Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 41
Að halda þessum framkvæmdum áfram er mjög þýðingarmikið
og nauðsynlegt. Verður þó tæplega um verulegar viðbætur að
tæða nema með nýrri virkjun eða sambandi frá Laxárvirkjuninni
í Þingeyjarsýslu, sem ráðagerðir liggja fyrir um.
10. Nýbýlaframkvœmdir. Tvö nýbýlahverfi hafa verið undir-
búin með mikilli framræslu og ræktun. Aannað á Skinnastöðmn,
hitt á Auðkúlu. Standa vonir til, að þau geti haft verulega þýð-
ingu fyrir héraðið. Auk þess hafa allmörg nýbýli einstaklinga verið
styrkt með framlögum og lánsfé.
Allar þær opinberu framkvæmdir, sem hér hafa verið nefndar,
kosta mikið fé og hefðu eigi komizt í verk nema með miklum
áróðri og áhuga, samfara sterkum félagslegum samtökum, sem
jafnan munu verða núlifandi kynslóð Austur-Húnvetninga til
sæmdar.
En til viðbótar þessu hafa á sama tímabili stórkostlegar fram-
kvæmdir orðið í héraðinu, sem einstaklingar hafa komið í
verk og jafnframt með aðstoð félagslegra samtaka, svo sem
búnaðarfélaganna og btinaðarsambandsins, sem nú hefur starfað
rúmlega fjórðung aldar. í þessum efnum hafa stórstígar framfarir
orðið. Framræsla, nýræktun, túnasléttur, íbúðarhúsabyggingar,
peningshús, hlöður, votheysgryfjur og turnar, áburðargeymslur
og fleira hefur á þessu tímabili komizt í verk í miklu stærri stíl
cn áður hefur tekizt. Kernst þar ekkert til samanburðar.
Má því með fullum rétti segja, að sú kynslóð, sem lifað hefur
og starfað það tímabil, sem hér hefur verið gert að umtalsefni,
hún hafi sýnt, að mikið cr hægt að gera, cf vel vill og þegar ckki
cr ncinn sá andi ríkjandi, að mennirnir reyni að spilla hver öðr-
um. — Raunar má telja að á landi höfum við Húnvetningar verið
heppnir með árferði á þessum tíma. Hitt dregur mikið niður, að
sjávargagnið hefur brugðizt raunalega. Annað er og vert að
niinna á, að á þessu tímabili hafa héraðsbúar átt við ægilega plágu
að búa, þar sem er Karakúlpestin. Hún hefur að vísu verið yfir-
stigin, að menn vona, cn það hefur líka kostað mikla fórn og
fyrirhöfn.
Ég veit að skuldirnar, sem safnazt hafa eru þungur baggi og
verða það. En ef eigi væru aðrir fjarlægari skuggar á veginum,
þá held ég, að við Húnvetningar getum litið björtum augum á
framtíðina. Hver mundi líka óska þess, að Jrau verk sem hér
39