Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 45
sp
ör
e
hf
.
— München - perla Bæjaralands —
17. - 21. ágúst | Sumar 11b
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir
München er einstaklega heillandi borg og sér í lagi á þessum
árstíma þar sem allt er í blóma og borgin iðar af mannlífi.
Við skoðum helstu staði borgarinnar og förum í áhugaverða
dagsferð um Alpahéraðið Allgäu að Neuschwanstein höllinni
sem er ein stórfenglegasta höll Evrópu. Í þessari ljúfu ferð
gefst nægur tími til að skoða München á eigin vegum og
er m.a. hægt að fara í hrífandi hjólaferð með leiðsögumanni
meðfram ánni Isar, líta inn á söfn borgarinnar eða bara njóta
þess að vera til og horfa á mannlífið frá útikaffihúsum.
Verð: 179.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Styrkir úr Landbótasjóði
og Bændur græða landið
Búið er að senda niðurstöður styrkveitingar/
úthlutunnar ársins til allra þátttakenda í
verkefnunum Bændur græða landið og
Landbótasjóði með rafrænum hætti.
Ef einhverjir eru ekki búnir að fá niðurstöðu
í hendur þá geta viðkomandi haft samband
við héraðfulltrúa Landgræðslunnar,
hver á sínu svæði.
land.is
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
vori og bætast þá við skólastofur og
vinnuaðstaða kennara. „Með tilkomu
byggingarinnar verður öll aðstaða til
skólastarfs orðin til fyrirmyndar.“
Ragnheiður Jóna bendir á að
mikilvægt sé að bregðast við
bæði uppsafnaðri þörf og einnig
framtíðarþörf fyrir húsnæði
í sveitarfélaginu, einkum á
Hvammstanga, sem sé þjónustukjarni
Húnaþings vestra.
Fjölbreytt atvinnulíf stuðlar að
jákvæðri byggðaþróun
Helstu atvinnuvegir í héraðinu
eru landbúnaður og þjónusta.
Fæðingarorlofssjóður er staðsettur
á Hvammstanga, einnig er öflugur
rannsóknaklasi þar sem Selasetur
Íslands, Háskólinn á Hólum,
Náttúrustofa Norðurlands og
Hafrannsóknastofnun stunda
rannsóknir.
Ferðaþjónusta hefur vaxið
síðustu ár með margvíslegum
afleiddum störfum sem skapar
fjölbreyttara atvinnulíf og laðar að
fleira fólk. Borgarvirki, Hvítserkur
og Kolugljúfur hafa aðdráttarafl
og þá er öflug selaskoðun í boði í
sveitarfélaginu.
Fjölbreytt atvinnulíf stuðlar að
jákvæðari byggðaþróun
Fjöldi lítilla fyrirtækja í þjónustu og
iðnaði er hlutfallslega mikill miðað
við íbúafjölda og er Húnaþingi vestra
mikilvægur þar sem rétt er að nefna
prjónastofuna Kidku sem framleiðir
hágæða prjónavöru. „Fjölbreytt
atvinnulíf stuðlar að jákvæðri
byggðaþróun,“ segir sveitarstjórinn
og bendir á að á Hvammstanga sé
sláturhús, verslun, ýmiss konar
iðnaður og heilsugæslustöð.
Mikið sé um sjálfstætt starfandi
verktaka á svæðinu enda þjónusta
af margvíslegu tagi stór þáttur í
atvinnustarfseminni.
Nýlega var skrifstofusetur
tekið í notkun á Hvammstanga og
er sveitarfélagið í samstarfi við
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra í viðræðum við stofnanir um
fjarvinnslustörf. „Það er því enn
meiri þörf á að sinna uppbyggingu
húsnæðis af krafti því áhugi fyrir
samstarfinu er fyrir hendi,“ segir
Ragnheiður Jóna. Sveitarfélagið
hefur lokið ljósleiðaravæðingu
í dreifbýli og er um 60% íbúa á
Hvammstanga með ljósleiðara sem
gefur tækifæri til uppbyggingar á
fjölbreyttri atvinnustarfsemi.
„Íbúar sveitarfélagsins hafa
tekist á við margs konar áskoranir
síðastliðin ár og hafa staðið það af
sér með samstöðu og framsýni. Unga
fólkið er að snúa heim og vill búa sér
framtíð í sveitarfélaginu. Framtíðin
er því björt í Húnaþingi vestra,“ segir
sveitarstjórinn. /MÞÞ
Uppsöfnuð þörf á íbúðum í Húnaþingi vestra er meiri en fram kemur í áætluninni, eða um það bil 6 íbúðir.
Nú í upphafi árs úthlutaði byggðarráð fjórum lóðum undir íbúðarhúsnæði
og fyrr í vetur var þremur lóðum úthlutað undir íbúðarhúsnæði svo óhætt
er að segja að uppbyggingin haldi áfram á þessu ári.