Bændablaðið - 24.02.2022, Síða 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202252
Þegar Ísland byggðist af land
náms mönnum sem komu fyrir
aldamótin 1000 og hófu að
nema land hér var refurinn eini
ábúandinn á landi. Líklega hefur
hann búið hér lengi og býr hér
enn ásamt fleiri landspendýrum.
Maður og refur áttu ekki samleið
og brátt urðu árekstrar og má
segja að sífellt hafi geisað stríð
á milli þeirra síðan. Meira að
segja var settur refaskattur á
landeigendur um að hver og einn
átti að skila visst mörgum feldum
miðað við bústærð.
Mismikið er stríðið þó en ekki
virðist sjá fyrir endann á því nema
að hinir háu herrar setji lög um
refaveiðar, sem banna þær. Þó er
ekki víst að stríðið hætti alveg því
það eru ýmsir sem þurfa að verja
sína hagsmuni, t.d. æðarbændur.
Hvað ætli séu drepnar margar
mylkar læður og/eða refir sem eru að
bera æti heim fyrir nýgotnar læður,
til að vernda æðarvörpin? Það eru
líka fleiri vargar í varpi heldur en
tófan og þeim ber að sinna líka.
Öðruvísi en fyrir 50-100 árum
Í dag eru refaveiðar talsvert öðruvísi
en fyrir 50-100 árum þegar menn
voru með gildrur, eitur og nánast
eingöngu haglabyssur. Búseta var
auk þess á nánast öllum stöðum á
landinu nema á bláhálendinu. Margir
af þeirri kynslóð sem voru uppi á
þessum tíma hötuðu tófurnar, vildu
nota allar hugsanlegar aðferðir til
að drepa þær. Sauðfjárræktin var
að aukast, tækniframfarir að breyta
búskaparháttum en samt áttu menn
mikið undir hverri þeirri skepnu sem
menn áttu og því var dýrt að missa
kind í tófukjaft.
Nær allir sem hafa séð tófu
ráðast á kind, draga úr henni
garnirnar, drepa vorlamb með því
að mylja á því snoppuna biðja
tófunni ekki vægðar, þeir fara að
hata hana. Theódór Gunnlaugsson
frá Bjarmalandi segir svona frá ref
á Hólsfjöllum:
,,Veturna 1950-1952 hafði
þessi refur, drepið fyrir Sigurði,
25 ær og sauði, er úti lágu, nótt og
nótt á beitarhúsum þar, nokkurra
kílómetra gang, norðan við bæinn.
Refurinn þráelti ærnar þar til þær
gáfust upp og lögðust. Þá réðst
hann aftan í þær, og reif þær á hol
við endaþarminn, dró hann út, og
hámaði í sig fitu, og blóð, þegar
hann fékk frið til þess. Fyrir kom
að kindurnar fundust lifandi, með
endaþarminn blæðandi“.
Auk þess segir hann frá á sömu
blöðum frá gemlingum í Mývatns-
sveit en svo fóru menn að bera
tjöru á hálsinn á þeim til að verja
þá tófubiti.
,,Vorið 1927 fundust rúmir
20 gemlingar dauðir austur á
Mývatnsfjöllum, allir bitnir á
barkann, sogið blóðið og svo látnir
liggja. Vorið eftir fannst svo svipuð
tala á sömu stöðum, fremur litlu
svæði vestan við Nýja-Hraun,
um og eftir rúning“ (Theódór
Gunnlaugsson 1983).
Afstaðan til tófunnar
hefur breyst
Kynslóðirnar sem á eftir komu hata
ekki tófurnar og margir eru meira
að segja farnir að halda að þær séu
svo góðar, búið að breyta þeim í
góðar persónur með barnabókum
og teiknimyndasögum. Á árunum
1960-1968 þegar menn voru enn að
eitra fyrir tófum og víða hafði það
tekist vel fóru menn eins og Theódór
á Bjarmalandi að berjast á móti
eitrinu. Tófurnar sem eftir lifðu urðu
harðskeyttari, að mati Theódórs,
og merki um að fleiri yrðu dýrbítar
(Theódór Gunnlaugsson 1967).
Farnir að gera sér greni mun
nær byggð en áður
Refir í dag sækja meira niður í
byggð og eru farnir að gera sér
greni mun nær byggð en áður,
hluti af því tengist meiri umferð
um hálendið. Einnig eru breyttar
aðstæður, meiri gróður (t.d. lúpína),
meira æti og tófan er að þróast með
manninum. Sigurður Ásgeirsson
sagði að tófurnar væru orðnar miklu
frakkari, orðnar stærri og sterkari
eftir kynblöndun við búrrefi þó
svo að grimmdareðlið búi áfram í
honum, því verður ekki útrýmt svo
auðveldlega (Sveinn Runólfsson og
Jón Ragnar Björnsson 2010).
