Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.11.2022, Síða 6

Morgunblaðið - 25.11.2022, Síða 6
FRÉTTIR Innlent6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2022 holabok.is • holar@holabok.is FIMM FRÁBÆRAR! haft hugmynd um breytingarnar. „Ég hef miklar áhyggjur af þessum gatnamótum – þessi breyting er stór- hættuleg og var aldrei kynnt nokkurs staðar,“ skrifar einn íbúi. Í kjölfar þessara umræðna birtist frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar þar sem útskýrt er að þessar endur- bætur séu hluti af stærra verki sem felst í því að endurnýja umferðar- ljósabúnað á nokkrum gatnamótum við Hringbraut. Nýju ljósin tengjast miðlægri stýritölvu umferðarljósa sem muni stytta viðbragðstíma við bilunum og gefur kost á forgangi fyrir neyðarbíla og strætó. Grétar Þór Ævarsson, samgöngu- verkfræðingur hjá Reykjavíkurborg, segir í samtali við Morgunblaðið að tímabært hafi verið að endurnýja ljósabúnað og þessa tegund ljósa, þar sem grænt sé á sama tíma á gangandi vegfarendur og bíla sem beygja, sé mjög víða að finna. „Meginmarkmiðið var að stytta biðtímann fyrir gang- andi vegfarendur. Við höfðum fengið ábendingar um að þar sem fólk þurfti að ýta á takka til að fá grænt ljós og bíða eftir því hafi það freistast til að ganga yfir á rauðu ljósi,“ segir hann. Grétar upplýsir að þar sem breytingarnar hafi komið mörgum á óvart hafi verið ákveðið að setja upp gult blikkljós til að vekja athygli öku- manna frá Bræðraborgarstíg á því að þeir þurfi að taka tillit til gangandi vegfarenda yfir Hringbraut. Hann fellst á að betur hefði mátt standa að kynningu fyrir borgarbúa. Varðandi tímasetningu framkvæmdanna og það að fyrirkomulaginu sé breytt nú þegar svartasta skammdegið er runnið upp segir Grétar að það hafi einfaldlega hist þannig á að ekki hafi verið hægt að klára þær í sumar. Þá hafi verið unnið að öðrum framkvæmdum. „Því miður hitti þannig á að við komumst ekki í þetta fyrr en núna.“ Breytingar sem nýlega voru gerðar á umferðarljósum á gatnamótum Hringbrautar og Bræðraborgarstígs virðast hafa komið íbúum og vegfar- endum í Vesturbænum í opna skjöldu. Greint er frá því í íbúahópi á Face- book að í vikunni minnstu hafi mátt muna að ekið væri á stúlku á hjóli þegar hún fór yfir gangbraut á grænu ljósi á þessum gatnamótum. Áður var grænt ljós á gangbraut þegar ýtt var á hnapp og bílar biðu á rauðu ljósi á meðan. Eftir breytingarnar kviknar samtímis á grænu gönguljósi yfir Hringbraut og grænu ljósi fyrir um- ferð bíla sem taka vinstri beygju frá Bræðraborgarstíg yfir á Hringbraut. Í íbúahópnum hefur skapast tals- verð umræða um þessar breytingar og hættu á slysum sem hafi skapast vegna þess að íbúar virðast ekki hafa l Íbúar í Vesturbænum vissu ekki að fyrirkomulagi við gatnamót Hringbrautar og Bræðraborgarstígs hefði verið breyttlLá við slysi í byrjun vikunnarlSetja á upp gul blikkljós til að vara ökumenn við Breytt ljósastýringkom íbúumáóvart Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Breyting Ökumenn sem beygja til vinstri frá Bræðraborgarstíg inn á Hringbraut þurfa nú að taka tillit til gangandi vegfarenda á grænu ljósi. „Þessar viðvaranir snúa aðallega að þeim ferðamönnum sem eru staddir á landinu. Ég held að þetta sé til- fallandi ástand en ekki viðvarandi,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar, um viðvaranir sendiráða Bret- lands og Banda- ríkjanna til rík- isborgara landa sinna um að fara varlega í mið- borg Reykjavík- ur um helgina. