Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Qupperneq 38
38 – Sjómannablaðið Víkingur
Pissukeppni – mannalæti eða góð fjárfesting
Erlendis tala menn um „pissing contest“ í sambandi við keppni
um álit, við getum kallað það mannalæti.
Þó að það gangi best að hækka verð, þegar markaðurinn veit
að framboð er takmarkað, þá keppast menn við að byggja sem
stærst skip, og hver ný skipasería á að hafa meiri TEU fjölda en
sú næsta á undan, þó heildar burðargeta hvers skips breytist
lítið, enda voru menn til skamms tíma innan 400 metra lengd-
armarka og 60 metra breiddar. Þá höfðu skipin mest 23 raðir
yfir.
Þetta aukna framboð umfram aukningu eftirspurnar hefur
leitt til lágs flutningsverðs í mörg ár.
Þó langt sé í að einhverja útgerð vanti skip og enn séu stór
skip til leigu og stærstu skipum lagt á stundum, eru margar út-
gerðir enn að láta smíða „stærstu skip í heimi“. Í byrjun nóv-
ember 20171 voru 65 skip yfir 18.000 TEU í rekstri og 70 skip í
pöntun/smíðum, 1.4 milljón TEUs sem 6.5% viðbót við gáma-
flota heims. Þá voru skip með samanlagða 1.7 milljón TEU
burðargetu í smíðum, þar af tæp milljón TEU í skipum yfir
10.000 TEU að stærð. Samtals var verið að bæta við 14.5% við
flota sem er þegar verulega of stór og á markað sem vex hægt.
Innifalið í þessari tölu eru 20 skip sem talið er að öll verði
með 24 raðir yfir í stað 23 sem verið hefur það mesta til þessa
dags. Reyndar spáðu Hollendingarnir við Delft háskóla því
1999 að „MalaccaMax“ skipin yrðu með 24 raðir gáma yfir.
Alphaliner stingur upp á Megamax-24 eða MGX-24, sem heiti á
þessa útgáfu skipa. Þá eru 24 gámalengdir á dekki (40´) og
þriðja vídd MGX-24 eru að það eru 12 gámalög í lest og önnur
12 lög á dekki.
MGX-24 eru skip sem enn eru 400 metrar á lengd en hafa
breikkað frá 59 metrum um eina gámabreidd upp í 61,5 metra.
Þá hefur djúprista aukist og er mesta rista um 16,5 metrar.
Nokkuð flökt er á upplýsingum um burðargetu talið í TEU.
Í byrjun var talað um 23.000 TEU en þegar kapp var hlaupið í
útgerðir (pissing-contest) var farið að gefa upp stærðir nær
24.000 TEU. Það er gert með því að auka við einu lagi á dekk,
13 lög og er von á skipi, HMM Algeciras í umferð í apríl 2020
sem er með uppgefna burðargetu 23.964 TEU.
Það var reyndar búið af afskrifa HMM, sem hét lengi
Hyundai, vegna bágrar afkomu og fjárhagsstöðu og var þeim
aðeins gefinn takmarkaður aðgangur að 2M samráðinu. Nú er
búið að dæla peningum í fyrirtækið og það hefur sett sér mjög
GÁMAR OG SKIP
Gámavæðingin og áhrif hennar
5. hluti
Páll Hermannsson
1 Drewry, 121217, Big ship shopping.
MGX-24 skip CMA CGM eins og Alphaliner ímyndar sér skipin.