Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Side 54

Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Side 54
Austur frá Þverá er brött og lyngivaxin hlíð, suðurhlið Hryg'gja- fjalls, sem skýlir Víðidal fyrir norðanátt. Þarna í hlíðinni fann ég mikið af bláberjum og krækiberjum, og voru þau snöggt um stærri og þroskaðri en þau ber, sem við fundum annars staðar í þessari ferð. Sé maður uppi í hlíðinni vestan til, blasir Víðidalur allur við frá enda til enda, og í sólskini og sumarhita eins og ríkti þá stund, sem við töfðum þarna, er dalurinn fallegur og vingjarn- legur. Víðidalsá kvíslast um eyrar og engi eins og kristallaður borði. Þverár og léttir lækir hoppa niður brattar hlíðarnar beggja vegna og fjöllin minna á skjól og friðland. En nú eigum við eftir að heimsækja síðasta bæinn í dalnum, Gvendarstaði. Þeir eru austast í hlíðinni fríðu, sem ég var áðan að lýsa. Túnið breiðir sig beint móti suðri. Gvendarstaðir lutu sömu örlögum og aðrar jarðir Víðidals, lágu í eyði líklega öldum saman, en byggðust á ný á öndverðri 18. öldinni og héldust nær óslitið í byggð til ársins 1898. Allan þann tíma vora Gvendarstaðir „síðasti bærinn í dalnum“. Hannes Kristjánsson og Þóra Jónsdóttir, sem oft hafa komið hér við sögu, voru síðustu ábúendur þar. Ábúendaskipti voru tíð á Gvendarstöðum eins og títt var á fleiri fjallabýlum, og á árun- um 1783—1898 bjuggu þar 27 bændur. Þó bjuggu þar ýmsir vel og sami maður bjó þar t. d. í 31 ár, aðrir flosnuðu upp eða fluttu sig fljótlega til annarra staða. Gvendarstaðir hafa áreiðanlega verið bezta jörðin í Víðidal og fleiri kostum búin en hinar. Túnið hef- nr verið stórt og grasgefið, en nær allt kargaþýfi. Túngarður hefur verið þar öflugur og sér fyrir honum enn þá víðast hvar, og bendir allt til að hann hafi verið mikið mannvirki. Húsarústir eru miklar og greinilegar, því heilleg veggjabrot standa enn uppi. í Jarðabók Á. M. segir að „á Gvendarstöðum kalli menn kirkju- staðinn“ og enn fremur að Þúfnavellir og Helgastaðir hafi átt kirkjusókn þangað. Vegna þess að öllum munnmælutn ber saman um, að kirkja bafi verið á Helgastiiðum, freistast maður til að álíta að um villu eða missögn sé að ræða í jarðabók Árna. Getur líka vel verið að heimildarmenn hans hafi ekki haft nægan kunnug- leika þarna á, eða ritarinn ruglazt í nöfnum. Þess er einnig getið neðanmáls að umsagnirnar um jarðir á Víðidal hafi fundizt á lausum miða í handritinu. Hryggjadalur liggur austur frá Gvendarstöðum og um hann liggur leiðin niður í Gönguskörð til Sauðárkróks. Hryggjadalur 52

x

Ársritið Húnvetningur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársritið Húnvetningur
https://timarit.is/publication/1679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.