Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Page 51

Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Page 51
14 býli á Víðidal, sé þannig til komin að önnur fjallakot þar í namunda hafi verið talin með, þótt ekki séu á Víðidal. Sumar jarðir Víðidals hafa byggzt aftur, hafi þær eyðzt í Svartadauða, og skráðar heimildir, sem taka verður gildar, greina frá bændum a tveim jörðunt auk Gvendarstaða, á 17. öld, það er á Þúfnavöll- um og Helgastöðum. Þúfnavellir verða fyrst á vegi okkar. Þeir hafa staðið austan Víðidalsár, gegnt Litla-Vatnsskarði. Túnstæðið er þýfður bakki norðan við lítinn læk. Túnið hefur verið allstórt og engjaslægjur nokkrar á grundum og í mýrardrögum norður frá túninu, út með ánni. Margeir Jónsson fræðimaður á Ögmundarstöðum athugaði jarð- arstæðin á Víðidal og reit grein um þær athuganir sínar í „Blöndu“ 1927. Hann segist hafa heyrt að bæirnir hafi verið tvæir Ytri- og Syðri-Þúfnavellir, og telur sig hafa fundið merki um garðbrot á Ytri-Þúfnavöllum skammt norðan við þá sem ljósari eru. Ekki gat ég séð nein nterki um tvær jarðir á þessum stað. Þúfnavallatún er að mestu kornið úr allri rækt og mosi einn á mörgum þúfna- kollunum, en tóftir eða merki um byggingar má greinilega sjá á tveim stöðum í þúfnastykki þessu. í jarðabók Á. M. í kaflanum um jarðir í Staðarhreppi, skrifuðum 1713, segir að byggð hafi verið á Þúfnavöllum fyrir rúml. 40 árum. Hafi þá „Ólafur nokkur“ búið þar í eitt ár, „tók þaðan hús öll og færði til Elelgastaða“. Reynistaðarklaustur á þá (1713), öll jarðlönd í Víðidal. Síðan þessi „Olafur nokkur“ fluttist frá Þúfnavöllum, en það hefur verið nálægt 1660, hefur áreiðanlega ekki verið búið þar og er sízt að furða þótt nú séu óljós handaverk þeirra Þúfnavallabænda. Þykir mér ekld ósennilegt að erfitt verði að greina bæjarstæðin á ýmsunt cyðijörðum á Laxárdal eftir 300 ár hér frá, þar sent tóftir allar eru jafnaðar við jörðu að kalla, nú þegar. Við kveðjum Þúfnavelli og höldum út með Víðidalsá sama megin. Undirlendið er aðeins mjó ræma með ánni, en gróður er þar mikill og eins í fjallinu ofan við. Þar er haglendi ákjósanlegt, mikið af víði, sem dalurinn dregur trúlega nafn sitt af, bæði gul- víði og grávíði, einnig er þar berjalyng og fjalldrapi og vallendis- bollar á milli. Þarna framan í fjallinu eru svonefndir Hrossastallar og utan við þá er Gyltuskarð. Gyltuskarð liggur austur úr fjöllun- um fram á Staðaröxl ofan við Reynistað. Unt skarðið er greiðfær leið og oft farin og um það hafa Víðdælingar haft samgang við 49 4

x

Ársritið Húnvetningur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársritið Húnvetningur
https://timarit.is/publication/1679

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.