Bændablaðið - 24.02.2022, Page 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 51
er hellt á flöskur og tappinn settur á
og sósan send á markað.
Tabasco Diamond
Auk hefðbundinnar Tabasco-sósu
er meðal annarra gerða til pipruð
útgáfa af sósunni sem blönduð er
með vínediki og látin standa í átta
ár. Í tilefni af 150 framleiðsluafmæli
sósunnar, árið 2018, setti fyrirtækið
á markað, tímabundið, sérstaka
hátíðarútgáfu sósunnar, Tabasco
Diamond. Sósan sú hafði verið
styrkt með pipar og blönduð með
freyðandi hvítvínsediki og látin
þroskast í fimmtán ár.
Heiti hátíðarútgáfunnar vísar
til demantslaga merkis fyrirtækisins
sem hefur nánast verið eins frá
upphafi.
Tabasco og menning
Eins og verða vill með vinsæla vöru
eins og Tabasco verða þær hluti
af menningunni og þá ekki bara
matarmenningu heldur líka listum.
Árið 1894 sendi bandaríska
tónskáldið George Whitefield
Chadwick frá sér gleðióperuna
Burlesque Opera of Tabasco, sem
höfundur þessarar greinar er að
hlusta á við skrifin og finna má á
Youtube. Chadwick fékk leyfi frá
McIlhenny, framleiðanda sósunnar,
til að nota Tabasco í heiti óperunnar
með því skilyrði að hann gæfi
listamönnunum sem tóku þátt í
uppfærslunni sýnishorn af sósunni.
Eftirlíkingar af Tabasco-umbúðum
eru hluti af leikmunum óperunnar,
auk þess sem myndir af Tabasco-
flöskum voru prentaðar á nótnablöð
hljómsveitarinnar sem spilaði undir
og leikskránni sem fylgdi með miða
á sýninguna.
Tabasco-sósa hefur leikið hlut-
verk í ýmsum teikni- og kvik-
myndum. Sósan er meðal leikmuna
í tveimur James Bond myndum,
The Man with the Golden Gun og
The Spy Who Loved Me, Chaplin
myndinni Modern Times auk
Murder on the Orient Express og
Back to the Future III.
McIhenny er eitt af fáum banda-
rískum fyrirtækjum sem hefur hlot-
ið það sem kallast Royal Earrant
of Appointment, Elísabetar II
Bretlandsdrottningar, og þýðir að
fyrirtækið sé eitt af birgjum hennar
hátignar og hirðar hennar. Sagt er
að drottningunni þyki fátt betra en
sletta af Tabasco út á humar.
Tabasco-sósa er allt í senn, kóser,
halal og glútenfrí og hún inniheldur
engar kaloríur og fitu og auk þess
er hún líka laus við öll kolvetni
og prótein.
Langur geymslutími
Hillulíf hefðbundinnar Tabasco-
sósu er allt að fimm ár en
styttri og mislangur hjá öðrum
bragðtegundum. Vegna langs
geymslutíma er Tabasco hluti
af matseðli geimskutlunnar,
Skylab og Alþjóðlegu geim-
stöðvarinnar.
Meðan á Víetnamstríðinu
stóð sendi McIlhenny
þúsundir eintaka af mat-
reiðsluhefti sem kallaðist
Tabasco’s Charley Ration
Cookbook og tvær flöskur
af Tabasco-sósu til her-
manna í Víetnam. Í heftinu,
sem var vafið utan um
flöskurnar og kom í vatns-
heldri tindós, var að finna
leiðbeiningar um hvernig
mátti nota sósuna til að
bragðbæta matinn sem
hermenn fengu sem kost.
Árið 2002 fundu
fornleifafræðingar sem
voru að rannsaka gamla
námu í Virginíuríki í
Bandaríkjunum flösku undan Tabasco-
sósu. Við frekari eftirgrennslan kom í
ljós að flaskan hafði legið óhreyfð í
námunni í 130 ár.
Gleymda flaskan í eldhússkápnum
Víða í eldhússkápum á Íslandi er að
finna hálffullar og líklega gleymdar
flöskur á Tabasco-sósu enda var
Tabasco lengi vel eina sterka
piparsósan í boði hér.
Á sjötta áratug síðustu aldar
var einu sinni minnst á Tabasco-
sósu í íslensku tímariti, Vikunni,
23. tölublaði 1963, í uppskrift fyrir
paprikukjúkling.
2 kjúklingar
½ bolli laukur
1 ½ matskeið sítrónusafi
¼ teskeið Tabasco-sósa
- Smjör brætt og blandað saman
við þurru efnin og hitinn tekinn af.
- Síðan er öllu hinu bætt varlega
í og sett aftur á pönnuna og
hrært í þar til þar til það þykknar.
- Þessi skammtur gerir 11/3
bolla og nægir á tvo kjúklinga.
- Kjúklingarnir eru skornir í sundur,
þurrkaðir og dýft í barbecuesósuna.
- Steiktir við opinn yfirhita eða úti
barbecue.
- Ef þeir eru steiktir þannig í ofni
verður ofnhurðin að vera aðeins opin
og þeir steiktir í 30-40 mín.
- Sósunni oft ausið yfir þá á meðan.
Fyrirtækin Vilko ehf. og Kavita ehf.
framleiðendur Iceherbs vörulínunnar, óska
eftir samstarfi við landeigendur og tínslufólk
í sumar við tínslu á heilsujurtum.
Helstu tegundir sem fyrirtækjunum vantar,
eru fjallagrös, hvannarót og burnirót.
Einnig erum við til viðræðu um aðrar vörur.
Kavita ehf.
Vinsamlegast hafið samband á netfangið fjallagras@vilko.is
Átöppun og pökkun í verksmiðju McIlhenny. Mynd / ww.americasbestracing.net
Hátíðarútgáfan Tabasco Diamond.
Capsicum frutescens var. Tabasco.
Edmund McIlhenny.
Tabasco sem augndropar er ekki
sniðug hugmynd.
Tabasco Scorpion er sterkasta sósan
sem McIlhenny framleiðir, 35000 á
Scoville-skala.
Víða á heimilum er að finna hálffullar
flöskur af Tabasco-sósu.
Frá uppfærslu Tabasco-óperunnar árið 2018.