Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 75
Frd Hú n vetningafélagin u
í Keykjavík
Úr bréfi til ritstj.:
Húnvetningfélagið hér var stofnað 17.
fcbrúar 1938. Fyrsti formaður þcss var
Sigfús Halldórs frá Höfnum. Félagar voru
fljótlega um 200. Félagsstarfið gctur ekki
talizt mikið. Þó hefur félagið alltaf haldið
uppi skcmmtanastarfi að vetrinum, og má
fullyrða, að það hafi oft rifjað upp gamlar
cndurminningar, er ekki hafa verið þýð-
'ngarlitlar fyrir einstaklinginn og félags-
lieildina. Á þessa skemmtifundi kemur mjög oft fólk heiman úr héraði, sem
statt er í liænum, og er það til mikillar ánægju fyrir okkur, sem burt crum
Sigurðsson bóndi Vigdísarstöðum, Pálmi Jónsson bóndi Bergsstöðum og
Guðjón Jósefsson bóndi Ásbjarnarstöðum. Hreppstjóri og sýslunefndarmað-
ur cr Guðntundur Arason bóndi á lllugastöðum. Kirkjuhvammshreppur cr
1 þremur prestaköllum: Melstaðar, Tjarnar og Breiðabólstaðar. Prestaskipti
urðu á Alelstað 1954, séra Jóhann Kr. Briem, sem þjónað hafði þar yfir 40
ár, ástsæll og virtur af öllum, lét af embætti fyrir aldurs sakir, en við tók
séra Gísli Kolbeins, ungur maður og dugmikill.
Séra Sigurður Norland prestur á Tjörn lét af prestskap á því ári, einnig
fyrir aldurs sakir, var honum í tilefni af því haldið samsæti að Tjörn.
Þakkaði söfnuðurinn honunt langa og góða þjónustu og færði honum að gjöf
málverk af Itans eignar- og ættarjörð Hindisvík, gert af Sigurði Gíslasyni
gjaldkera Itjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.
Séra Robert Jack hefur verið veitt Tjarnarprestakall, en hann hefur enn
ekki getað flutt þangað, því enginn húsakostur er á því prestsetri enn sem
komið er.
Á Breiðabólstað í Vesturhópi situr hinn virðulegi prestur og ræðuskör-
ungur séra Stanley Melax.
Bændahöfðinginn og þjóðhagasmiðurinn Jónas Jónasson, sem lengi hefur
búið að Múla hætti búskap á sl. vori, en nú býr þar Reynir Jónsson frá
Jörfa í Víðidal.
30. desember ’55. E. H.
Finnboei Jiílíusson.
73