Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 11
að gera mér grein fyrir |iví, hvernig koma skyldi fyrir húsi fyrir
heilsbrigðisþjónustu þessa héraðs, enda fór eg um þetta leyti að
gera frumdraettina að því og hefur þeim verið fylgt í öllum aðal-
atriðum. Sýslunefnd A.-H. samþykkti þá og kaus þriggja manna
nefnd til þess að undirbúa fjáröflun og annað, sem þurfti. I henni
voru auk mín sem formanns Guðbr. ísberg sýslumaður og Haf-
steinn Pétursson sýslunefndarmaður. Nefnd þessi leitaði samvinnu
við kvenfélög og ungmennafélög sýslunnar, og um það leyti sem
vcrkið var að hefjast, var kosin ný sjö manna framkvæmdanefnd
tneð þremur fulltrúum frá sýslunefnd, og kom þá Björn Páisson
í stað Hafsteins, frúrnar Þuríður Sæmundsen og Elísabet Guð-
niundsdóttir frá Kvenfélagasambandi A.-FI., en Guðmundur Jónas-
son óðalsbóndi í Ási og Snorri Arnfinnsson gestgjafi frá Ung-
mennafélagasambandi A.-H. Hefur hún starfað síðan.
Fyrst var húsinu hugsaður staður uppi á milli brekknanna, vestan
við Húnvetningabraut. Er þar slétt og þur grund og útsýni fag-
urt, en skjól ekki að sama skapi. Við rannsókn og mælingar sýndi
það sig, að hæpið var að ná þangað vatni á efri hæðir hússins og
að frárennsli vestur til sjávar var bæði um of langt og hallalítið
til að öruggt mætti teljast. Var því samþykkt tillaga Jónatans J.
Líndals sýslunefndarmanns um að reisa það á svokölluðu Læknis-
túni ofan við Blöndubrú, en það tún hafði Jón læknir Jónsson
ræktað úr mýri og selt sýslunni ásamt húsi sínu við burtför sína.
Þar cr Iandrými ágætt, skammt í vatnsból og stutt frárennsli mcð
góðum halla, ræktunarskilyrði ágæt og útsýni fagurt af cfri hæð-
um hússins yfir kauptúnið, árósinn og Húnaflóa með sínu dásam-
lega sólarlagi á sumrum. Þar er og dágott skjól og aðfennishætta
lítil, því að árgljúfrið tekur við skafrenningi frá norðri. Sá var
cinn Ijóður á, að þarna cr mjög djúpur jarðvegur og óttuðust því
margir, að gröftur fyrir grunni yrði þarna mjög dýr. Svo reynd-
ist þó ekki, því að jarðveginn var mjög auðvelt að vinna mcð
vélskóflu og hægt að ýta ruðningnum út í ána, enda kostaði gröft-
urinn ckki nema um 40 þúsund krónur eða minna cn 1% af bygg-
ingarkostnaðinum. Kemur það æ betur í Ijós, að ekki var hægt að
finna húsinu hentugri stað.
9