Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 80
Látið fjúka í ferhendum
BREYTING
Öli hresstur ekki sést,
eins og prestur breyti.
Nú er flest sem fannst mér bezt
farið að mestu leyti.
Bjartii frá Gröf.
STAKA
Enn í hlóðum eldar braka,
ylja þjóðinni. —
Þar á móðir málsins spaka
málm í glóðinni.
Valdeinar Benónýsson.
Á SJÖT UGSAFMÆLINU
Myrkrið skellur óðum á,
ævi svella slörkin.
I fárið fellur, fölnar brá,
finn eg ellimörkin.
Gísli Ólafsson.
BRIAf
Ileggur bjartur Hrannarskafl
hamra svarta kóra.
Brýz.t um hart með óignar afl
Ægis hjartað stóra.
Maria Bjarnadóttir.
STAKA
Með Ijós í stafni lág með völd,
lítið safn á borðum,
eg mun hafna undir ltvöld
eins og nafni forðum.
Hjálmar frá Hofi.
IIAUSTVÍSA
Finn eg hrollinn, fyrnist vor,
fölvar í bollum lánna.
Skurnar á pollum, ^korpnar for,
skrjáfar í kollum trjánna.
Bjarni frá Gröf.
STAKA
Sárið grær, en svíður þó,
sorgir ljær og kvíða.
Tækifæri í tímans sjó
tapast ærið víða.
Rósberg G. Snædal.
STAKA
Margt er haldið vænna en var
vinagjaldið nauma.
Undir faldi fegurðar
fann eg kalda strauma.
Sveinn frá Elivogwn.
NÝJU LJÓÐIN
Nú léttist óðum listamannsins starf
lækkað hefur andans frægðartindur
í nýju ljóðin lítið af rími þarf,
leirinn þau svo prýðilega bindur.
Bjarni frá Gröf.
„MILLILIÐIR"
Sumir prestum sýna traust
sálina að náða.
En ég vil mflliliðalaust
láta Drottin ráða.
Bjarni frá Gröf.
78