Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 71
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 71
VANTAR ÞIG
VINNUFÉLAGA?
Njarðarbraut 1
260 Reykjanesbæ
Sími: 421 4037
netfang: lyfta@lyfta.is
www.lyfta.is
421 4037
Lyfta er umboðsaðili á Íslandi fyrir Snorkel og Smartlift
• Skæralyftur
• Spjótlyftur
• Skotbómulyftarar
• Sogskálalyftur
Við höfum til leigu og sölu
Aukin ökuréttindi
Endurmenntun
Ökuskólinn Mjódd - Þarabakka 3 - 109 Reykjavík - s:5670300 - mjodd@bilprof.is
Næstu námskeið
Fjarfundur
29. mars
Staðnám - hraðferð
3. mars
Umferðaröryggi
5. mars - 09:00 - 16:00
Vistakstur
7./8. mars - 17:00 - 20:30
Vöruflutningar
9./10. mars - 17:00 - 20:30
Skyndihjálp
12. mars - 09:00 - 16:00
Lög og reglur
14. mars - 17:00 - 20:00
15. mars - 17:00 - 21:00
Umferðaröryggi
16./17. mars - 17:00 - 20:30
atvinnubílstjóra
Menntun ökumanna er okkar fag
Vinnslubreidd 1,40 m. . Notaður 80-100 klst.
Rafmagnssnúningur á túðu. . Vel við haldinn og í fullkomnu lagi.
Verð kr. 660.000 +vsk. . Upplýsingar í síma 893-0000.
Til sölu Avant snjóblásari árg. 2016
Nýlega var gefið út Plöntutal
fyrir Kjós og Kjalarnes á vef
Kjósahrepps, sem Björn Hjaltason
á Kiðafelli hefur tekið saman.
Þetta er þriðja upplýsingaritið
sem Björn skrifar um náttúrufar á
svæðinu, en áður komu út Fuglalíf
við sunnanverðan Hvalfjörð og
Straumendur á vatnasviði Bugðu
og Laxár í Kjós – en þau eru öll
aðgengileg á vefnum og gjaldfrjáls.
Björn segir að hann hafi lengi
haft áhuga á náttúrunni, hann hafi
til dæmis á barnsaldri byrjað að skrá
atferli fugla í Kjósinni í dagbók.
„Þannig að það hafa smám saman
safnast upp gögn sem mér datt í
hug að gaman væri að taka saman
í sérstaka umfjöllun. Ég hef sótt
um styrk til Kjósarhrepps sem er
auglýstur vegna samfélagsverkefna
og fengið stuðing til að gefa út
þessi rit hjá þeim,“ segir Björn.
Hann leggjur áherslu á að hann sé
áhugamaður á þessu sviði en reyni
þó að fjalla um náttúrufarið með eins
mikilli „fræðilegri nákvæmni“ og
hann hafi tök á.
Um 120 fuglategundir skráðar
á svæðinu
Fyrsta greinin eftir Björn, sem birt
var á vef Kjósarhrepps, fjallar um
straumendur á vatnasviði Bugðu
og Laxár í Kjós. „Já, það er grein
sem birt var í Fuglatímaritinu Blika
á sínum tíma, líklega í kringum árið
2000. Það var skemmtilegt verkefni
sem byrjaði þannig að ég fór að
litamerkja straumendur til að geta
fylgst með ferðum einstakra fugla
um vatnasviðið. Það þróaðist svo út
í allsherjar rannsókn á þeim á þessu
svæði, en árnar hafa sameiginlegan
ós í Laxárvogi í Hvalfirði,“
segir Björn.
Þaðan hafi svo leiðin legið
að kortlagningu á fuglalífi við
sunnanverðan Hvalfjörð, en um
einstaklega yfirgripsmikið rit er að
ræða – og ríkulega myndskreytt. Í riti
Björns kemur fram að um 120 tegundir
fugla hafi verið skráðar á svæðinu, þar
af 54 reglulegir varpfuglar.
Getið um 290 plöntutegundir
á svæðinu
Nú í febrúar kom svo út Plöntutal
fyrir Kjós og Kjalarnes. „Þá lá beint
við að taka plönturnar fyrir, enda
hafa þær líka verið mikið áhugamál
og náttúran yfirhöfuð verið mínar ær
og kýr,“ segir Björn. Hann er sem fyrr
segir frá Kiðafelli í Kjós og uppalinn
sveitastrákur. Hann er þó ekki með
hefðbundinn búskap þar, en segist vera
með svolítinn sjálfsþurftarbúskap.
Hann segir að lögð hafi verið
áhersla á myndræna
framsetningu með
stuttum lýsingum á
plöntum, til dæmis
um algengi þeirra
og kjörlendi. Hann
hafi sjálfur tekið
allar myndir fyrir
það rit, enda hafi
ljósmyndabakterían
gripið hann sterkum
tökum á undanförnum
misserum. Getið er um
290 plöntutegundir í
ritinu.
Spurður hvort það
sé ekki mikill fengur
fyrir sveitarfélagið
að hafa aðgengilegar
slíkar upplýsingar um
náttúrufarið á svæðinu, segist Björn
telja að svo geti verið í ýmsu tilliti.
„Ég sé fyrir mér að þetta geti nýst
til dæmis í skipulagsstarfi til dæmis
og svo auðvitað til að vekja fólk til
umhugsunar um umhverfi sitt. Svo
mætti hugsa sér að ferðaþjónustan
gæti notað þetta,“ segir Björn.
/smh
Náttúrufar við sunnanverðan Hvalfjörð:
Plöntutal fyrir Kjós
og Kjalarnes
Forsíðan á nýjasta vefriti Björns Hjaltasonar, Plöntutal
fyrir Kjós og Kjalarnes.
Björn Hjaltason.
LÍF&STARF