Morgunblaðið - 25.11.2022, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2022
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
stígur á hlaðvarps-
vagninn en hann
segir margt hafa
breyst síðan hann
stoppaði stutta
stund á vagninum
með hlaðvarpinu
Öll trixin í bókinni fyrir þremur árum.
„Ég gerði eiginlega þau mistök
að vera of fókuseraður á eitt við-
fangsefni,“ segir Einar en þar var
hann meira að einblína á tónlist-
arbransann en hlaðvarpið tengdist
ævisögu Einars með sama nafni.
Muna eftir honumúr fyrra lífi
„Ég hef upplifað það að fólk man
eftir mér úr mínu fyrra lífi sem ein-
hverjum músíkkarli en í dag er ég
bara að vinna í umhverfisvernd og í
endurheimt votlendis og svo stend
ég fyrir plokkdeginum, og svona. Ég
hugsaði með mér: Væri nú ekki nær
að tala við leiðandi öfl í umhverfis-
vernd og svo þá sem eru að vinna
í því að gera okkur kolefnishlut-
lausari og fræðast um þetta og sjá
hvort ég geti ekki frætt almenning
um leið,“ segir hann.
„Ég er líka oft að taka þessi sam-
töl fyrir sjálfan mig,“ segir Einar
og hlær. „Til dæmis talaði ég við
Frey Eyjólfsson um breytingarnar
á sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu
um áramótin. Svakalega ósexí um-
ræða en ef einhverjir geta gert hana
skemmtilega eru það við Freyr
Eyjólfsson,“ segir hann.
Um helgina er von á viðtali við
Víði Reynisson, ekki um Covid held-
ur um öryggismál á stórmótum eins
og nú á sér stað á HM í Catar en
Víðir hefur farið fyrir öryggisgæslu
í kringum bæði karla- og kvenna-
landsliðin.
K100 fékk Einar Bárðarson til að
mæla með fimm áhugaverðum hlað-
vörpum sem hann hlustar á en hann
hefur nokkuð fjölbreyttan smekk.
Heimskviður „Stundum langar
mann að vita aðeins meira um það
sem er að gerast í kringum okkur
úti í hinum stóra heimi. Þau Birta,
Bjarni og Sunna gera efninu sínu
alltaf mjög góð skil.“
Þjóðmál „Ég hlusta á Gísla Frey
Valdórsson til að halda mér
upplýstum. Áhugaverð samtöl um
samtímaviðfangsefni. Hlusta ekki
á hvern einasta en marga og hef
gagn af.
Jákastið „Kristján Hafþórsson er
með fallega og einlæga nálgun á
viðfangsefnið sem er bara jákvæðni.
Það er alltaf eftirspurn og nánast
vöntun á jákvæðni.“
The Move „Lance Armstrong er
orðinn ágætiskunningi minn eftir
nokkrar heimsóknir hingað til lands.
Hann er mjög áhugaverður einstak-
lingur á svo margan hátt að það er of
langt að þylja það allt upp en þegar
maður þekkir til þá er oft skemmti-
legra að hlusta
Skoðanabræður „Beggi og Snorri
Más eru snillingar. Það er gaman að
fá að kíkja inn í hausinn á þeim og
viðmælendum þeirra.
Einar Bárðarson er mættur með
látum á hlaðvarpslestina með nýja
hlaðvarpið Einmitt en þar ræðir Ein-
ar við áhugavert fólk úr ýmsum átt-
um um umhverfismál, samfélagsmál
og markaðsmál. Hlaðvarpið, sem fór
í loftið um síðustu helgi, stökk beint
á Topp 10-listann hjá íslenskum
hlaðvarpshlustendum. Hefur Einar
meðal annars talað við pólfarann
Vilborgu Örnu Gissurardóttur, Mar-
gréti Láru Viðarsdóttur sálfræðing
og fyrrverandi knattspyrnukonu,
Davíð Lúther, framkvæmdastjóra
Sahara, og Frey Eyjólfsson, dag-
skárgerðarmann og sérfræðing hjá
Sorpu og því augljóst að umræðuefn-
in eru fjölbreytt – alveg eins og Einar
vill hafa það.
„Ég hef svo mikinn áhuga á fólki
almennt og áhuga á því sem fólk er
að gera. Ég tala nú ekki um þegar
mér finnst mikið til þess koma,“ segir
Einar í samtali við Morgunblaðið og
K100 en hann segir að hlaðvörp hafa
lengið heillað hann.
„Ég hef alltaf verið rosahrifinn af
þessu samtalsformatti, semmaður
getur bara sótt þegar maður hefur
tíma og spyrillinn og viðmælandinn
geta rætt hlutina aðeins betur en hægt
er að gera í útvarpssamtölum – þó að
aðalatriðunum sé nú oft gerð mjög vel
skil í þeim,“ segir hann.
„Ég kalla þetta hlaðvarp um um-
hverfismál, samfélagsmál og aðeins
ummarkaðsmál. Ég leyfi mér að
valsa svona um áhugamálin mín. Þá
getur fólk, ef það hefur enga trú á mér
semmarkaðsmanni, bara hlustað á
hlaðvörpin með viðtölum við fólk í
umhverfisverndinni og „vice versa“.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Einar
Athafnamaðurinn Einar Bárðarson valsar um
áhugamálin sín í nýju hlaðvarpi sínu, Einmitt, en
hlaðvarpsformið og eiginleikar þess hefur lengi
heillað hann. Hann sagði frá hugsun sinni á bak
við Einmitt og mælti með nokkrum áhugaverðum
hlaðvörpum sem hann hlustar á.
Valsar um
áhugamálin sín
Einmitt Einar talar við
áhugavert fólk í nýju
hlaðvarpi en sjálfur
hlustar hannmikið á
ýmiss konar hlaðvörp.
Áhugaverð hlaðvörp frá Einari Bárðarsyni
dlugjö
fin er
glæsileg o
g góm
sæt
viðbót
á sjálf
ri
aðven
tunni,
til
handa
heppn
um
hluste
ndum
K100
ön
vinningshafar fáfrá samstarfsaðilum
Á hverjum degi fram að jólum gefum við einum
heppnum hlustanda Möndlugjöf K100, yfirfulla af
glaðningum frá samstarfsaðilum K100 sem ætti
að gleðja alla og koma sér vel yfir jólahátíðina