Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 15
Lýsing hússins
Héraðshælið nýja er stórt hús, hátt á 9. þúsund rúmmetra, og
hefur hyggingarkostnaður hússins sjálfs ekki orðið nema um 600
krónur á hvern rúmmetra, en um 650, ef með er talin vinna við
lóð og meiri háttar föst tæki, svo sem þvottavélar, föst suðutæki,
kælivélar og hitunartæki fyrir næturrafmagn. Þetta er svo ódýrt,
að einsdæmi má telja um opinbera byggingu, sem reist hefur
verið á svipuðum tíma, og er |xi frágangur allur vandaður, tviifalt
gler með loftjréttu bili í gluggum, útihurðir allar úr tekkviði, ryð-
frítt stál, smíðað eftir máli, á vinnuborðum velflestum, svo að
eitthvað sé nefnt. Utveggir allir eru fóðraðir með 8 stm. Jrykku
steinullarreifi, enda er húsið hlýtt. Stórar og skjólgóðar svalir eru
á öllum þess hæðum, sjúkralyfta milli kjallara og þakhæðar og
matarlyfta frá 1. hæð til 4. Auk þess er línháfur milli allra hæð-
anna, svo að hægt er að kasta óhreinu líni frá öllum hæðum niður
í |wottahúsið, og er að því vinnusparnaður. í því er geislahitun
og í öllum sjúkraherbergjum og víðar eru mundlaugar með heitu
og köldu vatni, en lagnir fyrir sérstakt ljós, útvarp og hringingu
er við hvert sjúkrarúm. í því eru sjö baðherbergi og níu snyrti-
klefar með salernum, Jiar af einn með steypibaði. Á hverri hæð
er sérstakur klefi fyrir rafmagnstöflu og með hyllum fyrir öryggi
og Ijósakúlur til vara, sem eru því alltaf nærtækar.
Sérstök loftrás er frá hverju sjúkraherbergi, snyrtildefa, búri
o. s. frv., og mætast þær allar á hanabjálkalofti, Jiar sem hægt er
að setja loftdælu til þess að sjúga notað loft út úr lnisinu, ef upp-
streymið í pípunum reynist ekki einhlítt. Veggfastir fataskápar
eru í öllum sjúkrastofum og svefnherbergjum starfsfólks, og hefur
hver sjúklingur sinn skáp.
Á öllum stigariðum eru handlistar úr plasti, en J>að ryður sér
nú mjög til rúms, enda er það bæði mjög snoturt og þrifalegt, en
allt að því tífalt ódýrara en handlistar úr harðviði. Tveir menn
lögðu á einum degi plastið á öll stigariðin í húsinu, yfir 70 metra
á lengd, og höfðu til þess ekki önnur tæki en þvottabala með heitu
vatni. Þá eru og öll stiganef lögð listum úr plasti og mun ]>etta
vera fyrsta hús á landinu með þeim útbúnaði, en á flestum nýjum
spítölum hér hafa stigar verið lagðir „terrazzo“, sem er að vísu
hreinlegt, en hart undir fæti og svo hált, að slysahætta stafar af.
Fjórar uppþvottavélar fyrir horðhúnað eru í húsinu, matarílát
13