Gera mikinn usla í fuglalífi
Tófur gera mikinn usla í fuglalífi
og á t.d. tófan ekki minni þátt í
því en maðurinn að það sé lægð
í rjúpnastofninum. Auk þess hafa
reyndari grenjaskyttur, t.d. Friðbjörn
Haukur og Sigurður Ásgeirsson,
talað um aukningu í frjósemi. Áður
fyrr voru þetta 2-4 hvolpar á greni
en núna eru 4-7 algengir en alveg
upp í 10-11 stykki.
Ég ólst upp við að grenjavinnsla
væri eftirsótt starf og svolítil
rómantík á bak við það, liggja úti á
björtum sumarnóttum en reynslan
kennir manni að þetta sé oft og
tíðum hörkuvinna, stundum legið
samfleytt 22-36 klst. á greni (þá er
enginn lögbundinn hvíldartími).
Rómantíkin fer fljótt af þessu
þegar veðrið versnar og aðstæður
eru ekki góðar. Það má líkja þessu
við smalamennskur, þegar menn eru
á góðum hesti í frábæru veðri að
smala er fátt skemmtilegra, en þegar
gengið er á eftir fé í krapahríð og
kulda fer gamanið fljótt af þessu.
Sama á við um að liggja á greni, með
góðan riffil, góða aðstöðu, gott nesti
í 10 stiga hita á bjartri sumarnóttu
og bíða eftir ref er gaman en það á
við flesta veiði í góðu veðri.
Fæðuþörf tófunnar er mikil
Menn deila um hvort að
grenjavinnsla eigi rétt á sér, bíða eftir
dýrum sem eru að færa afkvæmum
sínum mat, bíða við hreiðrið ef
svo má segja. Hins vegar má velta
þeirri spurningu upp, hvað tófa á
grenjatíma heimsæki mörg hreiður
á þeim tíma sem hún er að bera æti
í afkvæmin. Heyrði ég eitt sinn að
tófufjölskyldan þyrfti um 350-400
kg af mat til að komast upp á árinu.
Með lóur, spóa, skógarþresti,
endur, rjúpur og gæsir í matinn
Ef unnin eru 10 greni í einu
sveitarfélagi þá eru þetta 3,5-4 tonn
af kjöti sem er að mestu fuglakjöt,
smádýr og svo kindakjöt. Það eru
ansi margar lóur, spóar og gæsir.
Gerðar hafa verið athuganir á
fæðu refa en þær verða ekki raktar
hér. Reynslan er sú að flestar tófur
og þá sérstaklega inn til landsins
lifa á fugli, mófugli, öndum, rjúpu
og gæs. Hef ég séð tófu í miðju
gæsavarpi koma með unga frá lóu
og skógarþröstum heim á greni
en hún hefur valið æti eftir stærð
hvolpanna. Á sama greni voru leifar
af fullorðnum gæsum sem ætla má
að refurinn hafi borið í læðuna þegar
hún lá á ungum hvolpum. Nokkrum
sinnum hef ég séð lambaleifar á
greni en ekki nema einu sinni komið
á greni þar sem var dýrbítur.
Til er fjöldinn allur af
sérfræðingum og sjálfskipuðum
sérfræðingum, sjáum það best
í umræðunni um Covid og
bólusetningar. Við vitum oft og
tíðum mun minna en við höldum
og reynslan er það sem kennir okkur
best, svo verðum við að læra sumt
LESENDARÝNI
Refaveiðar og vargeyðing
Þegar kvöld er komið
Kólna tekur á fjöllum
Sulturinn hinn seka
Af svefni dagsins vekur.
Dimmir að og dimmir,
Dalafólkið sefur
Úr greni gægist
Gamall fjallarefur.
Einn má einstæðingur
Upp á reginfjöllum
Rekja raunir sínar
Réttdræpur af öllum
Theódór Gunnlaugsson (1983)
Refur með dauðan gæsarunga.
Mynd / Benedikt Hrólfur Jónsson
„Þessi gimbur hafði lent í afvelti
seint um kvöld eða um nóttina,
hefur líklega ekki legið lengi þar sem
þarna er stöðugt eftirlit en þó ekki
um nætur. Peyinn á bænum var á
ferð þarna rétt fyrir myrkur og kom
svo að tveimur tófum í lambinu um
níuleytið næsta morgun, ég tók því
miður aðeins eina mynd eftir að hafa
náð báðum dýrunum ca 45 mínútum
eftir ađ guttinn hringdi. Það er alveg
á kristaltæru að tófurnar komu ekki
að lambinu dauðu heldur drápu
það þar sem allt var í blóði ca 50-80
cm út frá höfðinu. Það hafði verið
bitið annað lamb viku áður en það
haði verið tekið stykki úr læri á því,
það var reyndar enn þá á lífi en var
drepið, það eru engar myndir til af
því.“ Mynd / Sæmundur Ingvarsson
Ungar sem komu úr læðukjafti í greni. Mynd / Ingvar Stefánsson Einn burður á greni, úr refskjafti. Mynd / Benedikt Hrólfur Jónsson
Frá refaveiðum. Mynd / Valur Pálsson