Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Page 5

Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Page 5
Orðsending til Húnvetninga og annarra lesenda Aðstandendur þessa rits gera sér það vel Ijóst, að framtíð þcss er öll í hendli Húnvetninga, heima og að heiman. Það eru þeir, sem hljóta að ráða því, hvort fleiri árg. Húnvetnings sjá dagsins ljós eða ekki. Útgefendur ætla því að spara sér langan formála að þessu sinni og einnig ætla þeir að gefa sem fæst og minnst fyrir- heit á þessu stigi málsins, en sjá hvað setur og aka síðan seglum eftir vindi. Tilgangur Húnvetnings er fyrst og fremst sá, að hitta Hún- vetninga að máli, hvar svo sem þeir em húsettir, minna þá á heima- hagana og flytja fréttir af mönnum og málefnum sýslunnar, ásamt öðru efni ýmislegu, sem tiltækilegt verður og ætla má að Hútn- vetningum sé öðrum fremur hugleikið. í þessu sambandi vilja útg. sérstaklega taka það fram, að ritið tekur fegins hendi við alls konar efni, og vill hafa sem mest og hezt sambönd við pennafæra Húmvetninga hvar sem þeir fyrir finnast. Húnvetningur á að vera skrifaður af Húnvetningum, fyrir Húnvetninga. Þegar ráðin var útgáfa þessa fyrsta árgangs Húnvetnings, þá var jafnframt ákveðið að ritið minntist sérstaklega þess merka áfanga í menningar- og heilbrigðismálmn heimahéraðsins, sem nú hefur verið náð, með hyggingu Héraðshælisins á Blönduósi. Utg. sneru sér því til Páls V. G. Kolka héraðslæknis og háðu hann að rita hyggingarsögu hælisins og lýsingu þess, en vegna kunnugleika hans og forustu fyrir málinu heima í héraði, var enginn betur fall- inn til að rita þessa grein. Kolka hrást líka vel við hón útgefenda, eins og þetta rit sýnir og enn fremur samdist um það milli hans og 3

x

Ársritið Húnvetningur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársritið Húnvetningur
https://timarit.is/publication/1679

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.