Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 67
ember, skipti um veðráttu, gekk nú í norðanhríðar, og fyrir jól voru komnir
það miklir snjóar í úthluta liéraðsins, að nokkrir erfiðleikar voru á um sam-
góngur við Blönduós. Um áramótin var orðið það erfitt um samgöngur, að
skólafólki, sem komið hafði heim um jólin, ætlaði að ganga illa að komast
t'l baka, sökum hríða og ófærðar.
í ársbyrjun 1955 voru í hreppnum: 240 nautgripir, tæp 6000 sauðfjár, og um
600 hross. Sauðfé hefur eitthvað fjölgað á árinu, því að skýrslur forðagæzl-
Unnar telja nú á fóðri í lireppnum 646? sauðkindur.
II.
Mjög niikið var um verklegar framkvæmdir á árinu.
hími var lagður á þrjá fremstu bæina í Svartárdal: Hvamm, Stafn og Fossa,
°g er þá kominn sínii á alla bæi í hreppnum. Blönddælingar brutu ísinn í
s'mamálum hreppsins. Þar var lagður einkasími 1926, sama árið ög síminn
var lagður yfir Vatnsskarð. Það var Jón heitinn Jónsson í Stóradal, sem átti
'uestan þáttinn í að einkasími var lagður í Blöndudal. í kjölfar þeirrar fram-
kvæmdar sigldu svo lögin um einkasíma í sveitum 1929, en hvatamaður þeirr-
ar löggjafar var einnig Jón í Stóradal, sem það ár tók sæti á Alþingi.
Ekki var að þessu sinni unnið neitt að nýbyggingu vega, framkvæmdir í
þeim málum ekki annað en nauðsynlegasta viðhald.
Gengið var frá töluverðu af nýræktum, en minna um nýtt landbrot til tún-
tsktar en undanfarin ár, enda er á ýmsum býlum lokið við ræktun þess lands,
sem þurrkað var, þegar skurðgrafa Búnaðarsambandsins vann hér árin 1949 og
1950. Jarðýta sú, Td. 6, sem búnaðarfélag hreppsins hefur átt síðan 1945, var
seld á árinu.
Aðalframkvæmdirnar á þessu ári eru byggingar. Mun aldrei fyrr hafa verið
*Tggt jafn mikið á einu ári í hreppnum og að þessu sinni. Lokið var bygg-
mgu á þrem íbúðarhúsum, sem hafin var smíði á 1954, á þessum bæjum:
Bollastöðum, hjá Ingólfi Bjarnasyni, Bólstaðarhlíð, hjá Erlendi Klemenssyni,
°g í Hvammi í Svartárdal, hjá Þorleifi Jóhannessyni. Hafin var svo smíði
tveggja íbúðarhúsa: á Fossum, hjá Guðmundi Guðmundssyni og sonum hans,
og á Gunnsteinsstöðum. Það hús verður á nýbýli, sem Pétur sonur Hafsteins
bónda Péturssonar er að reisa sér í landi þeirrar jarðar. Þá var unnið áfram
við byggingu félagsheimilisins á Botnastaðamó, og var þetta fjórða árið, sem
byggingarframkvæmdir standa yfir. Kostnaður er nú orðinn 840 þúsund kr.,
°g er þó töluvert enn eftir, en menn gera sér vonir um, að því geti orðið
lokið á árinu 1956. Auk sveitarsjóðsins standa að byggingu félagsheimilisins
þrjú félög í hreppnum: búnaðarfélagið, kvenfélagið og ungmennafélagið.
Þá komum við að útihúsabyggingunum. Steinsteypt peningshús hafa verið
byggð
á árinu sem hér segir: Fjárhús á 7 bæjum fyrir samtals 1400 fjár, og
fjós á tveim jörðum /yrir 34 gripi. Steinsteyptar þurrheyshlöður hafa risið á
atta bæjum, samtals um 4400 rúmmetrar. Auk þessa var nokkuð byggt af pen-
'ngshúsum og heyhlöðum úr öðru efni.
65
5