS í Skagafirði. Félagið rekur þannig
umfangsmikla landflutninga, véla-
verkstæði, rafmagnsverkstæði, bif-
reiðaverkstæði, trésmíðaverkstæði,
dagvöru- og sérvöruverslun, bygg-
ingavöruverslun og fleira.
„Í fyrsta lagi höfum við lagt áherslu
á að styrkja grunnstarfsemi félagsins
síðustu áratugina,“ segir Þórólfur
Gíslason kaupfélagsstjóri. „Í stuttu
máli hefur þetta gerst þannig að okk-
ur hefur tekist að auka alla fram-
leiðslu hér í Skagafirði umtalsvert.
Skagfirskir bændur hafa til dæmis
rúmlega tvöfaldað mjólkurframleiðslu
sína á síðustu þremur áratugum.
Sama hefur gerst í kjötframleiðslunni,
þar sem magnið sem er unnið og selt
hefur sex- til sjöfaldast. Hið sama má
einnig segja um sjávarútveginn. Þar
höfum við fimmfaldað veiðar og
vinnslu síðustu áratugi.“
Framleiðsla og þjónusta
haldast í hendur
Stórar framleiðslueiningar eru
grundvöllur þjónustustarfseminnar á
KS-svæðinu. Öflug verkstæði sem
þurfa að halda í við tækniþróunina
gætu ekki þrifist á Sauðárkróki ef
ekki væri fyrir öflugar framleiðslu-
einingar Kaupfélags Skagfirðinga.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
hefur auk þess byggt upp mjög gott
iðnnám á mörgum sviðum og unnið
náið með KS að því að tæknivæða
skólann og útskrifa sterka einstak-
linga. Matvælaframleiðslueiningar KS
auk Steinullarverksmiðjunnar og öfl-
ugs búskapar til sveita í Skagafirði
eru hryggjarstykkið í allri þjónustu í
sveitarfélaginu. „Það er ekki sjálfsagt
að halda úti þjónustukjarna með á
annað hundrað menntaðra iðn-
aðarmanna á landsbyggðinni,“ bendir
Þórólfur á.
Stærstu umhverfisverkefni í
matvælum
Þegar spurt er hvernig KS hugi að
framtíðinni er athyglinni beint að fjár-
festingastarfsemi félagsins sem helst
snýst um að verkefni sem tengjast eða
hafa möguleika í framtíðinni til að
tengjast starf-
semi félagsins
eða hjálpa því
að þróast. Í
þessum flokki
eru verkefni í
skyrframleiðslu
erlendis, sjó-
flutningastarfsemi og þörungafram-
leiðslu svo eitthvað sé nefnt. Sterkar
framleiðslueiningar eru einnig grund-
völlur nýsköpunar, ekki síst nýsköp-
unar sem tengist betri nýtingu hrá-
efna. Þannig er þegar hafin prótein-
vinnsla úr ostamysu og á þessu ári
hefst etanólvinnsla, einnig úr sama
hráefni. „Þarna verða til nýjar tekjur
sem nema nokkrum hundruðum
milljóna árlega, með nýtingu tækn-
innar, úr hráefni sem áður rann til
sjávar. Í kjöt- og fiskvinnslu skapast
einnig möguleikar þegar magnið
eykst að nýta hráefnið betur. Í leið-
inni verða þessi verkefni ein stærstu
umhverfisverkefni sem sést hafa í
matvælaframleiðslunni á landinu,“
segir Þórólfur.
Verðmætum störfum fjölgar
Eðlilegt er að spyrja hvernig gangi
að fá fólk á „skagfirska efnahags-
væðið“, eins og sumir kalla athafna-
svæði KS, til að vinna störf sem í
auknum mæli krefjast menntunar og
sérhæfingar. „Undanfarin ár er það
frekar húsnæðisskorturinn sem hefur
verið til vandræða heldur en það að
fá fólk á svæðið. En óneitanlega gæti
ríkið beint opinberum störfum meir
út á landsbyggðina til þess að auka
fjölbreytni starfa og skapa nútíma-
fjölskyldum möguleika til að starfa
annars staðar en á höfuðborgarsvæð-
inu,“ segir Þórólfur og bætir við:
„Það má segja að uppbyggingarfasi
hafi staðið í nokkra áratugi. Smátt og
smátt á þeim tíma breytist samfélagið
úr frumframleiðslusamfélagi í sam-
félag þar sem tæknivæðingin breytir
störfunum og gerir þau verðmætari.
Síðustu árin hefur fjölgað í Skagafirði
og mikið er um nýbyggingu íbúðar-
húsnæðis. Það er góðs viti.“
Allir Skagfirðingar
njóta ávinnings
KS gerir ekki greinarmun á íbúum
starfssvæðis síns í vöruverði og við-
skiptum. „Samvinnufélagsformið leið-
ir það á hinn bóginn af sér,“ segir
Þórólfur, „að enginn einstaklingur
tekur fjármuni út úr félaginu heldur
nýtist afkoman til frekari uppbygg-
ingar. Allir íbúar Skagafjarðar njóta
því ávinnings ef vel gengur.“
Félagsmenn eru þeir einstaklingar
sem kjósa að taka virkan þátt í störf-
um félagsins. Félagsdeildirnar eru 12
og afmarkast þær landfræðilega af
gömlu hreppaskiptingunni í Skaga-
firði. Þær kjósa allar árlega sína full-
trúa sem sitja aðalfund félagins og
þar má engin ein deild fara með
meirihluta.
KS skapar Skagafirði sérstöðu
Starfsemi Kaupfélags Skagfirðinga
skapar Skagafirði ákveðna sérstöðu
að því leyti að atvinnulífið í héraðinu
er að uppistöðu til í félagslegu eignar-
haldi. Rekstarleg og efnahagsleg staða
félagsins er mjög góð og bókað eigið
fé í árslok 2022 er um 50 milljarðar
króna. Í Skagafirði hefur gefist vel að
reka samvinnufélag í blandaðri starf-
semi. Kaupfélag Skagfirðinga tekur
alvarlega samfélagslega ábyrgð sína,
bæði í Skagafirði og á landsvísu. Má í
því sambandi nefna að Menningar-
sjóður Kaupfélagsins úthlutar árlega
tugum milljóna til menningarmála og
annarra framfaramála í Skagafirði auk
þess sem félagið styrkir beint skóla-
starf, íþróttastarf og félagslíf um
verulegar fjárhæðir árlega. „Þetta er
hægt af því að eignarhald atvinnu-
starfseminnar er á svæðinu,“ segir
Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri að
lokum.
Öll framleiðsla í Skagafirði
hefur aukist verulega
Merki Kaupfélags
Skagfirðinga
Þórólfur Gíslason kaupfélgsstjóri hefur haldið um stjórnartauma frá árinu
1988, og byggt upp fjölbreytt félag á sama tíma og mörg önnur kaupfélög
hafa dregið saman seglin, eða hætt starfsemi.
Mynd/hjaltiarna
Síðustu 30 ár í 133 ára rekstrarsögu Kaupfélags Skagfirðinga hafa verið sérlega farsæl og vöxtur félagsins stöðugur
Tvöföldun, fimmföldun og sexföldun framleiðslu
hjá KS á þremur áratugum auk mikillar fjölgunar
verðmætra starfa.
Skagafjörður í töfrabirtu. Ein aðal-
áherslan hjá KS er að auka framleiðni
með því að bæta hráefnisnýtingu og úr
því verða mikilvæg umhverfisverkefni.
24 2