Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 38
þau einu í okkar héraði til samgöngubóta frá sjó og er að þeim
mikil framför frá því sem áður var. En á næstunni er mjög áríð-
andi, að ljúka við það nauðsynlegasta við hafnargarðinn á Skaga-
strönd. Það er áætlað að kosti hálfa aðra milljón króna.
2. Vegabætur. A umræddu tímabili hefir verið unnið meira að
vegabótum í sýslunni en á mörgum öldum áður. Eftir síðustu
vegalagabreytingu eru þjóðvegir í sýslunni 259.7 km. Þar af talið
akfært 232.4 km. Sýsluvegir munu vera 76.5 km og hreppsvegir
49.3 kílómetrar.
Þessir kafiar hafa verið teknir í þjóðvegatölu á tímabilinu:
1. Vatnsdalsvegur frá Undirfelii um brú á VTatnsdalsá hjá Gríms-
tungu og út að austan á Norðurlandsveg hjá Aralæk.
2. Reykjabraut: Af Norðurlandsvegi hjá Giijá um Reyki að
Tindum.
3. Flugvallarvegur: Af Norðuriandsvegi að flugveilinum við
Húnavatn.
4. Svínvetningabraut frá Svínavatni um Blöndubrú á Norður-
landsveg norðan Svartárbrúar.
5. Bugsvegur frá Syðri-Löngumýri að Eiðsstöðum.
~6. Blöndudalsvegur frá Blöndubrú að Austurhlíð.
6. Svínadalsvegur: Af Reykjabraut við Svínavatn um Grund og
Auðkúlu á Svínvetningabraut í Stóradalsflóa.
7. Svartárdalsvegur frá Bólstaðarhiíð að Stafnsrétt.
8. Skagastrandarvegur frá Skagaströnd að sýslumörkum austan
Ásbúða.
9. Laxárdalsvegur: Af Skagastrandarvegi hjá Lækjardal að
Skrapatungu.
10. Norðurárdalsvegur: Af Skagastrandarvegi upp Norðurárdal
að sýslumörkum.
Þessi mikla breyting hefur haft í för með sér og mun hafa stór-
kostlega þýðingu fyrir héraðið. En að öðru leyti verður það
stórmál, sem vegalagningarnar eru, eigi rætt hér að þessu sinni.
3. Brúargerðir: Þrjár stórbrýr og sjö smábrýr hafa verið byggð-
ar í sýslunni á umræddu tímabiii. Stórbrýrnar eru: Blöndubrú,
Vatnsdalsbrú og Laxárbrú hjá Skrapatungu. Smábrýrnar eru á
þessum stöðum: Kornsá, Álftaskálará, Tunguá, Skriðugili, Torfa-
iæk, Harastaðaá og Fossá.
Á þessu ári er áætlað að brúa Svínadalsá. Eru þá eftir þessar
ár, sem brúa þarf í héraðinu: Laxá í Nesjurn, Svartá lijá Fjósuní,
36