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hafa skjá- skot með skilaboðum verið í dreif- ingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi hefndarárás í miðborginni næstu helgi. Umrædd hefndarárás á að tengjast hnífs- stunguárásinni á Bankastræti Club fyrir rúmri viku. Mikill órói hefur verið í undirheimum borgarinnar síðustu daga og fréttir hafa borist af því að eld- og reyksprengjum hafi verið kastað að íbúðarhúsnæði og skemmtistað. Ekki liggur fyrir hve trúverðugar áðurnefndar hótanir eru en lögregl- an hefur lýst því yfir að almenningi stafi ekki hætta af. Eðlilegt að fylgjast með Í tilkynningu sem birtist á Face- book-síðu breska sendiráðsins kemur fram að þjófnaður og and- félagsleg hegðun geti átt sér stað, sérstaklega í kringum bari þar sem fólk safnast saman seint að kvöldi til í miðborginni. Þá er líka minnst á stunguárásina á Bankastræti Club. Áður höfðu bandarískir kollegar breskra sendiráðsstarfsmanna gert slíkt hið sama. „Í heildarsamhenginu hef ég ekki miklar áhyggjur af þessu þó það sé óþægilegt meðan á því stendur,“ segir Jóhannes Þór en Bretar og Bandaríkjamenn eru afar mikil- vægir ferðaþjónustunni hér á landi. „Það er eðlilegt að þessi sendiráð fylgist vel með og svona viðvaranir eru hluti af þjónustu við borgarana. Ég horfi fyrst og fremst á þetta sem samfélagsvandamál sem vonandi verður hægt að leysa fljótt og með árangursríkum hætti.“ lFerðamenn varaðir við miðbænum Óþægilegt en til- fallandi ástand Jóhannes Þór Skúlason Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Einstök veðurblíða norðan heiða gerir að verkum að fjöldinn allur af fólki er á ferðinni, enda færð eins og á sumardegi. „Fólk er greinilega að nýta sér gott veður og góða færð, það er mikil umferð, fólk úr ná- grannabyggðalögum kemur mikið til að versla og eins þau sem koma um lengri veg,“ segir Þórhallur Jónsson kaupmaður í Pedromynd- um og varaformaður Miðbæjarsam- takanna á Akureyri. Jólaverslun í höfuðstað Norðurlands fer vel af stað og markar svarti föstudagur- inn gjarnan upphaf hennar. Þórhallur segir kaupmenn á Akureyri ekki kvarta, sumarið var gott og ágætis umferð á góðu hausti og í upphafi jólavertíðar. Hann segir margar verslanir bjóða upp á tilboð á vörum alla þessa viku, enda biðu viðskiptavinir eftir þeim og verslun í vikunni á undan datt svo gott sem niður fyrir svarta föstudaginn. „Það er almennt gott hljóð í kaupmönn- um og bjartsýni ríkjandi á góða jólaverslun, við verðum ekki vör við að fólk sé neitt að draga úr, ekki strax í það minnsta.“ Halldór Halldórsson hefur um langa hríð rekið verslun með úr og skartgripi á Glerártorgi og er ánægður með jafna og stöðuga umferð allan nóvembermánuð. „Við byrjum með afmælishátíð í byrjun mánaðar og síðan hefur umferð verið stöðug. Mér líst vel á upphaf jólaverslunar, hún fer vel af stað, en margir byrja einmitt í kringum tilboðin á svörtum föstudegi.“ Haukur Már Hergeirsson versl- unarstjóri hjá Elko segir að oft hafi biðröð myndast við búðina þegar opnað er og mikið fjör alla daga. „Þessi vika hefur verið mjög góð, við erum með tilboð tengd svörtum föstudegi alla vikuna, dreifum þessu á fleiri daga og það hefur gefið góða raun. Landsmenn ætla sér greini- lega að nýta tilboðin og gera hag- stæð kaup,“ segir Haukur og bætir við að margir nýti sér verslanir í meira mæli en undanfarin ár þegar fjöldatakmarkanir voru í gildi. lMargir á ferðinni í veðurblíðunni norðanheiða Jólaverslun á Akur- eyri fer vel af stað Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Morgunblaðið/Margrét Þóra Góð vikaHaukurMár Hergeirsson verslunarstjóri í Elko á Akureyri segir vikuna hafa verið annasama. Bjartsýnn Þórhallur Jónsson segir gott hljóð í kaupmönnum. Pakkað innMarit sem starfar hjá Halldóri úrsmið önnum kafin.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.