Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 62
og 7. maí. Þann 7. maí átti Magnús Hálfdanarson sjötugsafmæli. Hann er
faðir Asmundar verksmiðjustjóra á Skagaströnd. Einnig átti Þorbjörg Hall-
dórsdóttir húsfreyja í Réttarholti sjötugsafmæli þann 7. maí. Hret gerði um
miðjan mánuðinn, cr stóð í nokkra daga, með frosti og allmikilli fannkomu.
Þann 21. maí átti Klemcnsína Klcmensdóttir í Aigissíðu sjötugsafmæli. 29. maí
fermdi sóknarpresturinn, sr. Pctur Þ. Ingjaldsson, níu börn í Hólancskirkju.
Voru þá teknir í notkun fcrmingarkyrtlar, cr kirkjukórinn hafði gefið kirkj-
unni til eignar. Vetrarvcrtíð lauk í maílok, og var fiskurinn unninn í tveim
hraðfrystihúsum.
Jtíní. Sjómannadagsins var minnzt með guðsþjónustu, cr sóknarpresturinn
annaðist, ræðu Einars Olgeirssonar alþingismanns, og skemmtiatriðum, svo
sem rciptogi, kappróðri, stakkasundi, naglaboðhlaupi, hjólreiðakeppni, kvik-
myndasýningu og dansi.
Júlt. Elr. Asmundur Guðmundsson biskup vísiterar Idólaneskirkju þann 9.
júlí. Sóknarpresturinn þjónaði fyrir altari, cn biskup prédikaði og þjónaði
fyrir altari eftir prédikun. Sóknarpresturinn skírði 2 börn í messunni og
vígði nýjan skírnarfont. Sóknarnefndin hélt biskupi og kirkjukórnum sam-
sæti að lokinni messu. Sóknarnefndina skipa þessir rnenn: Björn Þorleifsson,
útibússtjóri, formaður, Páll Jónsson, skólastjóri, Ingvar Jónsson, fyrrum veit-
ingamaður, Sigríður Guðnadóttir, frú, og Sigríður Helgadóttir, frú. Stjórn
kirkjukórsins skipa þessir menn: Frú Sigríður Helgadóttir, formaður, Jón
Kristinsson, ritari, og Guðmundur Kr. Guðnason, gjaldkeri.
Ágúst. Gunnar Grímsson, kaupfélagsstjóri, lét af störfum við Kaupfélag
Skagstrcndinga, og honum og frú hans haldið samsæti þann 14. ágúst. Nýr
kaupfélagsstjóri tók við, Björn Pálsson hóndi á Ytri-Löngumýri í Blöndudal.
l'rú Björg Karlsdóttir símstjóri á Skagaströnd átti scxtugsafmæli þann 14.
ágúst. Lítil síldveiði var, cn þó barst á land hér allmikil síld í beitu til vetrar-
ins. Óþurrkatíð var, riguingar og kuldi, og var það til baga fyrir þá, cr hcy-
skap þurftu að sinna, cn það cr mciri hluti þorpsbúa.
Septanber. Þann 17. sept. átti OIc Omundscn, norskur lifrarbræðslumaður,
scm starfað hefir hér í mörg ár, sextugsafmæli. Þann 16. s. m. átti frú Vilborg
Guðmundsdóttir frá Miðgili 70 ára afmæli. — Slátrun sauðfjár hófst hjá Kaup-
félagi Skagstrendinga þann 21. scptembcr.
Október. Sauðfjárslátrun lokið. Slátrað var um 5 þúsund fjár. Einnig var
slátrað fjölda hrossa. Haustvertíð hófst um miðjan mánuðinn. Gcrðir voru
út 3 bátar og var afli sæmilegur. Tíðarfar var gott.
Nóveinber. Tíð var sæmilega góð mcstan hluta mánaðarins. Kvenfélagið
„Einingin" sýndi sjónleikinn „Skyggnu augun" þann 26. og 27. nóvembcr.
4. nóvembcr átti frú Sigurbjörg Jónasdóttir frá Fjalli 70 ára afmæli.
Desember. Tíðarfar var gott fyrri hluta mánaðarins, en nokkru fyrir jól
versnaði tíðin og gerði stórhríðar með mikilli fannkomu og var svo til stór-
hríð alla hátíðisdagana. Messað var á jóladaginn og á Gamlárskvöld var
60