Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 74
Húnaþingi er af Björgunum, þar sem vegur þessi liggur yfir þau. Má því
búast við, að hann verði fjölfarinn, þar sem hann líka er leiðin til Borgar-
virkis, norðan að.
Þá skulu hér nafngrcindir nokkrir menn, sem nú gegna opinberu starfi
hér í sveit: Oskar Levý, bóndi, Osum, hreppstjóri og sýslunefndarmaður.
I hreppsncfnd cru Jóliannes Lcvý, bóndi, Ilrísakoti, Jóscf Magnússon, bóndi,
Hvoli, Sölvi Guttormsson, bóndi, Síðu, og Tausti Sigurjónsson, bóndi, Hörg-
hóli. Jóhanncs Levý er oddviti sveitamefndar.
Janúar ’56.
FRÉTTABRÉF ÚR KIRKJUHVAMMSHREPPI
A árinu 1955 má tclja frekar hagstætt tíðarfar hér í sveit. Veturinn fremur
snjóléttur og fénaður allur vel framgcnginn. A sauðburði gcrði mikið snjó-
hret, scm ekki mun þó hafa valdið tjóni á fénaði svo tcljandi sé.
Grasspretta varð allgóð á túnum, þó gekk hcyskapur scint vcgna votviðra,
gras spratt úr sér, en hev hraktist ekki til muna.
F'é rcyndist vænna í haust en á sl. ári, meðalkjötvigt dilka var rúm 15 kg.
Þyngsti dilkskroppurinn, sem inn var lagður hjá K.V.H., vó 28.5 kg, eign
Jóns Gunnlaugssonar, Sauðá.
Nokkuð var unnið í hreppnum með jarðýtum á vcgum Ræktunarsam-
bands sýslunnar, þó var ckki hægt að fullnægja þörfum bænda á því sviði,
á þó Ræktunarsambandið 5 jarðýtur.
Nokkrar byggingaframkvæmdir voru í sveitinni, aðallega voru byggð
fjárhús og heygeymslur.
Búnaðarfélagið keypti steypuhrærivél á árinu, sem það lánar út til féiags-
manna og er það mikilsvert fyrir þá sem em að byggja. F'ormaður Búnaðar-
félagsins er Bjarni Sigurðsson bóndi á Vigdísarstöðum.
I sveitinni starfa tvö sauðfjárræktarfélög, í norðurhlutanum Sauðfjárrækt-
arfélagið „Vatnsnesingur“, formaður Loftur Þ. Jósefsson bóndi á Asbjarnar-
stöðum, en í framhlutanum Sauðfjárræktarfélagið „Prúður“, formaður Bjarni
Sigurðsson, Vigdísarstöðum.
Hér cr starfandi ungmennafélagið „Hvöt“, formaður Olafur Þórhallssoti,
kennari og bóndi á Syðri-Anastöðum.
Tvö kvenfélög eru í sveitinni, „Von“, forinaður lngibjörg Daníelsdóttir,
húsfrú á Bergsstöðum, og „Sigurósk“, formaður Ingibjörg Þórhallsdóttir, hús-
frú á Syðri-Sauðadalsá.
Hreppsncfndina skipa fimm menn, oddviti er Jón R. Jóhannesson bóndi
á Syðri-Kárastöðum, ltyfirðingur að ætt, átti sextugsafmæli 17. des. sl. Var
þá fjölmenni mikið saman komið á heimili hans og gleðskapur góður. Voru
afmælisbarninu færðar gjafir, sem þakklætisvottur fyrir vel unnin störf í
þágu sveitarinnar í nærfellt tuttugu ár.
Aðrir í hrcppsnefnd eru: Árni Á. Hraundal bóndi í Grafarkoti, Bjarni
72