Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 61
Fólksflutningar hafa ekki orðið miklir á árinu; þó flutti einn bóndi burtu
ur sveitinni með fjölskyldu sína.
A árinu var lokið við byggingu á tveimur íbúðarhúsum úr steinsteypu. Er
annað á Neðri-Harastöðum og hitt í Höfnum, og á Tjöm er í byggingu
ibúðarhús úr steinsteypu. Komst það undir þak í haust.
Skurðgrafa vann í hreppnum síðastliðið sumar, og einnig sumarið áður.
Hefur hún unnið að framræslu á vegum Búnaðarsambands Húnavamssýslu á
svæðinu austan Blöndu undanfarin ár og lauk við umferðina í haust. Einnig
vann jarðýta talsvert í hreppnum í sumar.
Að vegagerð var nokkuð unnið á árinu, og var, auk aðkallandi viðhalds,
undirbyggður vegur á svokölluðum Sviðningsrinda; einnig nokkuð lagaður
sneiðingur í Tjarnarbrekku, sem var ill yfirferðar.
A síðastliðnu ári voru keyptar í lireppinn þrjár dráttan'élar, en áður voru
aðeins þrjár til og þrjár jeppabifreiðar.
Síðastliðið haust andaðist eftir langa legu Vilhjálmur Beilediktsson, bóndi
a Brandaskarði; var hann atorkusamur starfsmaður meðan heilsa leyfði, bætti
jorð sína mikið og húsaði myndarlega. Viðmótsgóður var hann, skemmtinn
°g vel skáldmæltur. Munu margir sakna hans.
I janúar 1956.
Sigvmndur Bencdiktsson.
FRÉTTABRÉF ÚR HÖFÐAHREPPI
Janúar. Tíðarfar var fremur milt þennan mánuð. Vetranærtíð hófst hér á
Skagaströnd um miðjan janúar. Gerðir voru út vélbátar, og er stærð þcirra
frá 30—40 smálestir. Bátarnir voru þessir: Aðalbjörg, formaður Stefán Pálsson;
Auðbjörg, formaður Óli Jón Bogason; Asbjörg, formaður Kristinn Jóhanns-
son, Afli var sæmilegur.
Febrúar. Miklar frosthörkur voru, og komst frostið í 28 stig á Celsíus.
Snjór var fremur lítill. Sigfús Þorsteinsson, ráðunautur Búnaðarsambands A.-
Húnvetninga, stofnaði hér sauðfjárræktarfélag.
Marz. Tíðarfar var frernur stillt en töluvcrt frost. Guðni Sveinsson, fvrrum
bóndi í Hvammi á Laxárdal í Bólstaðarhlíðarhrcppi átti sjötugsafmxli þann
•9. marz.
Apríl. Allmikil frost, cn snjólítið. Ólína Sigurðardóttir, fyrrum ljósmóðir,
andast, 85 ára að aldri. Hjólreiðakeppni skólabarna fór fram á sumardaginn
fyrsta. Skólabörnin sýndu sjónleikinn „Dóttur skýjakonungsins“.
Maí. Frídags verkamanna, 1. maí, var minnzt mcð ræðu, cr formaður Verka-
lýðsfélags Skagastrandar, Björgvin Jónsson, flutti. Enn fremur sýndi Björn
Bergmann, kennari á Blönduósi, kvikmyndir. Karlakórinn „Húnar" á Blöndu-
osi söng, undir stjórn Guðmanns Hjálmarssonar trésmíðameistara. Einsöngv-
ari ltórsins var Fljálmar Eyþórsson bifrciðastjóri. Að lokum var dansað. UMF
„Frani“ á Skagaströnd sýndi sjónleikinn „IIappið“ cftir Pál J. Árdal þann 6.
59