Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 66

Ársritið Húnvetningur - 01.06.1956, Blaðsíða 66
ast hennar frábæru gestrisni, er hann hefur borið að garði að Þverá, a leið milli Húnaþings og Skagafjarðar. Pétnr Þ. Ingjaldsson. I RIT'fARRl'.h ÚR BÓLSTAÐARHLÍÐARHRF.PPI I. Tíðarfar frá nýjári til vors var áfellalítið. Fannalög urðu aldrei mjög mikil, svo að hægt var að halda uppi reglubundnum mjólkurferðum um héraðið. Eftir hlákur fyrstu dagana í janúar gerði frostakafla, og komst frostið þá hæst í 22 stig. Veður voru svo frelcar óstöðug, snjókomur og blotar á milli og nokkuð frosthart einstaka daga. Góða hláku gerði þó í byrjun marz. Eftir það voru ekki eins miklir umhleypingar. í febrúarlokin var orðið frekar slæmt til jarðar, sérstaklega vegna svellalaga og áfreða. Margt hrossa gekk þó alveg af um veturinn. Um sumarmál voru snjóar mjög leystir, og tók jörð að gróa, þó fremur færi hægt að, því að oftast voru frost á nóttum. Hélzt svo, þangað til fullur þriðjungur var af maí, en þá gerði slæmt áhlaup, er stóð á aðra viku, fyrst snjókoma og svo þurra- kuldar. Úr 20. maí hlýnaði, og var sérstaklega hagstæð tíð það sem eftir var sauðburðar. Fénaður gekk yfirleitt vel undan vetri, enda reyndust hey góð til gjafar. Sauðburður gekk vel og var margt tvílembt, en vegna þess hvað gróður var lítill fram eftir sauðburði, urðu lömb mjög misjöfn að þroska. Einstaka bændur í hreppnum hófu heyskap níu vikur af surnri, en almennt var ekki byrjað fyrr en allt að hálfum mánuði síðar. Tíðarfar var fremur erfitt til heyskapar. Fyrri part sláttar voru að vísu ekki mikil úrfelli, en mjög skúrasamt. Heyskapur gekk því seint, og tún spruttu úr sér. Attin var jafnan vestlæg og óvenju vindasamt. Olli það víða töfum. Eftir höfuðdag urðu úr- fellin meiri og gekk mjög stirt að þurrka. Margir áttu úti hey í réttum. Spretta var misjöfn, enda var hvort tveggja, að sum tún voru töluvert kalin og jarðklaki tafði mikið sprettu. Jiirð var óvenju ntikið frosin eftir veturinn. Meðalhiti sumarsins mun að vísu hafa verið fullkomlega í meðallagi, en óvenju lítið var urn sólríka daga. Það gekk því seint að þiða klakann. Tún, sem voru í góðri umhirðu, skiluðu þó yfirleitt sæmilegri uppskeru, svo að telja má, að heyföng hafi orðið allt að því í meðallagi. Sennilega hefði heyskapur orðið lélegur, ef ekki hefði notið við tilbúins áburðar, en notkun hans hefur mjög aukizt síðustu fimmtán árin, eða úr 10 smál. ails í hreppnum að meðaltali á ári 1941—45 í 100 smál. að meðaltaii árin 1951—55. Kartöfluuppskera varð fremur léleg. Með október skipti um tíð, og var haustveðráttan stillt og fremur mild. Nautpeningur tók meginhlutann af fóðri sínu úti fram um miðjan október. Þegar kom fram í nóvember gerði hlýindakafla. Slepptu þá ýmsir fé aftur, sem höfðu verið búnir að taka það til hýsingar. Þegar rúm vika var af des- 64
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Ársritið Húnvetningur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársritið Húnvetningur
https://timarit.is/publication/1679

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.